Bændablaðið - 16.12.2021, Side 48

Bændablaðið - 16.12.2021, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202148 Nýi dýralæknaskólinn við Aberystwyth-háskóla í Wales (Aberystwyth University), var formlega opnaður þann 10. des- ember síðastliðinn af Karli prins af Wales. Reyndar hófst kennsla í skólanum nú í september. Skólabyggingin þar sem nýi dýralæknaskólinn er til húsa er Íslendingum ekki að öllu ókunn- ug. Þar stundaði dr. Ólafur R. Dýrmundsson m.a. nám og var um tíma skólabróðir Karls Bretaprins. Ólafur sagði í samtali við Bændablaðið að svo skemmti- lega vilji til að þegar Karl opnaði formlega dýralæknaskólann hafi hann ritað nafn sitt í sömu gesta- bók og hann skrifaði í á vormiss- erinu 1969 þegar hann nam velsku og velska sögu í Aberystwyth. Það var rétt áður en hann var krýndur af Elísabetu II Bretlandsdrottningu sem 21. prinsinn af Wales við athöfn í Caernarfon-kastala í Norður-Wales í byrjun júlí það ár. Karl prins gamall skólabróðir dr. Ólafs R. Dýrmundssonar „Þarna, vorið 1969, var hann skóla- bróðir minn um skeið og bæði ég og Svana töluðum við hann í boði hjá British Council rétt eftir að hann kom í skólann. Skemmtilegt spjall. Síðar kom hann nokkrum sinnum í laxveiði í Vopnafjörð eins og segir í bókinni Guðni á ferð og flugi. Karl er, og hefur lengi verið, með lífrænan búskap á einni af jörðum bresku krúnunnar í Englandi og hefur gott vit á landbúnaði. Sá hann t.d. og heyrði flytja prýðilegt erindi um framtíð landbúnaðar á Terra Madre hjá Slow Food í Tórínó á Ítalíu rétt upp úr aldamótunum,“ segir Ólafur. Þá bendir Ólafur á að hluti sjón- varpsþáttanna Crown um bresku konungsfjölskylduna, þ.e. í þættin- um um dvöl Karls í Aberystwyth, hafi var tekinn í gömlu háskóla- byggingunni. Hann segir að þau hjón hafi þó ekki verið ánægð með aulaháttinn sem þekktur breskur leikari var látinn sýna í hlutverki Karls þarna í háskólanum. Þau hafi haft allt aðra mynd af Karli. „Hann var öruggur í framkomu og átti auðvelt með að ræða við okkur, spurði m.a. um laxveiði á Íslandi sem hann átti síðar eftir að kynnast sjálfur,“ segir Ólafur. Tvö ár í Aberystwyth og þrjú í Hertfordshire Ólafur hefur lengi verið tengiliður (Alumni Representative) Háskól- ans í Aberystwyth við Ísland. Hann segir að dýralækna náminu sé þannig háttað að dýralækna nemarnir taka tvö fyrstu árin í nýja skólanum í Aberystwyth og síðan þrjú ár í dýralæknaskólanum í Hawkshead í Hertfordshire í Englandi. Þar sem hér á landi sé skortur á dýralæknum, þá veltir Ólafur fyrir sér hvort ekki sé kjörið fyrir íslenska stúdenta sem hyggja á dýralækn- ingar að skoða þessa nýju námsbraut við dýralæknaskólann í Wales. Hann segist þó ekki vita til að íslensk- ir dýralæknar hafi stundað nám í Wales. Hins vegar hafi nokkrir lokið sínu námi í Skotlandi og Englandi en flestir á Norðurlöndunum og í Þýskalandi. Ólafur ritaði grein í Bændablaðið í apríl á síðasta ári um þá ákvörðun Aberystwyth-háskóla í Wales þann 28. febrúar 2020 að opna nýjan dýralæknaskóla. Þá var gert ráð fyrir að skólinn tæki við fyrstu nemendunum í september 2021 og gekk það eftir. Segir Ólafur að í Aberystwyth hafi verið búvísindanám á háskóla- stigi síðan árið 1878 en háskóli var stofnaður þar árið 1872. Því eigi kennsla og rannsóknir í þágu landbúnaðar sér langa sögu í Aberystwyth, bæði á sviðum búfjárræktar og jarðræktar, enda Wales þekkt innan Bretlandseyja fyrir blómlegar sveitir og mikla matvælaframleiðslu af ýmsu tagi. Síðan segir í grein Ólafs: Mikil reynsla að baki „Reyndar er liðin rúmlega öld síðan rannsóknir á búfjársjúkdómum og kennsla um þá hófst í tengslum við búvísindanámið í Aberystwyth og dýralæknar hafa lengi verið á meðal kennaraliðsins. Naut höfundur góðs af á námsárunum í Aberystwyth 1966-1972. Ákveðið skref var stigið í september 2015 þegar stofnað var til sérstakrar þriggja ára B.Sc. náms- brautar í lífvísindum með áherslu á dýrasjúkdóma. Próf af henni hefur gefið góða starfsmöguleika og er sagt prýðilegur undir búningur undir námið í nýja dýralæknaskólanum. Nú hefur skrefið verið stigið til fulls með stofnun fyrsta dýralæknaskól- ans í Wales en til þessa hafa þeir næstu verið í Liverpool og Bristol í Englandi.“ „Þú getur kallað okkur Aber“ Að sögn Ólafs nýtur Aberystwyth mikil álits á Bretlandseyjum. Bæði árin 2018 og 2019 fékk hann sér- staka viðurkenningu vegna gæða kennslunnar og 2020 hlaut hann viðurkenningu sem besti háskólinn í Wales (The Sunday Times Good University Guide). Þá fékk hann árið 2019 næsthæstu einkunn allra breskra háskóla fyrir ánægju nem- enda með námið og aðstöðu til þess (National Student Survey). Þar hefur skólinn reyndar verið í efstu sætum árin 2018, 2019 og 2020. Stjórnendur háskólans eru samt ekkert að láta hlutina stíga sér til höfuðs eða taka upphefðina of formlega, því á heima- síðu skólans segir: „Við erum Aberystwyth-háskóli, en þú getur kallað okkur Aber.“ /HKr. UTAN ÚR HEIMI Nýi dýralæknaskólinn við Háskólann í Aberystwyth í Wales formlega opnaður: Byggir á sögu háskóla sem þekktur er fyrir gæði í kennslu og ánægju nemenda – Skólinn þar sem dr. Ólafur R. Dýrmundsson og Karl Bretaprins voru um tíma skólabræður Svanfríður S. Óskarsdóttir og Ólafur Dýrmundsson í Wales 1969. Í baksýn er Háskólinn í Aberystwyth. Bætt hefur verið við nýjum byggingum vegna nýja dýralæknaskólans en hann er allur á Penglais Hill þar sem Ólafur nam og stundaði sauðfjárrannsóknir forðum daga. Mynd / Úr einkasafni Karl Bretaprins við formlega opnun dýralæknaskólans í Aberystwyh. Mynd / Aberystwyth University Karl krýndur sem prinsinn af Wales í Caernafon-kastala í júlí árið 1969. Kastalanafnið Caernarfon er velska, en á ensku var kastalinn og bærinn sem hann stendur í oft skrifaðir með vaffi (v) og nefndir Caernarvon, en því hefur að mestu verið hætt. Gamla skólabygging Aberystwyth-háskóla í Wales.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.