Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 18

Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 18
hún hafði dælt í sig. Ég vildi gjarna þola slíka drykkju. Enda fannst mér hún hafa stækkað frá því í gærkvöld, þanist öll út. Það var eins og hún væri komin á steyp- irinn. Það yrði þokkalegt, þegar hún yrði léttari. Ég gat ekki hugsað það til enda. Frjósemi þessara kvikinda er alveg dæma- laus. — En í vinnuna varð ég að fara. En hún skyldi ekki með. Nóg var nú samt. Ég reyndi að laumast frá henni, þar sem hún spókaði sig á logarauðum gýg Heklu eftir Matthías. En það tókst samt ekki, því að í strætisvagninum var hún á iði bak við eyrað á mér. Það, sem ég skammaðist mín. Allir hlutu að sjá hana. Mér fannst far- þegarnir stara á mig. Næst beit hún mig undir buxnastrengnum, og ég lét hana vera. Þar sást hún þó ekki. En notalegheit- in, tölum ekki um það. Allan daginn var ég að kiða mér og aka eins og kláðagemling- ur. Ég hafði engan blívanlegan frið. Þanng gekk þetta í hálfan mánuð. Ég var að tapa glórunni. Og þennan dag sagði ég upp á skrifstofunni og ákvað að helga stríðinu við flóna allan tíma minn og hug- vit. Annað hvort okkar skyldi liggja. Ég hafði upphugsað margskonar vopn fyrir lokaáhlaupið og gekk með lista yfir þau í búðir, en úrvalið var ekki mikið. Ég keypti sleggju til að knalla hana með. Ryksugu, ef hægt væri að soga hana upp. Bílfjöður, járnkall og haka til áslátt- ar. Og ég tók með heim járntunnu fulla af tjöruhampi, ef takast mætti að bræla hana út. Einnig keypti ég margt smærri vopna, sem henta betur í létthernaði, svo sem golfkúlur, badmintonspaða og ýmis- konar mottur og klúta, er gefa þung högg á stærri fleti. Teygisnúrur hafði ég með, einnig handöxi, hamar og sög. Blásýru keypti ég fyrir 27 krónur, til að skvetta, loks eter á glasi til að deyfa svínið, ef hægt væri. Sportmaður gaf mér að lokum skammbyssu og sextíu skot. Nú skyldi gengið til verks. Kvöldið var óvenju rólegt, þó bar hana við hvítan grunn, er ég hrærði skyrið, og gaf mér trukk í hnakkann, er ég hellti upp á könnuna. En það var ekki fyrr en ég var háttaður, að hún hóf sókn fyrir alvöru. Og nú var hún á mörgum stöðum í einu. Á skrokknum á mér. f rúminu og upp um öll þil. Hún fór jafnvel einu sinni á kaf upp í aðra nösina á mér. — Þá var ég höndum seinni að lykta af eter-glasinu og svæfa hana þar. Þá skyldi ég með gleði hafa snýtt mér beint í eldinn. En nú hóf ég áhlaupið. Ég beitti fyrst hinum léttari vopnum af mikilli íþrótt, kúlum, spöðum og klútum. Síðan fór ég yfirferð með hin þyngri vopnin, lamdi allt, malaði og braut. En allt kom fyrir ekki. Hún virtist sprækari og sprækari. Þá skvetti ég blásýrunni í rúmið og á veggina og braut eter-glasið inni í stof- unni. Kveikti þar næst í tjöruhampinum, svo að íbúðin fylltist stækum reyk. Og til frekara öryggis skaut ég öllum þess- um 60 skotum inn í bræluna. Ég óskaði, að Kaninn hefði verið búinn að sanna gildi atómsprengjunnar, þegar þetta var. Ég hefði sprengt hana þarna inni. Ég var kominn í skap til þess. En nú varð ég að forða mér út, til þess að kafna ekki sjálfur. Ég settist yzt á lóðina og horfði á viðurstyggð eyðilegg- ingarinnar: Sundurskotnar rúður og sprungna veggi, sem grágulur tjörureyk- urinn þrengdi sér út um. En þó var mér til huggunar, að einhvers staðar á þess- um vígvelli, hlaut hið blóðþyrsta, kol- svarta kvikindi að liggja, marin, steikt eða svæfð og kæfð, milli limlestra hús- gagnanna. Gat nokkurt líf tórt í þessum 18 SJÁLFSBJÖRG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.