Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1984, Page 94

Strandapósturinn - 01.06.1984, Page 94
sem gerist best, féll aldrei verk úr hendi, jafnvel ekki þá hús- lestur var lesinn, þá tók hún prjónana, væru það ekki eldhússtörf var það tóvinnan sem mikið þótti til um í þann tíð, því heimilið var löngum mannmargt. Lund Guðrúnar var einstaklega ljúf, ég held að öllum hafi liðið vel í návist hennar, án hávaða kom hún sínum málum fram, með hægð og ljúfmennsku. Ævinlega fór þessi kona fyrst á fætur af öllum og síðust gekk hún að rúmi sínu hvert kvöld. Undarlega miklu þreki var þessi kona gædd ekki stærri en hún var. Þessi kona fór sjaldan af bæ, man naumast til hún færi í kaupstað. Sjaldan man ég eftir að hún færi til kirkju, aðrir urðu að ganga fyrir. Það var hennar hlutverk að þjóna öðrum alla tíð, hún var alltaf tilbúin að draga sig í hlé svo aðrir gætu farið og lyft sér upp til mannamóta. Ég minnist þess að hjá þeim hjónum Guðrúnu og Guðjóni var lengi eldri kona, eitt af olnboga-börnum þjóðarinnar sem í dag væri kallað þroskaheft eða ekki eins og fólk er flest. Þessi kona sem hét Sigríður Magnúsdóttir átti góða daga hjá Guðrúnu þótt hún ynni henni mikið og trúmennska var hennar aðall. Aldrei heyrði ég annað en Guðrún viki góðu að konu þessari. Guðrún var ekki ein af þeim sem víða fóru um ævina. Fædd og uppalin á Níp í Dalasýslu, — bjó meira en þrjátíu ár í Heiðarbæ, * eyddi ævikveldinu á Hólmavík. Þetta var öll hennar reisa utan þess að heimsækja eldri dóttur sína til Reykjavíkur. Guðjón var af Tröllatunguætt, faðir hans Hjálmar bjó fyrst í Tröllatungu síðan í Heiðarbæ, hann var sonur Jóns Björnssonar aðstoðarprests í Tröllatungu og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur frá Engidal í Skutulsfirði, Móðir Guðjóns var Sigríður Hall- dórsdóttir prests Jónssonar í Tröllatungu. Hjálmar og Sigríður eignuðust tvö börn: Guðjón í Heiðarbæ og Halldór á Tind í Miðdal. Guðjón var minnisstæður maður þeim sem þekktu hann, og kom þar margt til. Hann var vel gefinn, hagmæltur í betra lagi, — (verður síðar vikið að því)). Handlaginn var Guðjón og smiður góður að eðlisfari. Til heimilisins smíðaði hann það sem til þurfti svo sem amboð, orf, hrífur, klórur, klyfbera, fötur úr tré, trog, kyrnur, tunnur og margt fleira. Oft kom fyrir að hann 92
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.