Fréttablaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 42
Sögulegar ófarir Vaxandi óþol gagnvart sótt- varnaaðgerðum, samkomu- bönnum og bólusetningum eflir fleirum en Arnari Þór Jónssyni, varasömum vara- þingmanni og uppgjafa- héraðsdómara, þrótt. Þannig festir hann sig í sessi með fastan, vikulegan smitréttar- þátt á Útvarpi Sögu. Þá snareykst hlustun á stöðina í takt við öfugsnúinn tíðarandann þannig að lengja þarf símatíma stöðvarinnar um tvær klukkustundir á dag þannig að opið verður fyrir símann frá klukkan níu til tvö sem dugir þó hvergi til að allir þeir innhringjendur sem finna sig knúna til að taka undir samsæriskenningar Arnþrúðar Karlsdóttur um tilraunabóluefni og hina miklu endurræsingu komist að. Á meðan Útvarp Saga er full er Hótel Saga tóm fyrir utan drauga fortíðar sem þar voma um ganga og bíða eftir að fá háskólastúdenta eða óbólusetta í einangrun til þess að ofsækja. Önnur hótel eru í sömu klemmu og þurfa eitt af öðru að loka dyrum sínum vegna teppu í ferðamannaflaumi. En rétt eins og í tilfelli Sögu er enginn skortur á hugmyndum að nýjum notum fyrir drauga- hótelin. Grand Hóteli er um- breytt í litboltaleikvang ríka fólksins, Galaxy Pod Hostel endurnýtir svefnhylkin til að frysta fólk sem vill sitja hjá í faraldrinum og Fosshóteli Rauðará er umbreytt í sögu- safn um Covid-19. Arnar Þór Jónsson, varasamur varaþing- maður og uppgjafahér- aðsdómari Vituð þér enn eða hvað? spyr völvan á enn einum áramótunum. Óvenju rám og geðstirð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 38 Lífið 31. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 31. desember 2021 FÖSTUDAGURLÍFIÐ VÖLVAN 2022 31. desember 2021 FÖSTUDAGUR Varla er hægt að tala um hlýlegar móttökur þegar völvan fékkst loks á Zoom-fund til að rýna þar í kristalskúluna, kíkja í bollann og stokka spilin. Nornin var í sínu allra versta skapi enda rétt byrjuð í fimmtándu sóttkvínni á árinu sem er að líða og illu heilli er útlit fyrir að fínu drættirnir sem hún sér 2022 verði tæpast miklu fleiri eða hressilegri en 2021. Völvan hefur undanfarin tvö ár haft góðar gætur á Mið- flokkshrossinu Uppspuna frá Rótum sem er, eins og frægt er orðið, undan Þvælu frá Upphafi og ekki laust við að hann hafi brokkað í nokkuð jöfnum takti við geðslag þjóðarinnar og tekist merkilega vel að kljúfa þann stríða straum mótlætis og ófara sem dunið hefur á landanum. Því miður er ekkert í spilunum núna sem gefur til- efni til að ætla að harðindunum linni þar sem aftur mun gjósa, syndaflóði rigna, uppskeru bresta og harðna á Covid-dalnum ef eitthvað er. Þá getur varla boðað gott að völvan sér þjóðargælu- dýrið, Uppspuna sjálfan, liggja í blóði sínu óbættan hjá garði. Til að bæta gráu ofan á blóðrautt munu bræður og systur berjast í borgum og bæjum þar sem gælu- dýrahald verður stórmál í hreppakosningum víðar en norðan heiða. Barnaskólar munu halda áfram að mygla í pólitísku moldviðri, draugahótelum fjölgar og ríkis- stjórnin hangir á minnisleysi. Vituð þér enn eða hvað? n Uppspuni frá Rótum sleginn af í blóðmerarpolli Jarðeldar og skýfall Jarðskorpan verður á mikilli hreyfingu allt næsta ár og enga spákerlingu í eigin föðurlandi þarf til þess að sjá fyrir frekari eldsumbrot á nýja árinu þótt þau muni láta bíða lengur eftir sér en margan grunar. Sérfræðingar keppast við að spá eldgosi í nokkrum þekktum eldstöðvum á meðan jörð skelfur í lang- dreginni hrinu sem meira að segja Grindvíkingar munu hætta að kippa sér upp við áður en upp úr sýður. Ekki þarf þó að hafa áhyggjur af skorti á náttúru- hamförum 2022 þar sem veðurguðirnir munu af- lýsa sumrinu með sturluðu vatnsveðri, því mesta í elstu kvenna minnum, sem geisar um landið allt. Syndaflóð þetta skellur ekki síst harkalega á ríkissjóði sem þarf að bæta kartöflu- bændum algeran uppskeru- brest þannig að Íslendingar þurfa að gera sér danskar kartöflur að góðu allan næsta vetur. Sem er þó ef til vill ekki það versta þar sem fram sprettur Ólafur Ragnar Grímsson og heldur alþjóðlegu ráðstefn- una I told you so þar sem fæðuöryggi er í brennidepli. Hann segir síðan betur frá þessu í Kastljósi í október. Jarðhræringasagan enda- lausa nær síðan loks hámarki þegar gríðarstór skjálfti ríður yfir á flekaskilunum á Þing- völlum með þeim afleið- ingum að þeir færist nær hvor öðrum og Almannagjá og Silfra lokast. Ferðaþjónustan keppist við að fylla í skarðið fyrir Gullna hringinn og endar á að velja Kerið í þrenninguna. Skömmu síðar hefst leitin að áfangastað aftur þegar Kerið fyllist af túristarusli. Ferðaþjónustan og kráar- eigendur í Reykjavík, með Jó- hannes Þór Skúlason útskýr- ara í fylkingarbrjósti, sækja eðlilega fébætur til ríkisins enn fastar en áður en Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra, sem að vísu heldur að hann sé forsætisráðherra, svarar því til að ekkert sé eftir í kassanum. Hann hafi verið tæmdur yfir kartöflubændur og Laugardalinn. Ríkisstjórn í heilaþoku Ríkisstjórnin heldur út árið og sennilega gott betur þrátt fyrir að hún hökti með reglulegu millibili. Það verða ekki síst nýir þingmenn í stjórnarflokkunum sem verða sinni eigin stjórn erfiðir. Mörgum er þó létt í byrjun árs þegar fyrirhuguð breyting á ráðu- neytum gengur sjálfkrafa eftir þegar þrír ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins, Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð og Ás- laug Arna Sigurbjörnsdóttir, snúa aftur úr Covid-veikindaleyfi. Týnd í heilaþoku langvarandi eftirkasta halda fyrrverandi iðnaðar- og dómsmálaráðherra áfram að sinna sínum gömlu embættum eins og ekkert hafi í skorist. Bjarni ræður hins vegar ekki annað af ganginum í stjórnarsamstarfinu en að hann sé enn forsætisráð- herra og heldur áfram að ráða öllu sem hann vill ráða. Meðvitundarlaust um að hafa smitast af Covid heldur ráðherra- þríeykið áfram að tala sóttvarnir niður og fyrir rýmkun smitleiða þannig að varaþingmaðurinn Arnar Þór Jónsson færist allur í aukana og höfðar slíkan sæg af málum gegn sóttvarnalækni að á tímabili er í alvöru rætt um að bæta við nýju dómstigi. Sótt- varnarétti, svokölluðum. Telja má víst að ríkisstjórnin muni þurfa að leita sátta í stórum málum fyrir Mannréttindadóm- stól Evrópu í Strassborg og þótt þau verði ekki öll rakin til Arnars Þórs verður hann ekki til að bæta stöðuna. Ekki er síðan annað að sjá á botni kaffibollans en að fyrrverandi þingmaður sem hvarf skyndilega úr stjórnmálum gangi í endurnýjun pólitískra lífdaga í innansveitarpólitíkinni á Sel- tjarnarnesi. Bjarni Benediktsson Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.