Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 77
75
Lýður Benediktsson
frá Kirkjubóli
Þrjár frásögur
Íþróttamót í Árneshreppi
Haustið 1956 var haldinn aðalfundur Héraðssambands Stranda-
manna. Á þeim fundi kom fram tillaga frá ungmennafélaginu
Leifi heppna í Árneshreppi þess efnis að næsta héraðsmót, þ.e.
íþróttamót, yrði haldið norður í Árneshreppi. Þessi til laga var
samþykkt. Venjan var að þessi mót væru haldin á Skelja víkur-
grundum, skammt frá Hólmavík, 17. júní ár hvert. Á þessum
fundi baðst formaður Héraðssambandsins, Ingimar Elíasson, sem
verið hafði formaður í mörg ár, undan endurkjöri. Í hans stað var
ég, Lýður Benediktsson frá Kirkjubóli, kjörinn formaður. Ég til-
kynnti formanni ungmennafélags Árneshrepps því um þessa niður-
stöðu og einnig formönnum annarra ungmennafélaga í sýslunni.
Á þessum árum var ég starfsmaður hjá Kaupfélagi Stein gríms-
fjarðar, Hólmavík.
Nú er ekki meira um þetta að segja fyrr en líða tók að næsta
vori. Þá fór ég að hugsa hvernig skyldi staðið að því að koma
íþróttafólki og öðrum sem áhuga hefðu á norður í Árneshrepp.
Ekkert vegasamband var norður og eina leiðin að fara sjóleið-
ina. Á Hólmavík voru tveir sæmilega stórir dekkbátar, Hilmir og
Brynjar, og hafði ég samband við skipstjóra þeirra sem tóku vel í
að flytja fólk norður. Ég hafði einnig samband við formenn ung-
mennafélaganna og bað þá að athuga um þátttöku. Þar var alls
staðar sama svarið: Í góðu veðri hefðu allmargir áhuga en í