Strandapósturinn - 01.06.1988, Blaðsíða 38
leiðar þeirri allranáðugustu skipun, að ég skyldi ferðast til íslands,
til að komast að raun um, hvort í þessu danska héraði kynni að
finnast nothæf leirtegund. Sérstaklega hafði hr. Kammersekre-
tær, Olavius í ferðalýsingu sinni, veitt mikla vísbendingu í þessa
átt, jafnvel flutt heim með sér þessa leirtegund, en alltof lítið til að
gera áreiðanlegar tilraunir.
Eftir að ég var kominn til landsins, gerði ég allt, sem ég gat til að
rannsaka hólana í Mókollsdalnum, sem umrædd sýnishorn voru
tekin úr, og það sem ég fékk var sent til Kaupmannahafnar með
skipinu frá Skagaströnd og Reykjarfirði, sem fórst. Eigi að síður
hélt ég rannsóknum mínum áfram, eins og mér var framast unnt,
til að veita hinni háu stjórn umbeðna vitneskju um áðurnefnda
leirtegund.“
Mohr fór fram að Bleikjuholti og dvaldi þar um hríð við athug-
anir. Hann var allvel útbúinn, hafði með sér jarðbor og mælitæki.
Skýrsla hans um bleikjuna er alllöng og ítarleg, og auk þess lýsir
hann umhverfinu skilmerkilega:
„Af þessari leirtegund (bleikju) er, svo sem kunnugt er frá
fornu fari, talsvert magn við Mókollshaug í Strandasýslu. Frá sjó
innst í Kollafirði gengur dalur, Þrúðardalur nefndur, rúmlega
mílulangur til SA, með háum fjöllum til beggja hliða. Allra innst
breiðir dalurinn úr sér, og þar eins og í krók við suðurhlíðina, er
Mókollshaugurinn, sem dalurinn dregur nafn sitt af. Nokkur
hundruð skrefum neðan hans eru hryggir og smáhólar hér og þar
á tvístringi, þeirra á meðal eru fjórir út af fyrir sig, sem liggja í röð
samtals 160 álna langri.“
Nú lýsir Mohr þessum 4 hólum hverjum á eftir öðrum, og fer
hér á eftir lýsing hans á einum þeirra, hinu eiginlega Bleikjuholti:
„2) Næsti hryggur eða hluti er eiginlega úr hinum fíngerða
hvíta leir, er 20 álna langur og 16 álna breiður um miðjuna, þar
sem hann er breiðastur, er eggmyndaður að ummáli með bert og
dálítið bungumyndað yfirborð um miðbikið. Þarna kom jarðbor-
inn, sem settur var niður á ýmsum stöðum, upp með sama hvíta
leirinn, uns hann kom niður á tveggja álna dýpi, og síðan á 214 og
214 álna dýpi var hann mjög blandaður sama bláa leirnum og
36