Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 6
Þau höfðu mjög góðan málstað og við erum bara mjög þakklát fyrir að þau voru tilbúin í samkomulag. Gísli H. Halldórs­ son, bæjarstjóri í Árborg ninarichter@frettabladid.is KÍNA Litlar og óætar máltíðir eru meðal þess sem ólánsamir Ólympíu- íþróttamenn hafa þurft að upplifa, smitist þeir af kórónaveirunni á Ólympíuleikunum í Peking. Þátt- takendur á leikunum hafa nú hafið að tjá sig opinberlega um aðstæður keppenda sem þeir segja óboðlegar, og segja aðbúnað smitaðra gera slæmt ástand mun verra. Farsóttarhótel á Ólympíuleik- unum í Peking hafa sætt harðri gagnrýni keppenda og aðstandenda þeirra á Vetrarólympíuleikunum sem fara nú fram. Þá hafa smitaðir íþróttamenn verið settir í sóttkví á hótel sem keppnislið þeirra hafa ekki aðgang að, á meðan aðrir keppendur hafa fengið að einangra sig innan Ólympíuþorpsins. Maturinn er sagður óboðlegur, en hann ku vera sérmerktur þeim sem eru keppendur, til að starfsfólk geti aðgreint matinn frá máltíðum ann- arra Ólympíufara. Valeria Vasnetsova, fulltrúi Rússa í gönguskotfimi, sagðist í samtali við Time hafa verið sárhungruð í sóttkvínni og hafa grátið á hverjum degi undan matnum, sem hún sagði óætan og næringar snauðan. Vasetsnova hélt því fram að keppendur fengju síðri mat, og því til stuðnings reiddi hún fram gögn sem sýndu matseðil læknis rúss- neska liðsins, sem einnig lá smitaður á sama farsóttarhóteli. Læknirinn fékk ferska ávexti og grænmeti, á meðan hún fékk þurrt pasta. Stjórn- endur leikanna hafa að sögn brugðist við gagnrýninni og eftir að íþrótta- konan tjáði sig opinberlega fékk hún betri mat og keppnishjól inn á her- bergið til að halda sér í formi. n Sakar stjórnendur Ólympíuleikanna um að svelta smitaða keppendur Rússneskur keppandi í gönguskot­ fimi sakar stjórnendur Vetrarólympíu­ leikanna um að svelta smitaða keppendur sem dvelja á far­ sóttarhótelum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA TIL VERKEFNA Í FERÐAÞJÓNUSTU Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrk. Skulu verkefnin fela í sér samstarf milli aðila í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Dæmi um verkefni sem NATA styrkir eru: · Til nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna · Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna · Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila · Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar Hámarksstyrkur til verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðaráætlunar. TIL KYNNIS- OG NÁMSFERÐA Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 2.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og 1.000 danskar krónur vegna ferða á milli Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds. Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra: · Skóla · Íþróttahópa · Tónlistarhópa · Annars menningarsamstarfs Styrkir frá NATA Samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja á sviði ferðamála Stjórn NATA mun árið 2022 líta sérstaklega til umsókna þar sem áhersla er á endurræsingu ferðaþjónustunnar eftir Covid-19, sjálfbærni og stafræna væðingu í ferðaþjónustu. Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum á ensku og dönsku er að finna á vef NATA www.nata.is. Frekari upplýsingar veitir Erla Weihe Johannesen hjá NATA – nata@vinnuframi.fo Lokafrestur til að skila umsókn er 2. mars 2022. Niðurstaða stjórnar NATA mun liggja fyrir 31. mars 2022. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 31. mars 2022 teljast ekki styrkhæf. NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Nýbyggt fjórbýlishús á Selfossi stangast á við fjölmarga skil- mála og hefur byggingarleyfi þess verið fellt úr gildi. Bæjar- stjórinn segir samkomulag í augsýn og kveðst þakklátur þeim sem kærðu fyrir að koma til móts við bæinn. gar@frettabladid.is S K IPUL AG S M ÁL „Vissulega var gengið á þann rétt sem nágrann- arnir áttu um að koma á framfæri sínum skoðunum og fá tekið tillit til þeirra,“ segir Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg, um byggingar- leyfi fyrir fjórbýlishúsi sem fellt var úr gildi eftir kæru frá eigendum nærliggjandi húsa. Fjórbýlishús var byggt á lóðinni Fagurgerði 12 á Selfossi að fengnu byggingarleyfi frá sveitarfélaginu Árborg sem hafði þá samþykkt að stækka byggingarreit lóðarinnar fyrir lóðina sem áður var ætluð fyrir einbýlishús eins og er á nærliggjandi lóðum. Nágrannarnir kærðu málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í fyrrasumar. Sögðu þeir upplýsingar til þeirra hafa verið „ófullnægjandi og beinlínis blekkjandi“, eins og segir í umfjöll- un nefndarinnar. Þeir fallist ekki á að skipulagsbreytingin fyrir lóðina hafi talist vera óveruleg eins og sveitarfélagið hafi kynnt fyrir þeim. Nýja húsinu myndi fylgja aukið umferðarálag og ónæði fyrir aðra í hverfinu. Við meðferð málsins kváðust nágrannarnir telja að sveitarfélagið hefði ekki aðeins brotið skipulags- lög heldur einnig stjórnsýslulög og upplýsingalög. „Sveitarfélagið Árborg hafi unnið að þessu máli með ámælisverðum hætti og að engu haft eigin samþykktir og laga- skyldur um viðbrögð og svör vegna andmæla kærenda,“ segir í umfjöll- un úrskurðarnefndarinnar. Samkomulag bæjarins við nágranna sem kærðu á Selfossi sagt í sjónmáli Íbúar Fagur­ gerðis 12 á Sel­ fossi geta andað léttar þegar samkomulag bæjarins við nágranna þeirra verður að veru­ leika. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Sveitarfélagið krafðist þess að málinu yrði vísað frá úrskurðar- nefndinni vegna þess að kæru- frestur hefði verið löngu liðinn. Þá væri byggingarleyfið ekki ógildan- legt þrátt fyrir óverulega annmarka á málsmeðferðinni. Leyfið hefði ekki neikvæð áhrif á hagsmuni lóðarhafa aðliggjandi lóða og stækkun á bygg- ingarreitnum ekki heldur. Því hafi ekki verið nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi. Umferðarálag aukist ekki umfram það sem eðlilegt sé vegna framkvæmda á lóð sem hafi frá upphafi verið ætluð undir íbúðar- húsnæði. „Með hinu kærða byggingarleyfi er vikið frá gildandi deiliskipulagi meðal annars hvað varðar stærð byggingarreits, nýtingarhlutfall umræddrar lóðar og fjölda íbúða á lóð. Er óhjákvæmilegt að sú breyting hafi einhver grenndaráhrif gagnvart næstu fasteignum og kemur því ekki til álita að víkja frá skilmálum gild- andi deiliskipulags í þessu tilviki,“ segir í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi byggingarleyfið því úr gildi. Gísli segir að nú þurfi að ljúka lög- mætu deiliskipulagi fyrir svæðið í kring í heild áður en hægt sé að gefa út byggingarleyfi fyrir Fagurgerði 12. Ein forsenda þess sé að sátt við nágrannana sem nú sé í augsýn verði samþykkt. „Þau höfðu mjög góðan málstað og við erum bara mjög þakklát fyrir að þau voru tilbúin í samkomulag,“ segir hann. Þá útskýrir bæjarstjórinn að nágrannarnir hefðu getað staðið fast á sínum rétti og að þá væri uppi óvissa um hvort leysa mætti málið með gerð nýs deiliskipulags og útgáfu nýs byggingarleyfis. Jafnvel væri þá hætta á að rífa þyrfti fjór- býlishúsið en samkomulagið greiði leið fyrir því að svo þurfi ekki að verða. „Þau hafa verið mjög sann- gjörn í þessum viðræðum.“ n bth@frettabladid.is LOFTSLAGSMÁL Evrópskir vísinda- menn segja að ný tækni við þróun kjarnasamruna geti skipt sköpum í umhverfisvænu tilliti. BBC segir að JET-rannsóknar- stofan í Bretlandi hafi slegið met í orkunýtingu með því að láta tvær tegundir vetnis vinna saman með nýjum hætti. Vonir hafi vaknað um að geta skapað miklar birgðir af lágkolefnisorku en þó með lítilli geislun. Hermt er að ef framhald tilrauna lofi góðu geti það gagnast loftslags- málum mjög. n Vekur von í loftslagsmálum thorvaldur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Ríki og borg ætla að vinna áfram þétt og náið að rann- sókn vöggustofumálsins. Þetta kom fram á fundi fulltrúa forsætisráðu- neytisins og borgaryfirvalda í gær. Spurður að því hvort ríkið muni ekki eiga beina aðkomu að rann- sókn málsins en greiði götu borgar- innar segir Þorsteinn Gunnarsson borgarritari svo vera. „Við teljum að það væri mjög gott fyrir sveitarfélögin ef löggjafinn byggi til heildstæða lagaumgjörð ef sveitarfélögunum er ætlað að standa að skipun svona rannsókn- arnefnda,“ segir hann. „Svo ekki sé verið að bregðast við í hvert skipti sem málið kemur upp.“ n Vinna saman að vöggustofumáli Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari 6 Fréttir 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.