Fréttablaðið - 28.12.2021, Síða 13

Fréttablaðið - 28.12.2021, Síða 13
� 9. JANÚAR � KL. 20.00 � ELDBORG MIÐASALA Á HARPA.IS OG TIX.IS Árvissir og sívinsælir nýárstónleikar stórsveitarinnar eru sem fyrr helgaðir tímabilinu 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum á jörðinni og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru popp stjörnur síns tíma. Gestasöngvar eru Kristjana Stefánsdóttir og James Olsen frá Færeyjum. Stjórnandi & kynnir: Sigurður Flosason Kristjana Stefáns JAMES OLSEN NÝÁRsTÓNLEIKAR ssveeeiiflunnar Atvinnufjelagið, AFJ, félag einyrkja, lítil og meðalstór fyrirtæki, var stofn- að 31. október á þessu ári og hefur vakið mikla athygli. Mikill áhugi er á félaginu og baráttumálum þess og ætti ekki að koma á óvart enda þörfin brýn að gæta betur að hags- munum þessara fyrirtækja. Bilið hefur breikkað Á undanförnum 30 árum hafa veru- legar breytingar átt sér stað í fyrir- tækjaflóru landsins. Geti fyrirtæki stækkað og styrkt þannig sam- keppnisstöðu sína, gera þau það. Það hefur gerst í fjölda atvinnugreina í sjávarútvegi, verslunarrekstri, bankastarfsemi og fleiri greinum. Það er jákvætt ef það gerist ekki á kostnað þeirra sem minni eru. Sum fyrirtæki ná þeirri „eftirsóknar- verðu“ stöðu að verða „of stór“ til að falla. Icelandair hefur lengi haft þessa stöðu innan íslensku ferða- þjónustunnar og minnstu munaði að bankakerfið yrði skilgreint þann- ig árið 2008. Önnur fyrirtæki verða það stór að þau telja sig eiga að ráða leikreglum samkeppninnar og sam- félagsins. Þrátt fyrir þessar breytingar í undirstöðum atvinnulífsins, hefur félagskerfi vinnumarkaðarins lítið breyst. Afleiðingar þess birtast fyrst og fremst í því að hagsmunir stór- fyrirtækja eru allsráðandi fyrir- tækjamegin innan þessa kerfis, sem er byggt upp á þeirri meginreglu að þeir ráða sem borga mest og þar sem völdin eru mest m.a. í formi skipunar stjórnar. Það er að mati AFJ bagaleg þróun, ekki hvað síst fyrir þá sök að langstærsti hluti launafólks starfar sem einyrkjar eða hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Innbyggð mismunun í gjaldtöku og fjármálakerfinu Þegar lítill eða enginn greinarmunur er gerður á milli lítilla og stórra í opinberri gjaldtöku og álögum þá leggst kostnaðarbyrði hlutfallslega mun þyngra á þá sem smærri eru, hvort sem það er útvarpsgjald eða margvíslegar álögur. Þessi kerfis- læga mismunun gerir því smærri fyrirtækjum erfiðara að keppa sem getur dregið úr samkeppnis- hæfni eða skekkt samkeppnis- stöðu fyrirtækja á hefðbundnum samkeppnismörkuðum. Þá er fjár- málamarkaðurinn hér á landi með þeim ósköpum gerður að lánafyrir- greiðsla á eðlilegum kjörum er afar erfið hjá smærri fyrirtækjum enda hlýtur hagnaður bankakerfisins að koma þaðan. Stóru fyrirtækin hafa aðrar leiðir til fjármögnunar, hluta- fjáraukningar, lántöku erlendis eða útgáfu skuldabréfa. Lífeyrissjóðakerfið er sérstak- lega sniðið að stórum skráðum fyrirtækjum eins og það séu þau einu arðsömu. Þar virðist ekki horft í áttina að litlu og meðalstóru fyrir- tækjum í fagfjárfestingum fyrr en þau hafa stækkað og þá hækkað verulega í verði. Atvinnufjelagið vill leggja áherslu á breytingar á þessu í góðu samstarfi við lífeyrissjóðina. Margt gott má segja um stefnu ríkis- stjórnarinnar því þar er loksins lögð áhersla á að lífeyrissjóðir geti ávaxt- að eignir sínar með fjölbreyttari, en jafnframt öruggum hætti. Loksins verði fest í sessi heimild fyrir lífeyris- sjóði að eiga yfir 20% í nýsköpunar- og vaxtarsjóðum og meiri skilningur á mikilvægi innviðafjárfestinga þar sem mörg lítil og meðalstór fyrir- tæki starfa um land allt. En til að þetta raungerist þurfa fulltrúar lítilla Gerum félagskerfi vinnumarkaðarins betra og meðalstórra fyrirtækja að sitja í stjórnun lífeyrissjóða, en ekki ein- göngu fulltrúar stóru turnanna SA og ASÍ. Síðast en ekki síst endurspegla kjarasamningar ekki þann rekstr- arveruleika sem lítil og meðalstór fyrirtæki standa andspænis nema að takmörkuðu leyti. Svo virðist sem fyrirtæki séu bundin að lögum hvað kjarasamning SA og ASÍ varð- ar, hvort heldur þau eru aðilar að samtökunum eða ekki. Þessi vandi hefur farið vaxandi undanfarin ár og bendir f lest til þess að hann muni aukast enn frekar á komandi árum og áratugum eftir því sem umbylting atvinnulífsins eykst í tengslum við 4. iðnbyltinguna. Þar sem skapandi greinar, hugbúnaðar- gerð, ör þróun heilbrigðis- og líf- tækni, ferðaþjónusta, kvikmynda- gerð og aðrar hugvitsdrifnar greinar fara ört vaxandi. Ný tækifæri munu jafnframt skapast í orkutengdri starfsemi þar sem auðlindir eru nýttar til nýsköpunar. Þar geta gilt allt önnur lögmál um laun, kjara- samninga, kaupréttarsamninga, vinnutíma, vinnustað og menntun. Þarna verður vöxturinn mestur til velsældar og lífskjör almennings batna. Í kjaramálum þurfum við að komast inn í 21. öldina hvað þetta varðar. Litlu og meðalstóru fyrirtækin eru verðmætust Einyrkjar og litlu og meðalstóru fyrirtækin eru verðmætasti hluti vinnumarkaðarins atvinnulega og efnahagslega fyrir atvinnulífið um land allt, þar með talið fyrir stærri fyrirtækin. Þetta er sá hluti vinnu- markaðarins þar sem flestir starfa, sem nýsköpun sprettur fram af, sem veitir vinnumarkaðnum nauðsyn- legan sveigjanleika og efnahagsleg þróun til framtíðar. Þarna kemur einnig oft inn ungt, vel menntað og verðmætt starfsfólk fyrir fram- tíðina sem hefur látið minna fyrir sér fara í kröfugerð eða hagsmuna- baráttu. Skapa þarf meiri skilning og sátt í samfélaginu, ekki bara milli atvinnugreina og auðlinda þjóðar- innar, heldur milli starfsstétta, ald- urshópa og stærðar fyrirtækja sem öll hafa sínu hlutverki að gegna í lífs- hlaupinu til vaxtar og velsældar. n Helga Guðrún Jónasdóttir stjórnarmaður í Atvinnufjelaginu ÞRIÐJUDAGUR 28. desember 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.