Saga - 2013, Blaðsíða 53
leysi, hrakning, sjálfrar hennar frekju og léttúð; eins og vegna þess afl-
vana taumhalds er hún hafði á sjálfri sér, þrátt fyrir það, að ég held
(hjátrúarlaust sagt) að hún hafi í fleiri reisur fengið skarpar aðvaranir
af forsjónarinnar tilhlutan hvörju hún öllu kastaði svo á bak sér aftur,
eða svæfðist svo að þetta síðast talda ekki náði að hamla henni að
ganga sín ólukku spor.183
Sigríður bústýra nefndi aldrei í yfirheyrslum að Agnes hefði átt
í neinskonar sambandi við Natan og hafi einhver þekkt vel til mála
var það hún, en þær Agnes virðast hafa verið mátar. Þvert á móti
bendir flest til þess að Natan og Agnes hafi alls ekki átt skap saman
og Natan hafi komið fram við hana af mikilli hörku. Sigríður greindi
hins vegar frá því að Daníel Guðmundsson, vinnumaður Lárusar
vormssonar Beck á Geitaskarði í Langadal, hafi ætíð sofið hjá Agnesi
þegar hann hafi verið á Illugastöðum.184 Nærri mánuði fyrir morð -
brennuna, sennilega 9.–20. febrúar, dvaldist Daníel á Illuga stöðum
í um tíu daga til að hugsa um búpening á meðan Natan var á Geita -
skarði í lækningaferð. Daníel „viðkannast“ að utan tvær nætur „hafi
hann sofið … hjá Agnesi á nóttunni um þann 1½ viku tíma sem
hann á Illugastöðum hafi dvalið …“185 Samband Agnesar og
Daníels á ekki að koma á óvart því Agnes sagði sjálf „að til orða hafi
friðrik, agnes, sigríður og natan 51
Stephensens dómstjóra í viðey. Bréf til Magnúsar Stephensens dómstjóra frá
Þorvarði Jónssyni aðstoðarpresti á Breiðabólsstað, dags. 12. febrúar 1830. —
Höfundur þakkar Margréti Gunnarsdóttur sagnfræðingi fyrir að hafa bent á
þetta bréf. — Séra Þorvarður hafði áhuga á því strax eftir aftökuna 1830 að
skrifa stutta ævisögu Agnesar Magnúsdóttur og hann leitaði hófanna hjá
Magnúsi Stephensen dómstjóra um hugsanlega útgáfu en Magnús var um -
svifamikill í útgáfumálum og réð yfir einu prentsmiðju landsins. ekkert varð
af útgáfu slíks rits og engin frekari gögn þessu tengd finnast í Þjóðskjalasafni,
í handritadeild Landsbókasafns eða Héraðsskjalasafni Rangæinga og vestur-
Skaftfellinga en séra Þorvarður var prestur í Rangárvallasýslu og Skaftafells -
sýslu frá 1847 til dauðadags. Jafnframt var haft samband við afkomendur séra
Þorvarðar en ekkert efni þessu tengt var í þeirra fórum.
184 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Hún. GA/7, 2. 1827–1830. Dóma- og þingbók, bls. 244–
245.
185 Sama heimild, bls. 260–261.
186 Sama heimild, bls. 197.
187 Sbr. ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Hún. GA/7, 2. 1827–1830. Dóma- og þingbók, bls.
244–245 og 260.
188 Í bréfi Blöndals sýslumanns til Gríms Jónssonar amtmanns í júlí 1830 er lítil-
lega minnst á sambandsmálin en þar er ekkert sem bendir til þess að Agnes
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 51