Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202140
LÍFIÐ&SAGA
þeim að hafa svona mikinn hávaða.
Einn þeirra gekk þá að mér ansi
mannalegur og sagði, „but I am
Prince“. Ég hafði ekki hugmynd um
hver þetta var og svaraði „yes, and I
am a princess“.
Eftir að strákarnir voru farnir kom
í ljós að þetta voru tónlistarmaðurinn
Prince og vinir hans að skemmta sér.“
Ýtti öryggisverði út úr lyftunni
„Ólafur Noregskonungur kom hingað
oftar en einu sinni og hefð fyrir því
að ég fylgdi honum upp á svítuna.
Eitt sinn þegar Ólafur rennir í hlað
stöndum við Ingibjörg Ólafsdóttir,
fyrrverandi hótelstjóri, ægilega virðu-
legar hlið við hlið og bíðum hans.
Allt í einu snýr Ingibjörg sér að
mér og spyr mig hvort hún sé með
mjólkurskegg. Ég fæ náttúrlega hlát-
urskast. Í ofanálag fór lyftan ekki af
stað þegar við ætluðum upp þannig
að ég þurfti að ýta einum öryggis-
verðinum út.
Við vorum of þung fyrir lyftuna.
Ólafur hafði greinilega gaman
af þessu og hló, enda afalegur og
góður karl. Ég átti því mjög erfitt
með að hemja mig í lyftunni upp
með kónginum,“ segir Karen.
Hélt á öskubakka drottningarinnar
Hörður Sigurjónsson, fyrrverandi
gæða- og sölustjóri veitingasviðs
Hótel Sögu, hóf fyrst störf á Sögu sem
nemi í framreiðslu árið 1966. „Árið
1973, þegar Danadrottning kom í op-
inbera heimsókn til Kristjáns Eldjárn
og Halldóru, var haldin veisla fyrir
drottninguna í Súlnasalnum. Eins og
margir vita reykir Margrét Þórhildur
mikið og ég hafði það eina hlutverk
um kvöldið að standa, ekki allt of
nærri henni, með öskubakka og passa
að hún dræpi í sígarettunum í honum.“
Johnson harður í prúttinu
Þegar Lyndon B. Johnson, þáverandi
varaforseti Bandaríkjanna, gisti á Sögu
voru uppi miklar varúðarráðstafanir.
Haukur Gunnarsson í Rammagerðinni
var fenginn til að koma með
minjagripi á hótelið til þess að
Konráð Guðmundsson hótelstjóri og Ella Fitzgerald á Sögu í febrúar 1962, en hún hélt ferna tónleika í Háskólabíói.
Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Manlio Brosio, framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins, þakkar Ragnari
Sigurðssyni fyrir að bjarga Natofánanum. Í frétt Morgunblaðsins 27. júní
1968 sagði að ungur kommúnisti hafi gert tilraun til að ræna og svívirða fána
Atlantshafsbandalagsins þar sem hann blakti við Hótel Sögu. Fyrir snarræði
hótelssveins varð ekki af fyrirætluninni. Hótelsveinninn Ragnar heldur hér
á borðfána sem Brosio færði honum í viðurkenningarskyni. Mynd / Ól. K. M.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar var fastur liður í skemmtanalífi landsmanna í fjölda ára með spilamennsku sinni í Súlnasal Hótel Sögu. Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Beatrix Wilhelmina Armgard Hollandsdrottning og prins Claus.
Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Norodom Sihanouk, konungur Kambó-
díu og forseti útlagastjórnar landsins á
meðan það var hernumið. Með honum
er Ólafur Egilsson, þá starfandi ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins.
Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Kurt Waldheim, sem var aðalritari Sameinuðu þjóðanna á árunum 1972 til
1981, ritar nafn sitt í gestabók hótelsins undir vökulum augum Konráðs
hótelstjóra. Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Hussein Jórdaníukonungur á Hótel
Sögu. Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Bandarísk geimfaraefni komu til Íslands í júní 1967 til æfinga í Öskjuhrauni
vegna undirbúnings ferða til tunglsins. Að sjálfsögðu gistu þeir á Hótel Sögu,
en í þessum hópi voru fyrstu jarðarbúarnir sem lentu síðar á tunglinu 20. júlí
1969 í leiðangri Appolo 11. Það voru þeir Neil Armstrong og Edwin Aldrin, en
með þeim í tunglferðinni var Michael Collins, sem beið í geimfarinu á braut
um tunglið á meðan félagar hans lentu á yfirborði þess.