Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Page 11

Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Page 11
og stunda síðar framhaldsnám. Síðast en ekki síz'c bar á góma þau vandamál, sem sérhverjir foreldrar eiga sífellt við að etja þ. e. a. s. uppeldi og staða barnsins innan fjölskyldunnar svo og næsta nágrennis. Þar koma til greina ýmis vandamál varð- andi félagsleg tengsl og einnig á unglings- árunum afstaða hinna fötluðu til gagn- stæða kynsins. Að vega og meta framtíðar- möguleika barnsins, sem fullvaxta rnann- eskju, reynist þó einatt mestur vandinn. Námskeiðið leiddi í ljós, að foreldrarnir höfðu hverjir fyrir sig strítt við erfiðleik- ana án sambands við aðra, og þeirri vitn- eskju um réttindi og skyldur, sem þeir höfðu aflað sér, var mjög ábótavant. Sú meðhöndlun, sem börnin höfðu hlotið, var mjög mismunandi, allt frá takmarkalausri ofvernd og dekri til þess, að þeim var ýtt til hliðar og mismunað á ýmsan veg innan fjölskyldunnar vegna þess, að foreldrarnir skömmuðust sín fyrir þau. Árið 1968 voru haldin fleiri sumarbúða- námskeið og þróunin varð sú, að 1971 voru um það bil 59 námskeið haldin víðs- vegar um landið. Og núna 1972 fjölgar þessum námskeiðum enn. Það hefur sýnt sig, að þörfin á þessari upplýsingaþjón- ustu er brýnust í afskekktustu og fá- mennustu byggðarlögunum, og því hefur áherzla verið lögð á fræðslunámskeið þar. Þátttaka hefur verið geysileg og banda- lagið norska hefur þegar haft samband við á að gizka 4000 foreldra á vegum þess- ara námskeiða. Árangur alls þessa hef- ur komið greinilega í ljós með ýmsum hætti. Reynt er að haga því svo til, að byrjun- arfræðslan sé veitt á helgarnámskeiðum. Foreldrarnir koma á föstudagskvöldi eða laugardagsmorgni, og fræðslu lýkur síð- degis að sunnudeginum. Þetta nægir til þess að gefa foreldrunum heildarsýn yfir þau vandamál, sem hér hefur verið vikið að og jafnframt þá afstöðu og sjónarmið, sem ríkjandi eru af hálfu örorkumálafull- trúanna og þann íhlutunar- og ákvörð- unarrétt, sem þessir fulltrúar verða að eiga um skipan þjóðfélagsmála. Segja má, að næsti hlekkur þessarar fræðslukeðju sé sérhæfðari og miði einkum að því að hjálpa foreldrunum að leysa ýmsan fjöl- skyldu- og umhverfisvanda, veita þeim betri innsýn í sálræn viðhorf hins fatl- aða innan veggja heimilisins, í hópi æsku- og skólafélaga, og síðar hinna fullorðnu. Ýmis atriði, sem varða hagkvæma inn- réttingu húsnæðis, skipulagningu um- hverfis og opinberra bygginga í því augna- miði að ryðja úr vegi margskonar umferð- artálmunum, svo og það sérnám og upp- eldishlutverk, sem skólarnir geta veitt og gegnt — allt eru þetta atriði, sem foreldr- ar, fagmenn og viðkomandi yfirvöld þurfa að ræða grandgæfilega saman. Atvinnu- möguleikar eru einnig breiður og mikil- vægur umræðugrundvöllur. Framhaldsfræðslu má skipta í helgar- námskeið eða námskeið, sem vara viku eða lengur, eftir atvikum. Lengri nám- skeiðin eru ekki aðeins í því fólgin, að foreldrarnir hittast í leyfum sínum og hlusta á fyrirlestra og taka þátt í um- sjálfsbjörg 11

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.