Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 72
70
Þorgeir Sigurðsson. Munnleg ummæli 20/5. 1978, nokkurn
veginn orðrétt:
Eftir að senan kom í skólann (1925–27) hljóp mikið líf í leiklistina.
Flutt voru árlega í mörg ár 2 stór leikrit á Hólmavík og oft smærri að
auki. Einkum eftir að Karl læknir (1922) og Finnur Magnússon (1924)
komu. Undraverð félagsstarfsemi á ekki stærri stað.
Þetta eru orð að sönnu. Hólmvíkingar og nágrannar sýndu á
þessum tíma Skugga-Svein og Ævintýri á gönguför hverjir í kapp við
aðra frá 1925 til 1931. Þorgeir tók mér vitanlega ekki þátt í
leikhúslífi staðarins sjálfur en var áhugasamur um það eins og
flest málefni sinnar heimabyggðar.
Þorkell Hjaltason kom allmikið við sögu söngs og leiklistar á
Hólmavík 1922–30. Hann er kominn af Söngva-Kela nafna sínum,
Þorkeli Ólafssyni (1738–1820), og erfði nafn hans og einnig söng-
röddina. Hann sagði mér undan og ofan af sínum afskiptum og
ýmsu sem hann mundi af þessum málum og eru upplýsingar frá
honum í þessum skrifum oft auðkenndar (Þ.Hj.).
Fyrsta hlutverk Þorkels var á Hörpuhátíð. Hann lék þar 14
barna móður, Maddömu Gabel, með tvo óþekktaranga hangandi
í pilsunum. Fékk lánaðan kjól hjá Helgu stóru. Það er til
glöggvunar um tímann að Karl læknir, sem kom til Hólmavíkur
1922, var þarna eitthvað að vasast í pönnukökum, því að veisla
mikil var haldin eftir sýninguna. Þorkell lék einnig í Spansk-
flugunni um þetta leyti, 1923–24. Þá lék hann skemmtilegt
hlutverk í ansi góðu stykki sem hét Hann drekkur. Skömmu áður
hafði Hallsteinn og Dóra, eftir Einar H. Kvaran, verið sýnt. Haraldur
Guðjónsson og Þorkell léku í því. Þar átti Haraldur að reika um
stórgrýti annars heims, hrasa þar og falla. Var grjótið svo útbúið
að ullarslattar voru settir í dökka poka. Illa gekk Haraldi að detta
um grjót þetta og flugu „stórbjörgin“ til og frá af tám hans um
sviðið en Haraldi skrikaði ekki fótur!
Helstu hlutverk Þorkels voru hins vegar Haraldur í Skugga-
Sveini 1925 og annar stúdentinn í Ævintýri á gönguför 1929. Til er
mynd af leikendunum. Jens Aðalsteinsson (Skrifta-Hans) og
Loftur Bjarnason (Pétur) neituðu þó að vera með á myndinni,
báru við illum klæðum! Ég veit ekki betur en Umf. Geislinn eldri
í Staðarsveitinni hafi staðið fyrir flestum þessum sýningum en get
þó ekki fullyrt neitt um það.