Saga - 2012, Page 76
sendu einnig pöntunarlista til verslunarinnar yfir vörur sem þeir
vildu eiga til í sinni sýslu að ári.15 Einnig er mögulegt að lesa hvað
hver og einn landsmaður hefur tekið út hjá kaupmanni sínum þau
ár sem krambúðarbækur hafa varðveist, eins og raunin er með
Konungsverslunina fyrri sem starfaði á árunum 1759–1763.16 En í
krambúðarbókunum fæst yfirlit yfir öll viðskipti þeirra sem komu í
kaupstað yfir árið.
Engar syrpur af slíkum gögnum hafa varðveist frá Konungs -
versluninni síðari á árunum 1774–1787, aðeins um ein krambúðar-
bók fyrir hverja höfn.17 Margskonar önnur verslunargögn eru hins
hrefna róbertsdóttir74
Dæmi um lista yfir einstaklinga sem pöntuðu vörur eru t.d. í aðalreikningum
fyrir Norðurlandshafnirnar Skagaströnd, Hofsós, Eyjafjörð og Húsavík árið
1759 (nr. 14) og fyrir Skagaströnd og Reykjafjörð árið 1760 (nr. 8).
15 Gísli Gunnarsson lætur þess getið að til séu allnokkrir pöntunarseðlar frá
sýslumönnum í bréfasafni rentukammers, en vísar ekki nánar til þeirra. Gísli
Gunnarsson, Upp er boðið Ísaland. Einokunarverslun og íslenskt samfélag 1602–
1787 (Reykjavík: Örn og Örlygur 1987), bls. 263. Lausleg athugun í skjalasafni
rentukammers leiddi fram nokkur dæmi: ÞÍ. Rtk. B2/13–14. Isl.Journ.B. 1198,
Magnús Ketilsson, Pöntun á vörum til Stykkishólms 21. sept. 1761 (timbur-
pöntun); Rtk. B5/10–9. Isl.Journ.1.712, Stjórn konungsverslunarinnar sendir
greinargerð um allan innflutning utan taxtavöru, 3. mars 1775; Rtk. B10/16–42.
Isl.Journ.6. 1389. Halldór Jakobsson, Bréf um árlegar áætlanir og pantanir á mat-
vöru, 24. ágúst 1785; Rtk. B13/15–12. Isl.Journ.9. 1063. Bréf frá sölunefnd versl-
unareigna um vörur til Innréttinganna og til Ólafs Stephensens, 20. ágúst 1794.
16 Alls eru varðveittar 92 krambúðarbækur frá 25 höfnum fyrir tímabilið 1759–
1763 í Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn. DRA. Det kgl. oktrojerede Is -
landske Kompagni 1742–1766 (Kgl.okt.Isl.) 453. Krambodsbøger holdte af
islandske købmænd 1759–1763, nr. 17–109. Þær eru afar seinlesnar, en þar er
að finna heildaryfirlit yfir alla vöru sem viðkomandi hefur tekið út hjá kaup-
manni á árinu. Þessar bækur eru til fyrir allt tímabil Konungsverslunarinnar
fyrri og allar hafnir landsins og gefa því ótal möguleika á neyslurannsóknum.
Um þessar bækur sem heimildir, sjá Hrefna Róbertsdóttir, „Krambúðir og
kaupstaðaferðir. Heimildir um atvinnu og verslun á 18. öld“, Kvennaslóðir. Rit
til heiðurs Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi. Ritstj. Anna Agnarsdóttir, Erla
Hulda Halldórsdóttir, Hallgerður Gísladóttir, Inga Huld Hákonardóttir,
Sigríður Matthíasdóttir, Sigríður K. Þorgrímsdóttir (Reykjavík: Kvennasögu -
safn Íslands 2001), bls. 190–195. Sjá einnig Pétur G. Kristjánsson, „Islandske
handelsregnskaber.“ Nordatlanten og Troperne. Forvaltningshistoriske kilder fra
Færøerne, Grønland, Island og Tropekolonierne. Red. Erik Nørr og Jesper Thomas -
sen. Kilder til dansk forvaltningshistorie V (Kaupmannahöfn: Selskabet for
Ud givelse af Kilder til Dansk Historie 2007), bls. 229–235.
17 Alls eru varðveittar 22 krambúðarbækur frá tímabilinu 1781–1794 og því vant-
ar stöku höfn. DRA. Realisationskommission for islandske og finmarkske
Saga haust 2012_Saga haust 2004 - NOTA 27.11.2012 10:47 Page 74