Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Blaðsíða 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Norðurlandamót unglinga í óly mp
ískum lyftingum var haldið í Íþrótta
húsinu við Strandgötu um helgina. 82
keppendur voru á mótinu, þar af 22
íslenskir og þrír þeirra úr Hafnarfirði.
Freyja Mist Þórisdóttir úr Kópavogi
vann sögulegt afrek á mótinu er hún
snaraði 89 kg sem er það mesta sem
íslensk kona hefur snarað. Sigraði hún í
sínum aldursflokki og varð því
Norðurlandameistari. Er hún fædd
1996 og keppir í 75 kg flokki.
Finnar voru sigursælastir á mótinu,
sigruðu í landskeppni í þremur af
fjórum flokkum en Norðmenn sigruðu
í einum.. Ísland varð í 2. sæti í
stigakeppni í unglingaflokki karla en í
þriðja sæti í unglingaflokki kvenna og
barnaflokkunum.
Vel heppnað
Norðurlandamót
Unglingar kepptu í ólympískum lyftingum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Freja Obel Rosendahl frá Danmörku. Hrafnhildur Finnbogadóttir úr Kópavogi lyftir hér 58 kg.
Kvennakór Hafnarfjarðar heldur
tónleika í Hásölum við Strandgötu
miðvikudaginn 16. nóvember kl. 20.
Tónleikarnir verða helgaðir íslenskri
tungu og fær kórinn til sín góða gesti
sem eru kórkonum ekki með öllu
ókunnir. Þetta eru félagar úr Karlakór
Hreppamanna sem tóku svo einstaklega
vel á móti Kvennakór Hafnarfjarðar
síð ast liðið vor þegar kórarnir tveir
sungu saman á Flúðum og á Selfossi.
Kórkonur munu ekki syngja hefð
bundna jólatónleika í ár og bregða þar
með út af margra ára hefð. Þess í stað
halda þær núna alíslenska tónleika sem
bera yfirskriftina Móðurmálið mitt og
verða flutt ljóð og lög eftir mörg dáð
ustu ljóðskáld þjóðarinnar. Má þar fyrst
nefna Jónas Hallgrímsson, sem dagur
íslenskrar tungu er kenndur við, Hall
grím Pétursson, Tómas Guðmundsson,
Megas og fleiri meistara íslenskrar
ljóðagerðar. Sem dæmi um lagahöfunda
má nefna Sigvalda Kaldalóns, Sigfús
Halldórsson, Inga T. Lárusson og
Oddgeir Kristjánsson.
„Það er kórkonum kærkomið
tækifæri að fá að rifja upp og flytja öll
þessi fallegu íslensku sönglög sem hafa
lifað og dafnað með þjóðinni um
langan aldur,“ segir Sigríður Þyrí
Skúladóttir ein kórfélaga.
Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar
er Erna Guðmundsdóttir og píanóleikari
er Antonía Hevesi. Stjórnandi Karlakórs
Hreppamanna er Edit Molnár og
píanóleikari er Miklós Dalmay.
Miðasala á tónleikana er hjá kó r kon
um og við innganginn og er miðaverð
2.500 kr. Einnig má senda tölvupóst á
kvennakor.hafnarfjardar@gmail.com
eða skilaboð á Facebook síðu kórsins.
Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri.
Tónleikagestum verður boðið að þiggja
kaffi og konfekt í tónleikahléi.
Kvennakór Hafnarfjarðar syngur með Karlakór
Hreppamanna á degi íslenskrar tungu
Kvennakór Hafnarfjarðar verður með tónleika í Hásölum miðvikudaginn 16. nóvember
Karlakór Hreppamanna.