Strandapósturinn - 01.06.1978, Page 86
hljóp niður túnið að bola, þar sem hann þjarmaði að Þorvaldi,
og voru báðir blóðugir. Náði Valdimar föstu taki með annarri
hendi í miðsnesinu á tarfinum, en á eyra hans með hinni og sneri
hann niður, svo lappirnar sneru upp. Dasaðist griðungurinn
brátt og teymdi Valdimar hann á miðsnesinu heim í fjós og þar
mátti tuddi dúsa, þar til honum var slátrað.
Af Þorvaldi er það að segja, að hann varð að fara í rúmið en
ekki voru meiðsli hans talin alvarleg. Þorvaldur var sterkur
maður og vel gefinn, en hann var ákafur að verki sínu og uggði
ekki að sér fyrr en tarfurinn réðist á hann.
Það mun ekki á margra færi að fara á móti mannýgu nauti og
snúa það niður. En hér fór saman hugrekki og karlmennska.
Valdimar býr nú í Kópavogi og býr til tauma, múla og beisli á
hesta, og þykja allir hlutir er hann lætur frá sér fara vandaðir,
eins og hann er sjálfur.
Hann varð 80 ára 12. janúar sl. og enn er hann beinn í baki,
léttur í spori og hress í anda.
84