Strandapósturinn - 01.06.1986, Blaðsíða 132
Ejtir séra
Björn Hjálmarsson
í Tröllataungu.
Skjálfs-
eða Skjálgsbragur
Maður kom hér, mann e/ að skyldi kalla,
bón biðja fer, bað nærri um hluti alla.
Gefið mér selþvesti, gefið mér kníf.
Gefið mér hafmatarspóninn.
Gefið mér mörbita, að lengja mitt líf
lýsisskel, rúgmjöl og grjónin.
Mig vantar smér, mjólk, tóbak, eik og nálar,
tólg baunir, ber, bita af sþaði í skálar,
magál, svið, rikling og mjóan saumþráð,
mig vantar hrútshorn í spæni,
nafar, sög, öxi og lampa mér Ijá,
lítið er það sem ég bæni.
Við erum þrjú, vantar fisk, hákarl og skötu
lát löngu þú, líka súr með ífötu,
svuntu, pils, háleista, sokka og skó,
selskinn, skráp, leður og Jleira,
tóbak, brennivín, brauð, indigó,
ég bið þig um dálítið meira.
Laup, Ijá og der, líka súrmjólkurstrokkinn
keip, skrá og kver, konuna vantar rokkinn,
árar á bátinn og eitt sauðarskinn,
ekki á ég hægt með að biðja.
Komdu með allsnægtir kunningi minn,
sem kann mig í búskapnum styðja.
130