Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Page 11

Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Page 11
www.fjardarfrettir.is 11FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Íbúar í Áslandi hafa eflaust margir tekið eftir að jarðvegurinn í brekkunni við Ásbrautina, næst Kaldárselsvegi hefur skriðið niður. Þarna var brotið úr þegar vegurinn var gerður og sáð í. Miklingar rigningar undanfarið hafa losað jarðveginn frá hörðu undirlaginu og skriðið niður á all stórum kafla án þess að hafa valdið neinni hættu. Miklar fyllingar eru við Kaldárselsveg sem áður hefur runnið úr en þar gæti við verstu aðstæður runnið mikið úr. Þríþrautadeild Sundfélags Hafnar­ fjarðar raðaði inn verðlaunum á upp­ skeruhátíð Þríþrautasambands Íslands sl. föstudag. Hjördís Ýr Ólafssdóttir varð stiga­ hæst í kvennaflokki og þar með þrí­ þrauta kona ársins. Hjördís varð einnig bikarmeistari einstaklinga 2016 með 14 stig af 150 mögulegum. Bjarki Freyr Rúnarsson varð svo þriðji í stigakeppni karla en hann varð einnig þriðji í bikarkeppni einstaklinga. Valerie Maier og Anton Ingvarsson voru valin byrjendur ársins og SH varð stigahæsta þríþrautafélagið annað árið í röð. Sundfélag Hafnarfjarðar sigraði einnig í bikarkeppni félaga, fékk 1.117 stig. Sólvangsdagurinn 2017 Hinn árlegi Sólvangsdagur verður haldinn laugardaginn 5. nóvember kl. 14-16 Dagskrá • Sala á munum sem heimilisfólk og gestir dagdvalar hafa unnið á vinnustofu • Myndlistarsýning • Vöfflukaffi með öllu tilheyrandi að hætti Bandalags kvenna í Hafnarfirði • Bókamarkaður • Lifandi tónlist • Kynning á Hollvinasamtökum Sólvangs Allir eru hjartanlega velkomnir og við vonumst til þess að sjá sem flesta. Hjördís Ýr er þríþrautakona ársins SH varð stigahæsta þríþrautafélagið annað árið í röð Hákon Hrafn Sigurðsson þríþrautakarl ársins og Hjördís Ýr Ólafsdóttir þríþrautakona ársins 2016 með verðlaunagripina. Þríþrautadeild SH varð stigahæsta þríþrautafélagið 2016. Rigningin tók með sér jarðveginn Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hjördís Ýr er 34 ára iðnhönnuður og hefur stundað þríþraut í nokkur ár, mest megnis æft og keppt í Ástralíu þar sem hún bjó frá 2007­2009 og svo 2011 til lok ársins 2015. Fyrsta sumarið sem hún keppti í þríþraut á Íslandi vann hún stigakeppni Þríþrautarsambands Íslands og hlaut því titilinn þríþrautakona ársins. Hún varð tvöfaldur Íslandsmeistari, í sprett­ þraut í Kópavogi og í ólympískri þrí­ þraut á Laugarvatni. Einnig varð hún í öðru sæti í WOW hálfri ólympískri þríþraut í Hafnarfirði og Challenge hálfum járnkarli í Kjós í sumar. Þá hefur hún líka tekið þátt í hjólareiðakeppnum og náð verðlauna­ sætum þar. Hjördís Ýr Ólafsdóttir

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.