Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 28
„Þegar þú ert mér nærri fæ ég nýrnakast.“ Þessi lína, þetta er bara geggjað. toti@frettabladid.is Líklega eiga f lestir sér einhvern uppáhaldstexta eftir Þorstein Egg- ertsson og þá jafnvel án þess að hafa hugmynd um hver höfundurinn sé. Slíkur er fjöldinn, úrvalið og breidd- in í höfundarverki hans. Sjálfur sagðist Þorsteinn, í viðtali við Fréttablaðið á 70 ára afmælis- degi sínum, ekki eiga neinn sér- stakan eftirlætistexta eftir sjálfan sig. „Þetta er allt komið í sama pott- inn,“ sagði textahöfundur Íslands fyrir tíu árum. „Ég yrki mest um hamingjuna og leitina að henni,“ sagði hann við sama tækifæri og benti á að kveð- skapur sem falli algerlega inn í samtímann eldist oft verr en sá sem fjallar um sígild efni. Bragi Valdimar lendir einnig í vandræðum þegar hann er spurður hvort hann geti nefnt uppáhalds- texta sína eftir Þorstein. „Sko, ég veit ekki, þeir eru svo ólíkir.“ Hann nefnir síðan Einn dans við mig, sem Hemmi Gunn söng á sínum tíma og Frikki Dór hefur dustað rykið af. „Þetta er ekki merkilegur texti þannig, en hann er alveg geggjaður. Þú veist: „Ég drakk og drakk, fór á f lakk, það kostar puð að koma sér í stuð.“ Þetta er svo einfalt og mikið popp,“ segir Bragi Valdimar. „Svo er bara Himinn og jörð og alls konar f lottir svona stærri textar,“ heldur Bragi Valdimar áfram og minnir á að svo sé fullt af jóladóti. „Aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld. Bara að koma því orði, að-fanga-dags-kvöld, að þannig allir gauli með. Þetta er alveg kúnst. Og Fjólublátt ljós við barinn. Þetta er endalaust. „Gefðu mér séns, mig langar í glens,“ þú veist þetta er svo mikil tyggjókúla og þetta er svo vel gert, sko. Því það er alveg kúnst að gera þetta vel. „Komiði með, ég spara ekki féð.“ Þú ert ekki að fara að lesa þetta innan um einhver hátimb ruð ljóð eftir Einar Ben sko, en mér finnst þetta alveg eiga heima þar.“ Þá bendir Bragi Valdimar á að dægurmenningin sé svo mikill gluggi inn í stemningu og lífið eins og það var og nefnir Verbúðina sem nærtækt dæmi um hvernig nost- algían flæði. „Hann er bara ein stór nostalgía og hann les einhvern veginn sam- félagið á hverjum tíma.“ Bragi Valdi- mar minnir síðan á að Þorsteinn hafi verið „náttúrulega algjörlega í banastuði“ á áttunda áratugnum. „Þá rann þetta út. Haaa! Ég þarf bara að henda í fyrirlestur um kallinn.“ ■ Allt milli himins og jarðar í fjólubláu ljósi 1942 Fæddist 25. febrúar, eina mestu óveðursnótt ársins, á grænum dívan í húsi afa síns og ömmu í Keflavík. 1952 Samdi fyrsta ljóðið sitt með stuðlum, höfuðstöfum og endarími. 1954 Seldi fyrsta málverkið sitt og fékk sérsaumaðan frakka fyrir það. 1957 Söng opinberlega í fyrsta sinn og samdi sjálfur texta við lögin sem hann flutti. 1958 Flutti í nýtt herbergi á Héraðsskólanum á Laugar- vatni og varð herbergisfélagi Ingimars Eydal. 1960 Valinn í dægurlagasöngvara- keppni K.K. sextettsins. Vann keppnina og varð fastráðinn söngvari með hljómsveitinni í hálft ár. 1961 Stofnaði hljómsveitina Beat- niks ásamt kunningjum úr Keflavík og Hafnarfirði. 1964 Gerðist fréttaritari Alþýðu- blaðsins í Kaupmannahöfn og tók viðtal við The Beatles í júní. 1965 Tók viðtal við The Rolling Stones í apríl. Samdi sinn fyrsta dægurlagatexta sem kom út á plötu, lagið Ást í meinum, fyrir Savanna- tríóið. 1968 Valinn textahöfundur ársins af gagnrýnendum dag- blaðanna. 1973 Skrifaði undir samning sem söngtextahöfundur fyrir Orange Records í London. 1975 Vinsælasti söngtexti Þor- steins fyrr og síðar, kom út, Heim í Búðardal, og var á Topp 10 listanum í 84 vikur. 1989 Skrifaði og setti upp þrjár sýningar fyrir Broadway og Hótel Ísland. 1994 Þýddi söngtexta fyrir kvik- myndina Aladdin. 1995 Flutti til Dublin. 1996 Leigði stúdíó í Dublin og málaði þar myndir daglega. 1999 Sýndi teikningar sínar á al- þjóðlegri listahátíð í Ankara, Tyrklandi. ■ Áttatíu ára saga Þorsteinn varð heiðursfélagi FTT í nóvember 2013 og að hátíðlegri athöfn lokinni var þeim Fjólu ekið til Bessastaða. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þorsteinn Eggertsson, eitt- hvert ástsælasta og afkasta- mesta söngtextaskáld lands- ins, fagnar 80 ára afmæli sínu í dag. Eftir hann liggja óteljandi dægurlagatextar sem öðlast hafa eilíft líf með þjóðarsál- inni. Bragi Valdimar Skúlason, stallbróðir hans af yngri kyn- slóðinni, fer ekki leynt með aðdáun sína á brautryðjand- anum og þótt hann slái hvergi af gangi hægt að saxa á forseta öldungadeildarinnar. odduraevar@frettabladid.is toti@frettabladid.is „Ég er enn að reyna að ná í skottið á honum,“ segir textahöfundurinn Bragi Valdimar Skúlason um þá botnlausu uppsprettu grípandi dægurlagatexta sem afmælisbarn dagsins, Þorsteinn Eggertsson, hefur verið í gegnum áratugi í sögu lands og þjóðar. „Ég er eitthvað búinn að saxa á hann. Ætli ég sé ekki kominn upp í kringum fjögur hundruð núna,“ segir Bragi Valdimar tólf árum eftir að þeir kollegarnir mættu saman í viðtal við Fréttablaðið en þá taldist Braga til að Þorsteinn ætti um sjö hundruð texta en sjálfur væri hann „einungis“ kominn upp í um tvö hundruð. „Þorsteinn náttúrulega dældi þessu út,“ heldur Bragi Valdi- mar áfram og dregur hvergi dul á aðdáun sína á Þorsteini þegar hann er spurður út í áhrif hins dægurlaga- meistarans. Aldrei stífur „Þetta er bara svo brilljant. Hann kemur þarna í rokkinu og fer að yrkja og búa til dægurlagatexta. Ég held hann hafi einhvern tímann sagt að það sé markmið hjá honum að vera ekki stífur,“ segir Bragi um stíl Þorsteins. „Stuðlar, höfuðstafir. Þorsteinn kann þetta allt. Hann leikur sér að þessu og flæðið skiptir svo miklu. Bara hljómurinn í orð- unum er eitthvað sem maður hefur tekið svolítið frá honum.“ Bragi rifjar síðan upp texta Þor- steins úr Harðsnúnu Hönnu, lagi Ðe lónlí blú bojs. „Þegar þú ert mér nærri fæ ég nýrnakast.“ Þessi lína, þetta er bara geggjað. Og nánast ómögulegt að syngja þetta.“ Bragi Valdimar segir engu máli skipta um hvað Þorsteinn semur, snilldin sé sú sama. „Hvort sem það er alvarlegt eða um alheiminn eða bara einmitt Búðardalinn. Það er bara verið að leika sér og þetta eig- inlega bara rennur upp úr honum þarna á tímabili, sama hvað það er.“ Þrjú tonn af fjöri Bragi Valdimar víkur að tröllauknu höfundarverkinu sem inniheldur ekki aðeins frumsamin lög. „Kata- lógurinn er svakalegur. Það er líka þessi kúnst sem hann svona byrjaði með, eins og til að mynda Þrjú tonn af sandi, þar sem hann er með svona hljóðlíkingar. Bara þannig að þetta hljómaði nú þokkalega á ballinu en væri með íslenskum texta. „Return to sender“ verður að „Þrjú tonn af sandi“ – engin merking þarna en þetta er bara fjör,“ segir Bragi Valdi- mar og veltir fyrir sér hvort það sé kannski eðli góðs dægurlagatexta að hann festist í höfði áheyrenda. Bragi Valdimar segir Þorstein hafa ýmislegt mjög gott á samvisk- unni hvað áhrif hans á sína kyn- slóð varðar. „Ég held hann hafi bara haft áhrif á mína kynslóð og þetta einhvern veginn var bara það sem maður hlustaði á. Auðvitað síast þetta inn. Maður var ekkert að spá í hver var að gera textann eða hvernig hann var gerður. En þú veist, bara það að hann er svolítill talmálskall. Aldrei uppskrúfað eða einhvern veginn fyrir ofan mann.“ Náttúrutöffari Með stríðsfréttir frá Úkraínu í bak- grunninum segist Bragi Valdimar hafa verið að lesa texta lagsins Söngur um lífið sem þeir Rúnar Júlíusson og Páll Óskar hafa gert góð skil. „Þetta er bara svo flott sýn á heiminn. Endalaus svartsýni og stríð og vesen og þá vill hann bara syngja um björtu hliðarnar. Og svo náttúrlega þetta geggjaða: „Ef þú vilt fá skammt af ánægju, gleði og hamingju og von þá ættirðu að hlusta á texta eftir hann Þorstein Eggertsson.“ Gott að koma bara sjálfum sér að í þetta. Er það ekki eina leiðin fyrir textahöfundinn til að koma sér á framfæri, að skella nafninu sínu í textann?“ spyr Bragi Valdimar. „Svo er þetta bara svo góður kall sko. Hann er svona náttúrutöffari. Hann og Rúni, það er bara allt töff við hann. Svona eilífðar, ég veit ekki hvort eigi að kalla hann hippa eða bítnikk.“ ■ Þrjú tonn af textagullsandi Þorsteinn og Bragi báru saman textabækur sínar 2010. Þá var staðan um það bil 700:200. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Heiða Ólafsdóttir og Matthías Matthíasson verða með Þorsteini á afmælistónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Þorsteinn Eggertsson textasmiður. Þorsteinn og eiginkona hans, Fjóla Ólafs- dóttir, á æfingu fyrir afmælis- tónleikana sem verða í Salnum í Kópavogi í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR 20 Lífið 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.