Strandapósturinn - 01.06.1988, Síða 51
Móðir mín, Petrína Sigrún Guðmundsdóttir, en svo hét hún
fullu nafni, var fædd 1. október 1879 og andaðist 15. janúar 1967.
Allt tókst þetta einhvern veginn og var mamma ekkja í 6 ár. En
árið 1917 giftist hún seinni manni sínum Jóni Daníelssyni frá
Skáldstöðum í Eyjafirði, og varð hjónaband þeirra með afbrigð-
um farsælt.
Amma mín, Sigríður Pétursdóttir, var ættuð úr Elörgárdal og
kom sem fulllærð ljósmóðir í Árneshrepp, en afi var Strandamað-
ur. Um tvítugsaldur fór Símon bróðir alfarinn úr Kjós til náms, og
var hann mjög mikill námsmaður. Á skólaárunum var hann kall-
aður Galdra-Símon og hafði hann gaman af. Og ekki tók betra við
þegar hann valdi Sorbonne-skóla til æðra náms, eða Svartaskóla,
þar sem Sæmundur fróði stundaði sitt nám forðum daga.
Ég minnist þess þá ég kom hingað suður 17 ára gömul að þá
gekk ég strax í Árnesshreppsfélagið.
Þá flutti Símon oft fyrirlestra eða annað fróðlegt efni á undan
böllunum. Allir sem kaupa Strandapóstinn hljóta líka að kannast
við að Sveinsína Ágústsdóttir skrifaði oft í hann margvíslegan
þjóðlegan fróðleik. Og ekki má gleyma Jóhannesi frá Asparvík, en
mér fannst hann oft eiga meirihluta Strandapóstsins. Hann var
náskyldur hálfsystkinum mínum.
Ég fer nú að láta þetta forspjall að ljóðagerð Guðrúnar systur
minnar nægja, en vil þó aðeins geta þess að móðir mín Petrína var
vel hagmælt, og faðir minn Jón Daníelsson gat einnig gjört lagleg-
ar vísur við ýmis tækifæri, og er það því ekkert undarlegt þótt
skáldagyðjan kæmi einhversstaðar fram og veit ég að hún veitti
Guðrúnu margar ánægjustundir á lífsleið hennar, sem á margan
hátt var oft rnjög erfið og þyrnum stráð.
Ef til vill set ég hér með eina eða tvær vísur eftir mömmu, og
kannski ég ljúki svo þessu spjalli með vísu eftir sjálfa mig, þótt ég
sé fjarri því að vera skáld.
Að síðustu vil ég svo árna Strandapóstinum allra heilla og vona
að hann verði hér eftir sem hingað til lesendum sínum til ánægju
og fróðleiks.
49