Saga


Saga - 2016, Side 187

Saga - 2016, Side 187
hann að „fjölskylduskáldi“. Þessar tilviksrannsóknir sýna vel hvernig tæki- færiskvæði 17. aldar voru fær um að lýsa félagslegri stöðu og áliti hins liðna um leið og þau veittu einstaklingi huggun en þessi aðalhlutverk huggunar- bókmennta á árnýöld koma einmitt einkar vel fram í titli bókarinnar, Heiður og huggun. Í kafla 11 er greint frá tilurð kvæðanna, dreifingu og varðveislu í handritum og prentuðu máli og þar með að vissu leyti lagður grundvöllur að viðtökusögu þeirra, en síðan eru niðurstöður dregnar saman. Í viðauka I er fullkomin kvæðaskrá þar sem öll erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði 17. aldar eru talin upp, samtals 156 kvæði í a.m.k. 164 handritum, og sýnir sá mikli fjöldi mikilvægi bókmenntagreinarinnar. Þessi heildarskrá er afar gagnlegur grunnur til frekari rannsókna. Þar getur maður meðal annars séð hver afkastamestu skáldin í þessum kvæðagreinum voru. Bjarni Gissurar - son (1621–1712), prestur í Þingmúla í Skriðdal, orti til dæmis ekki færri en sextán ljóð af þessu tagi, tvö eftir 1700. en einnig létu Hallgrímur Pétursson (sex), Jón Magnússon (1601–1675) (sex) og Ólafur Jónsson (um 1560–1627), prestur á Söndum í Dýrafirði (sex), mjög til sín taka; eiríkur Árnason (d. 1587), sýslumaður á Skriðuklaustri, samdi „eina harmljóðið sem vitað er um frá 16. öld“ (bls. 355); Jón Guðmundsson (1558–1634), prestur í Hítardal á Mýrum, orti árið 1620 um látna eiginkonu sína, Guðríði Gísladóttur, harmljóð sem samanstendur af 124 ljóðlínum, „elsta kvæði á íslensku undir elegískum bragarhætti, sem er klassískur bragarháttur þar sem skiptist á hexametur og pentametur“ (bls. 377). Þórunn Sigurðardóttir hefur hér lagt mikið af mörkum, miklu meira en það sem snýr beint að hinni eiginlegu rannsókn, og því er óhætt að segja að hún hafi með verki sínu gefið tóninn hvað snertir rannsóknir á bókmenningu á árnýöld. Það er ekki aðeins að hún greini ótalmörg atriði í kvæðum, sem hún hefur valið til umfjöllunar af kostgæfni – og þar liggur ekki síst ávinn- ingur bókarinnar, heldur hefur hún einnig í köflum 2–4 tekist á við grund- vallarspurningar síðustu ára og áratuga sem lúta að rannsóknum á sögu bókmennta og menningar. Hér á eftir langar mig að ræða stuttlega þrjú athyglisverð atriði sem mér finnst skipta máli. Í fyrsta lagi er það hin svonefnda nýsöguhyggja (e. new historicism), sem er að því leyti heppileg til rannsókna á menningu fyrir nýöld að henni var fyrst beitt við umfjöllun um endurreisnartímann. Stephen Greenblatt, aðal- hugmyndasmiður þessarar stefnu, þróaði mikilvægar hugmyndir um menn ingu árnýaldar út frá verkum Shakespeares. Þórunn Sigurðardóttir nýtir sér kenningar nýsöguhyggju í viðleitni sinni til að setja erfiljóðin, harmljóðin og huggunarkvæðin í menningarsögulegt og félagslegt sam- hengi. Reyndar mætti spyrja hvort hún hefði þá ekki getað unnið aðeins nánar út frá aðferðum nýsöguhyggjunnar og til dæmis nýtt sér fleiri ljóð, prósatexta og aðra texta til að fá skýrari heildarmynd af bókmenntakerfinu á 17. öld. Hún minnist á nokkrum stöðum á fræðimenn á borð við Green - ritdómar 185 Saga vor 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:09 Page 185
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.