Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Síða 15

Fjarðarfréttir - 03.11.2016, Síða 15
www.fjardarfrettir.is 15FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016 Handbolti: 3. nóv. kl. 19.30, Víkin Víkingur - FH, 1. deild kvenna 5. nóv. kl. 16, Ásvellir Haukar - Stjarnan, úrvalsd. kvenna 9. nóv. kl. 19.30, Austurberg ÍR - Haukar, bikarkeppni kvenna 9. nóv. kl. 20, Kaplakriki FH - Grótta, bikarkeppni kvenna ÚRSLIT KVENNA: Haukar ­ Selfoss: 27­28 FH ­ Valur U: 28­24 ÚRSLIT KARLA: Haukar ­ Grótta: 34­32 Akureyri ­ FH: 24­24 Körfubolti: 4. nóv. kl. 19.15, Akureyri Þór Ak. - Haukar, úrvalsdeild karla 9. nóv. kl. 19.15, Ásvellir Haukar - Grindavík, úrvalsd. kvenna ÚRSLIT KVENNA: Njarðvík ­ Haukar: (miðvikudag) Haukar ­ Stjarnan: 62­58 ÚRSLIT KARLA: Haukar ­ KR: 61­94 ÍÞRÓTTIR Hressleikarnir 2016 verða haldnir núna á laugardaginn. „Hressleikarnir eru góðgerðaleikar þar sem við styrkjum kroppinn og gott málefni í leiðinni,“ segir Linda Hilmarsdóttir í Hress en Hressleikarnir eru haldnir nú í níunda sinn. EINSTÆÐ MÓÐIR MEÐ ÞRJÚ BÖRN FÆR AFRAKSTURINN Í ár er það Hjördís Ósk Haraldsdóttir, 31 árs sérkennari á leikskólanum Múla­ borg sem nýtur afraksturs Hress­ leikanna. Hjördís greindist með æxli í heila árið 2014 og hefur þurft að fara í tvær erfiðar aðgerðir í kjölfarið, geisla­ meðferð og strangar lyfjameðferðir. Hún býr ein með þremur börnum sínum, Alyssu Lilju 11 ára, Amý Lynn 9 ára og Aroni Raiden 5 ára á Völlunum. Aron er langveikur en hann fæddist með fæðingargallann Gastroschisis og þurfti m.a. að fara í átta aðgerðir á fyrsta árinu. Hjördís hefur ekki getað stundað vinnu siðast liðin tvö ár vegna veikinda og mun ekki geta unnið á næstunni. Hressleikarnir verða haldnir á laugar­ daginn kl. 9.15­11.15 í Hress að Dalshrauni 11. Á leikunum munu átta, 28 manna lið, sem öll klæðast sérstök­ um lit, æfa í 15 mínútna lotum í tvo. Hægt er að leggja inn á söfnunarreikning Hress/fjöl skyld unnar, 135­05­71304 kt. 540497­2149. Öllum er velkomið að taka þátt hvort sem þeir eru korthafar í Hress eða ekki Svitna og styrkja unga fjölskyldu Hressleikarnir verða haldnir á laugardaginn í níunda sinn Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráð­ herra hefur staðfest nýjan samning milli velferðarráðuneytisins og Hafnar fjarð­ arkaupstaðar um byggingu 60 rýma hjúkr unarheimilis í bæjarfélaginu. Samn ingurinn kemur í stað eldri samn­ ings frá árinu 2010 sem ekki komst til framkvæmda en Hafnarfjörður var í upp haflegum hópi sveitarfélaga sem ákveðið var að semja við um byggingu hjúkr unarheimilis samkvæmt svo­ kallaðri leiguleið. Áætlað er að heimilið verði tilbúið vorið 2018. Bæjarfélagið leggur heimilinu til lóð, í samræmi við lög um heil brigðis­ þjónustu, og hefur ákveðið að það verði byggt á lóð Sólvangs við Sólvangsveg. Samkvæmt samningnum mun Hafnar fjarðarkaupstaður bera alla ábyrgð á framkvæmd verksins, þ.e. hönn un og byggingarframkvæmdum og fjármögnun framkvæmdanna. Við hönn unina skal fylgja viðmiðum vel­ ferðarráðuneytisins um skipulag hjúkr­ unarheimila þar sem áhersla er lögð á að aðstæður séu sem heimilislegastar en mæti engu að síður þörfum fólks með skerta getu og þörf fyrir hjúkrun, þjálfun og endurhæfingu. Byggt verður samkvæmt leiguleið sem er samkvæmt lögum um málefni aldraðra. Í því felst að 85% stofnframlag ríkisins og Framkvæmdasjóðs aldraðra greiðist mánaðarlega sem leiga frá þeim tíma sem hjúkrunarheimilið hefur verið afhent til notkunar. Kostnaðar­ hlutdeild sveitarfélagsins er 15%. Hjúkr unarheimilið verður eign Hafnar­ fjarðarkaupstaðar en óheimilt er að framselja eignarrétt að hjúkrunarheimil­ inu á samningstímanum sem er til 40 ára. Sjúkratryggingar Íslands munu auglýsa eftir rekstraraðila fyrir hjúkr­ unarheimilið tólf mánuðum áður en verklok eru fyrirhuguð. Þessi samningur er mun hagkvæmari fyrir sveitarfélagið en fyrri samningur og tryggir ríkið rekstur heimilisins en áður hefði umframkostnaður fallið á sveitarfélagið. Samið um hjúkrunarheimili

x

Fjarðarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.