Strandapósturinn - 01.06.1995, Blaðsíða 26
skyldi, og hefur ástæðan líklega einkum legið í skorti á faglegri
ráðgjöf á markaðssviðinu.
Urvinnsla úr rekaviði var talsvert til umræðu á árinu. Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga stóð fyrir rekaviðarverkefni, sem
nefndist Bolur, og miðaði að því að leita leiða til að gera rekavið
Strandamanna að markaðsvöru. Þá fékk hreppsnefnd Hólmavík-
urhrepps styrk frá Ferðamálaráði til að setja upp leiktæki úr
rekaviði á tjaldstæði staðarins, en það verkefni spratt upp úr
samkeppni um hönnun slíkra tækja sem Búnaðarsamband
Strandamanna og Ferðamálasamtök Vestfjarða efndu til í árs-
byrjun. Ekki tókst þó að koma leiktækjunum upp á árinu, en þau
eiga að verða tilbúin vorið 1996.
Sumarið 1995 kornu út kort yfir nokkrar gönguleiðir á Strönd-
um, en þessi útgáfa var hluti af stærra verkefni á vegum Ferða-
málasamtaka Vestfjarða. Fleiri nýjungar voru á döfinni í ferða-
málum, og má þar nefna verkefnið „Ferðaþjónusta og þjóðmenn-
ing“, sem Jón Jónsson, þjóðfræðingur frá Steinadal vann fyrir
Héraðsnefnd Strandasýslu með stuðningi Nýsköpunarsjóðs
námsmanna. I verkefninu er fjallað um möguleika Strandasýslu í
ferðaþjónustu út frá þjóðsögum og sögnum af svæðinu. Verkefn-
inu á að ljúka í ársbyrjun 1996.
Á árinu bættist nýr ferðaþjónustuaðili við atvinnulífið á
Ströndum, er Bergþóra Gústafsdóttir opnaði gistiheimili í Norð-
urfirði. Reksturinn gekk þokkalega þetta fyrsta sumar, enda mik-
ill og vaxandi ferðamannastraumur um Strandir.
Þann 1. des. 1995 voru íbúar Strandasýslu 1023 og hafði þá
fækkað um 49 frá árinu áður. Mest varð fækkunin í Bæjarhreppi,
þar sem 20 af 127 íbúum hurfu af íbúaskránni á árinu. Þá fækkaði
urn 15 í Árneshreppi, 14 í Kaldrananeshreppi og 6 í Broddanes-
hreppi. Ibúafjöldi Kirkjubólshrepps stóð í stað, en í Hólmavíkur-
hreppi fjölgaði um 6. Þetta er langmesta fækkun sem orðið hefur
í sýslunni á einu ári unr árabil. Ástæður þessa má að nokkru rekja
til leiðréttinga á heimilisföngum fólks sem flutt hefur úr héraðinu
24