Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1974, Page 20

Strandapósturinn - 01.06.1974, Page 20
Einarsson, sem þá hafði þjónað Selvogsþingum frá því er hann vígðist árið 1717. Séra Halldór var heilsutæpur, talinn þunglyndur og varð ekki gamall maður (d. 1738). Er mælt, að hann liggi framan við kirkjudyr á Stað undir blágrýtishellu mikilli, er hann í lifanda lífi flutti sjálfur heim, ofan af Staðarfjalli. (Sögn Sighv. Gr. Borgfirðings). Kona séra Halldórs var Sigríður Jónsdóttir, borgfirzk að kyni eins og þau hjón bæði. Eitt meðal tíu barna þeirra var hinn þjóðkunni prestur, jarðræktarmaður, rithöf- undur og skáld, séra Björn í Sauðlauksdal, sem getið er að nokkru í öllum kennslubókum í Islandssögu. Séra Halldór og Sigríður kona hans gáfu Staðarkirkju predikunarstólinn, sem enn er þar og jafnan hefur þótt fagur gripur og merkilegur, þó að nú sé hann farinn að láta á sjá, enda skammt í 250 ára aldur hans. Stóllinn er sjöstrendur, með einni málaðri mynd á hverjum fleti. Myndirnar eru af guðspjallamönnunum fjórum, postulunum Pétri og Páli og Frelsaranum (Salvator). Myndirnar eru upphaflega gerðar í mjög björtum litum og hafa haldið sér ótrúlega vel, þótt nú (1974) sé ferskleiki þeirra nokkuð tekinn að dofna, sem vonlegt er eftir hart nær hálfa þriðju öld. Tvær myndanna (Jóhannes- ar og Lúkasar) snúa að mjög nálægum glugga mót suðri, og hafa þær svo til eyðilagzt af skini sumarsólarinnar í þau rúmlega 100 ár, sem núverandi kirkja hefur staðið. A breiðum dökkum ramma efst í stólfætinum standa nöfn gefendanna, maddömu Sigríðar Jónsdóttur og séra Halldórs Einarssonar, ásamt ártalinu 1731. Mig brestur þekkingu til þess að dæma um eða leiða sennilegar getur að því, hvort myndirnar á stólnum muni heldur vera innlendar eða erlendar að uppruna. Tímans vegna gætu þær hugsanlega verið eftir séra Hjalta Þorsteinsson í Vatnsfirði, sem þá (1731) var að vísu orðinn aldraður maður (f. 1665, d.1754), en þó hvergi nærri kominn að fótum fram. Með því að frekar fátt mun hafa varðveitzt af handaverkum séra Hjalta þykir mér raunar ekki trúlegt, að mönnum á borð við Matthías Þórðarson fyrrv. þjóðminjavörð og Jón biskup Helgason hefði sézt yfir þetta verk, væri það eftir Hjalta 18
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.