Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 79

Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 79
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 79 Ein af fimm helstu ógnum við líf- fræðilega fjölbreytni í heiminum í dag er ágengar framandi lífverur. Þetta kemur fram í mjög svartri og umfangsmikilli skýrslu milli- ríkjanefndar Sameinuðu þjóð anna um líffræðilega fjöl breytni og þjón- ustu vistkerfa (IPBES) um stöðu vistkerfa sem kom út árið 2019. Samkvæmt 65. gr. náttúru­ verndar laga skal sá sem ber ábyrgð á dreifingu lifandi lífvera gæta sér­ stakrar varúðar til að koma í veg fyrir að dreifingin dragi úr líffræðilegri fjölbreytni lífríkis ins sem fyrir er. Hafa skal í huga að það er langein­ faldast og langódýrast að eiga við mögulega ágengar tegundir áður en þær fara í veldisvöxt og auðvitað væri langbest að flytja mögulega ágengar tegundir yfirhöfuð ekki á milli landa. Hafa ber varúðarregluna í huga og horfa til nágrannalanda sem hafa ratað í vandræði með ágengar tegundir í vistkerfum sínum. Tilfinningaþrunginn ágreiningur Ljóst er að uppi eru mjög mismunandi skoðanir á því hvort gróðursetning og dreifing nokkurra trjátegunda hér á landi muni draga úr líffræðilegri fjölbreytni og skaða þannig okkar viðkvæmu náttúru þegar fram líða stundir. Ágreiningurinn er ekki aðeins bundinn við einstaklinga sem hafa áhuga á náttúruvernd og landbótum eða fræðimenn á sviði skógræktar og líffræði, heldur nær hann einnig til stofnana ríkisins. Ágreiningurinn hvílir sem skuggi á umræðu um upp­ græðslu og endurheimt vistkerfa. Ég er sjálfur áhugamaður um skógrækt og landgræðslu, hef gróður­ sett framandi trjátegundir undanfarna áratugi og talið þær afar gagnlegar. Með vaxandi þekkingu um hugsan­ leg neikvæð áhrif þeirra finnst mér nauðsynlegt að staldrað sé við til að hlusta á raddir aðila sem hvað mesta þekkingu hafa á náttúru landsins. Ég skil að þetta viðhorf valdi tilfinninga­ legu uppnámi hjá ræktunarfólki sem kann að meta kosti margra framandi tegunda. En getum við leyft okkur að hunsa vísindin? Brýnt að fá leiðbeiningar Áform um endurheimt vistkerfa eru umfangsmeiri nú en áður og meira fjármagni er ráðstafað úr sameigin­ legum sjóðum landsmanna til þessa mikilvæga viðfangsefnis, bæði til að binda kolefni og bæta landkosti. Þetta er eitt áhersluatriða í stjórnar­ sáttmála núverandi ríkisstjórnar. Við þessa endurheimt er áformað að nýta fjölmargar erlendar tegundir, til að mynda bæði stafafuru og sitkagreni, sem hafa reynst öflugar tegundir til skógræktar á Íslandi. Aldrei hefur því verið brýnna að afla skýrra leiðbeininga um notkun framandi tegunda sem hugsanlega eru ágengar, leiðbeininga sem byggja á bestu vísindalegri þekkingu og var­ úðarreglunni. Hér þarf að beita vís­ indalegri þekkingu og allir málsaðilar þurfa að koma upp úr skotgröfun­ um. Leiðarstefið ætti að vera opið og fordómalaust samtal um líffræðilega fjölbreytni. Þetta er viðfangsefni sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér að leysa. Í nýlegum stjórnarsáttmála er áréttað að endurskoða þurfi stefnu um líf­ fræðilega fölbreytni. Beitum vísindunum Ísland á aðild að gagnagrunninum NOBANIS sem var stofnaður fyrir tilstuðlan Norrænu ráðherranefndar­ innar. Þar er sitkagreni skilgreint sem ágeng tegund í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og mögulega ágeng tegund á Írlandi. Stafafuru hefur verið lýst sem einni ágengustu trjátegund jarðar og í NOBANIS er hún er skil­ greind sem framandi ágeng tegund í Danmörku og Svíþjóð og sem mögu­ lega ágeng tegund á Írlandi, Noregi og á Íslandi. Ýmsar aðrar rannsóknir og reglur sem beitt er erlendis styðja þá tilgátu að framangreindar tegundir geti verið ágengar. Ný rannsókn Pawel Wasowicz, grasafræðings hjá Náttúrufræðistofnun, ber að sama brunni. Leysum ágreining Stjórn Landverndar telur, að í ljósi þess að fram hafa komið rökstuddar ábendingar um að stafafura og sitkagreni kunni mögulega að verða ágengar í íslenskri náttúru, sé bæði gagnlegt og nauðsynlegt að setja fram leiðbeinandi reglur um notkun þeirra. Stjórn Landverndar hefur því sent erindi til stjórnvalda með ósk um að þau beiti sér fyrir því að stafafura og sitkagreni, verði tekin til umfjöllunar og mats hjá sérfræðinganefnd um inn­ flutning og ræktun útlendra plöntu­ tegunda og hjá Umhverfisstofnun. Jafnframt er mælst til þess að nefndin greini hvort tilefni sé til að setja skil­ yrði fyrir ræktun stafafuru og sitka­ grenis og í kjölfarið vinna leiðbein­ andi reglur um notkun þeirra. Við erum sannfærð um að viðfangsefnið sé vel leysanlegt. Yfirveguð ákvörðun sem byggð er á vísindum er lykillinn að ásættanlegri lausn fyrir alla aðila. Tryggvi Felixson, formaður Landverndar LÍF&STARF HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á Íslandi þann 11. júní. • Steinsagir • Kjarnaborvélar • Jarðvegsþjöppur • Sagarblöð • Kjarnaborar Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur Opið mán. - fös. kl. 8-17. S. 588-0028 haverslun@haverslun.is haverslun.is Þjónustuverkstæði og varahlutir Husqvarna K970 15,5 cm sögunardýpt Husqvarna K3600 Vökvasög Sögunardýpt 27cm Íslenskar gjafagrindur Vélsmiðja Ingvars Guðna ehf. Vatnsenda Flóahreppi vig.is - vig@vig.is - S: 486 1810 Bendum á söluaðila okkar um land allt, www.vig.is ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í 20 ÁR. LESENDARÝNI Sýnum fyrirhyggju – metum áhrif stafafuru og sitkagrenis Tryggvi Felixson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.