Fréttablaðið - 25.02.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 25.02.2022, Síða 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Merkilegt hvað sumir geta vanist fjötrum, jafnvel svo mjög að þeir vilji helst ekki losna við þá. Yfirgangur Rússa gagnvart frjálsri og fullvalda þjóð er ein mesta ógn vestrænna lýðræðis- ríkja og Evrópu í langan tíma. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Loks kom að því að þjóðin endurheimti frelsi sitt. Það hefði mátt gerast mun fyrr. Þótt flestir fagni fer hið nýfengna frelsi ekki vel í aðra sem telja að verið sé að fara of geyst í að færa fólki aftur sjálf- sögð mannréttindi sín. Merkilegt hvað sumir geta vanist fjötrum, jafnvel svo mjög að þeir vilji helst ekki losna við þá. Covid hefur sýnt okkur að það er auðvelt að hræða fólk og fá það til að sætta sig við frelsis- sviptingu. Það er hrollvekjandi þegar okkur er sagt að ef bakslag verði þá blasi hin sjálfsagða lausn við: sem sagt sú að hverfa aftur til lífs þar sem höft og bönn gilda og eiga að vera okkur öllum fyrir bestu. Það er ekki mikil von til að yfirvöld viður- kenni að sóttvarnaaðgerðir vegna Covid hafi verið langt umfram það sem nauðsynlegt var. Seinni tímar munu þó kveða harðan dóm yfir þeirri harðneskju sem beitt var vegna farsóttar sem var sannarlega ekki að stráfella fólk. Hug- myndir um að nota sömu aðferðir við álíka pestum mega ekki verða að veruleika. Frasinn: „Það er skylda stjórnvalda að vernda líf og heilsu landsmanna,“ hefur heyrst all- mörgum sinnum á Covid-tímanum. Á sama tíma sýndu stjórnvöld litla umhyggju gagnvart andlegri heilsu landsmanna. Alls kyns hræðslu- áróður var grasserandi og margir tóku hann inn á sig. Stjórnvöld hefðu betur róað þjóðina. ■ Frelsi á ný Þingmaður Samfylkingarinnar beindi nýlega fyrirspurn til umhverfisráðherra. Hún hljóðar svo: „Hvaða aðgerðir hyggst ríkisstjórnin ráðast í til að draga úr bílaumferð og sporna gegn fjölgun bíla á kjörtímabilinu?“ Enn einu sinni þakkar maður almættinu fyrir að Samfylkingin skuli ekki vera í ríkis- stjórn. Vitanlega á fólk sjálft að ráða því hvort það ferðast í bíl sínum eða notar aðra ferða- máta. Vill Samfylkingin setja kvóta á bílasölu í landinu og er hún kannski með hugmyndir um auknar álögur á bíleigendur? Hafi Sam- fylkingin ekkert annað fram að færa en forsjár- hyggjuna á hún ekkert erindi við almenning. Sú sem þetta skrifar veit ekki hvort umhverf- isráðherra hefur svarað fyrirspurninni. Hafi hann gert það hefur svarið vonandi verið á þá leið að ríkisstjórnin skipti sér ekki af bílaeign landsmanna. Eigi ráðherrann eftir að svara fyrirspurninni er þeirri ósk komið á framfæri að hann svari á þennan veg. ■ Fjölgun bíla mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austu s rönd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns VELDU GÆÐI! Þú færð gómsætar bollur hjá okkur Í gærmorgun vaknaði heimsbyggðin við vondan draum. Rússland hafði í skjóli nætur ráðist inn í Úkra- ínu með vopnaðri árás. Um var að ræða ógnvekjandi árás á gildi okkar og atlögu að lýðræðinu. Gærdagsins verður líklega minnst í sögubókum framtíðar sem dagsins þar sem járntjaldið reis aftur. Einn af myrku dögum Evrópu. Yfirgangur Rússa gagnvart frjálsri og fullvalda þjóð er ein mesta ógn vestrænna lýðræðisríkja og Evrópu í langan tíma. Við Íslendingar verðum að standa vörð um hagsmuni okkar sem þjóðar. Það gerum við meðal annars með því að verja af fullum þunga þau gildi sem mesta þýðingu hafa fyrir okkur. Frelsi, mannrétt- indi, lýðræði. Þá skiptir máli að við séum skýr í okkar afstöðu. Að samstaðan haldi. Að við tökum afdráttar- laust þátt í aðgerðum lýðræðis- og vinaþjóða okkar. Nú reynir á alþjóðasamvinnu með vestræn gildi að leiðarljósi. Það þýðir að við þurfum af fullum þunga að taka þátt í samstarfi með ESB-þjóðum, við verðum að einbeita okkur að NATO og taka einarða afstöðu með vinaþjóðum okkar. Samhliða þurfum við að skerpa á sýn okkar og stefnu í utanríkis- og varnar- málum. Við verðum að byggja enn frekar upp samband okkar við Bandaríkin í ljósi varnar- og öryggishags- muna Íslands. Líka með tilliti til norðurslóða og almenns þjóðaröryggis, eins og að verjast netárásum eða falsfréttum. Núverandi ástand er viss áskorun í ríkisstjórn sem er í grunninn klofin í afstöðu sinni gagnvart NATO þó svo að þau séu sammála um tortryggni sína í garð ESB. En við sem þjóð höfum ekki um annað að velja en að rækta af fullum krafti þetta dýrmæta alþjóða- samstarf. Nú verðum við að sýna afdráttarlausa samstöðu. Það veit enginn hvert atburðarásin þróast. Ég vona að alþjóðasamfélaginu takist að tryggja friðsam- lega lendingu og róa stöðuna. En Pútín þarf að mæta af fyllstu hörku. Um er að ræða stærsta prófstein á NATO hingað til. Kalda stríðið kann að falla í skugg- ann af því sem koma skal. ■ Járntjaldið rís á ný arib@frettabladid.is Tilkynningin Mikið var gott að ráðamenn skyldu loks senda tilkynningu til umheimsins sem kemur frá dýpstu hjartarótum. Svo vitnað sé í yfirlýsinguna: „Góðir hálsar í öllum hinum löndunum. Okkur líst ekkert á blikuna í Úkraínu, bara alls ekki. Við höldum með góðu köllunum, ekki vondu. Við erum hins vegar allt of kulnuð, þreytt og sjálfhverf til að taka þátt í þriðju heimsstyrjöldinni. Við ætlum ekki að spá í að taka við neinum flóttamönnum strax, það er alveg nóg vesen á húsnæðis- markaðnum. Þegar við hugsum málið þá hefur Ísland alltaf grætt á stríðum erlendis. Þakka þeim sem hlýddu.“ Sagan segir að minnst einn þjóðhöfðingi hafi svarað með like-þumal. Næstnæstbesta deildin Efsta deildin í íslenskri knatt- spyrnu, sem er mæld ein lélegasta deildin á lista UEFA, heitir nú Besta deildin. Það er reyndar mjög skemmtilegt nafn og ánægjulegt að deild heiti ekki eftir styrktaraðila, það er líka bara tímaspursmál þangað til það hefst keppni í Blush- deildinni. Deildirnar fyrir neðan Bestu deildina verða svo Næst- besta deildin, Næstnæstbesta deildin, Sæmilega deildin, Stutt- buxnadeildin, Órólega deildin og Skrímsladeildin. ■ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Formaður Viðreisnar SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.