Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1984, Page 38

Strandapósturinn - 01.06.1984, Page 38
Skip var þegar komið með timbur og annað sem með þurfti svo hægt væri að taka til óspilltra málanna. Elías Stefánsson, út- gerðarmaður í Reykjavík, fékk lóð þá sem móðir mín seldi haustið áður, keypta (eða leigða), hjá áðurnefndum Guðmundi Hannessyni, konsúl á Isafirði. Stóð nú fyrir dyrum breyting á friðsælu víkinni og fáir muna sem hún áður var þegar menn og w tækni, þeirra tíma, hófust handa vorið 1917. Indriði var yfir- og umsjónarmaður við framkvæmdir líðandi stundar og væntanlegrar driftar, ásamt skrifstofumönnum og þeim er sá um síldarmat, ungum lögfræðinema, Magnúsi Magnússyni, sem síðar varð ritstjóri „Storms“ og var stundum kenndur við hann. Þótti hann bæði snjall og orðfimur. Enn- fremur vil ég minnast Jóns Magnússonar, skálds, sem umrædd sumur var beykir í Djúpuvík. Komst Símon, bróðir minn, og reyndar við öll, í góð kynni og gifturík við þann prúða ágætis- mann. Hann var hvatamaður að því að Símon lagði út á menntabrautina, nær févana. Naut hann þess að hafa húsnæði og fyrirgreiðslu á hans heimili sín skólaár hér í Reykjavík, eða þar til stúdentsprófi var náð, sem í reynd var þá örðugri hjalli en nú er. Þó haldið væri vel að sumarkaupi, var litlu af að taka til vetrarins. ► Við byggingarnar var nægur mannskapur, sem fékk aðsetur, meðan á byggingu stóð, á Kúvíkum í húsi Carls F. Jensen, kaupmanns. Var farið á sjó fram og til baka út með landinu sem mun vera röskur hálftíma róður. Það sýnir sig sjálft að vel hefur verið að verki staðið að allt skyldi tilbúið áður en síldveiðar hófust. Ibúðarhús steypt neðsta hæð, þar í ytri enda brauðgerð (bakarí). Dyr voru að neðanverðu, á miðri hlið hússins, og vissu að sjó. Þegar inn var komið var til vinstri aðstaða til elda- mennsku en til hægri verslun. (Hvorutveggja var aðeins starf- rækt á sumrin, sem og bakaríið. Fasta búsetu hafði aðeins um- sjónarmaður stöðvarinnar.) Þarna á milli var allgott rými og innar lá stigi upp á hæðina sem ætluð var að mestu síldarfólki. A efri hæð voru risherbergi undir súð, að hálfu leyti, og vissu í suður með einum glugga hvert. Þar að auki var lítið eldhús fyrir framan neðra herbergið sem var íbúð þess manns er sá um 36 j
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.