Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 75
73
Miðhúsum sem er eyðibýli vestan Víkurár. Það heitir Jónssel.
Munn mæli eru einn ig um býli er hét Bollastaðir nærri þeim
stað er kallast Vörðumelsflói. Þess ber að geta að Skarphéðinn
Jóhannsson, húsmaður í Guðlaugsvík 1893–1919, og kona hans,
Guðrún Sæmundsdóttir, byggðu lítinn bæ nálægt klettunum í
túnjaðrinum og kölluðu hann Kleifabæ. Sá bær var seldur á
uppboði 1919 og rifinn en byggður upp aftur á Hvamms tanga af
smið er hét Brynjólfur Gíslason.
Í Guðlaugsvík var viðkomustaður Strandarútunnar, sérleyfisins
til Hólmavíkur um árabil, og rekin bensín- og greiðasala um langa
hríð. Sú þjónusta og fyrirgreiðsla, sem ábúendur veittu, var með
miklum ágætum enda rómuð af þeim er hennar nutu.
Skálholtsvík
Skálholtsvík er gamalt býli sem var fyrrum í eigu Skálholts dóm-
kirkju. Frá því eignarhaldi er nafnið á bænum komið. Jörðin er
orðin bændaeign 1827, jafnvel fyrr. Bærinn stendur fyrir mynni
Víkurdals á nyrðri bakka Víkurár og fyrir miðri víkinni sem
bæirnir draga nafn sitt af. Þaðan er gott útsýni til hafs enda víkin
opin mót norðri. Til suðurs liggur Víkurdalur, grösugur, breiður
og langur með bröttum hlíðum. Vestan bæjar taka við stórir sléttir
Ljósm.: Lilja Sigurðardóttir.
Guðlaugsvíkurdrangur.