Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 48

Strandapósturinn - 01.06.1978, Side 48
— En Stefán er löngu fluttur burtu, sagði ég. — Þú fórst ekki með honum? Ekki hefði væst um þig hjá slíkum manni. — Ég hafði ekkert suður að gera, svaraði Gróa gamla. — Ég hef aldrei komið þangað. Ég uni mér hér og þar með basta. En Stefán vildi alltaf suður eftir slysið og héldu honum engin bönd. Mig dreymdi Stefán gamlan og nú er hann á sextugs aldri og á fjóra syni sem allir eru sjómenn. Þeir koma hér oft, Stefán og drengirnir, og stundum Ása konan hans Stefáns með einhverjum þeirra. En ég fer aldrei. Eg bíð hér ásamt myndunum mínum eftir síðasta draumnum. — Kvíðir þú fyrir að fara, spurði ég alvarlegur og forvitinn. — Kvíði fyrir, át Gróa gamla upp eftir mér. — Nei svo vitlaus er ég ekki. Ég veit að þeir bíða mín þrír á bátnum sínum heilum og fallegum. Þeir flytja mig á áfangastað blessaðir, og þá verður búið að strauja mig svo að ég verð boðleg i þau húsakynni. — Boðleg, sagði ég, — þú verður það alls staðar, Gróa mín, það er ég viss um og svo mörgum, er mér sagt að þú hafir rétt hjálparhönd, þegar á hefur þurft að halda og skotið skjólshúsi yfir ófáa, sárfætta ferðalanga. Það get ég borið um að minnsta kosti það síðara. — Þú segir það drengur minn, sagði Gróa og renndi kaffi í bollann minn og svipurinn mildaðist nokkuð. — Eg hef aldrei verið neinum neitt nema sjálfri mér eins og allir eru og hafi ég gert fólki greiða, þá hef ég glatt sjálfa mig um leið, eins og þegar ég ber korn til blessaðra fuglanna minna úti i garðinum mínum, sagði hún einkar hlýlega. Mér varð litið út um gluggann. Sumargræn trén teygðu greinar móti gullbjörtu kvöldinu og í flestum greinunum sátu fuglarnir hennar Gróu. Þeir vissu sig örugga í skjóli litla hússins þar sem gömul kona hellti enn á ný á bolla fyrir mig langtað- kominn ferðalanginn. 46

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.