Strandapósturinn - 01.06.1978, Blaðsíða 26
þá tekin mjó ræma úr eltiskinni og saumuð yfir varpið á skónum,
var önnur brún ræmunnar lögð á skóinn rétthverfu eða hár-
ramma megin og saumuð föst, því næst var hin brúnin á ræm-
unni brotin yfir varpið og saumuð föst ranghverfu eða holdrosa
megin, með þessari aðferð bilaði ekki varpið á skónum og svo var
þetta mun fallegra, ekki síst ef eltiskinnsræman var vel ljós á
litinn. Stundum var notað léreft í stað eltiskinns og þá helst á
sauðskinnsskó.
Hver heimilismaður fékk nýja sauðskinnsskó á jólunum og
voru þeir nær undantekningarlaust bryddaðir með hvítri
bryddingu og voru þetta oft mjög fallegir skór og fóru vel á fæti.
Stundum voru skór búnir til úr eltiskinni og þóttu mjög fallegir.
Skinnin voru oftast blásteinslituð, en blásteinninn varði skóna
ótrúlega vel fyrir bleytu og frá því að togna og skekkjast á
fótunum.
Skinnskór entust misjafnlega vel og réði mestu um hvernig
landi var háttað, sem gengið var á, sumsstaðar var land grýtt og
gróðurlítið, þar entust skinnskórnir illa, en á grösugu landi ent-
ust þeir oft ótrúlega vel.
Skór úr nauts- og hrosshúðum voru kallaðir leðurskór, en úr
kindaskinnum hétu þeir sauðskinnsskór. Oftast var hárið rakað
af húðunum, því hárið þótti safna í sig óhreinindum, þó voru
sumir, sem töldu að skórnir entust betur ef þeir væru með hár-
inu, sama gilti með selskinn, (sauðskinn voru alltaf rökuð). Skór
með hári voru oft mjög hálir, sérstaklega í þurrki.
Oft var það, að byrgðir skæðaskinna entust illa, sérstaklega á
barnmörgum heimilum var þá notast við ýmislegt annað efni til
skógerðar, algengastir voru skrápskórnir.
Þegar hákarlinn er veiddur, er hann skorinn þversum í lykkj-
ur, sem síðar eru svo hengdar upp í hjall til þurrkunar, af þessum
lykkjum var skrápurinn fleginn og hertur, skrápurinn var hertur
þannig, að skráplengjan var lögð á jörðina og yddum smáspítum
stungið í jaðrana og héldu þær lengjunum í réttum skorðum
meðan þær þornuðu, venjulega var valinn hóll í túni til að herða
skrápinn á.
Þegar átti að nota skrápinn var tekinn vikursteinn og dregið
24