Fréttablaðið - 25.02.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 25.02.2022, Síða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid. is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Bragi Þorgrímur Ólafsson ver í dag doktorsritgerð sína þar sem hann rýnir í bréfa- skriftir frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar, sem varpa ljósi á nokkuð umdeilda hand- ritasöfnun sem sumum þótti óþjóðleg. ninarichter@frettabladid.is „Ritgerðin fjallar um handrita- söfnun á Íslandi á 19. öld, og þá aðal- lega út frá Jóni Sigurðssyni. Hann var svolítið mikill handritasafnari. Sú hlið hefur ekki verið áberandi í umfjöllun um hans ævi og störf,“ segir Bragi Þorgrímur Ólafsson um doktorsritgerð sína „Í útlendra höndum. Jón Sigurðsson og hand- ritasöfnun á Íslandi 1840-1880.“ „Þegar ég fór að skoða þessa sögu og bréfasöfn og annað, þá kom í ljós að út af því að Jón Sigurðsson bjó lengst af í Kaupmannahöfn fékk hann mörg handrit send til sín,“ segir Bragi Þorgrímur, sem ver rit- gerðina í dag, og bætir við að Jón sé talinn mesti handritasafnarinn á eftir sjálfum Árna Magnússyni. Töluvert magn handrita Handritin voru samtals um 2.000 talsins og því um töluvert magn að ræða. Handritin voru send beint til Jóns, til vörslu í eigin safni, en Jón var einnig forseti Hins íslenska bók- menntafélags sem safnaði hand- ritum undir hans stjórn. „Þegar ég fór að skoða þessa sögu nánar, og bréfin sem Jóni bárust, kom í ljós að það voru margir mjög ósáttir við þetta,“ segir Bragi Þor- grímur. „Margir höfðu orð á því að þeim fyndist beinlínis óþjóðlegt að senda handrit úr landi.“ Ósætti í Danmörku Að sögn Braga Þorgríms svaraði Jón fyrir sig með því að handritin væru þrátt fyrir það í eigu Íslendings og í íslenskri umsjón. „Jón Árnason þjóðsagnasafnari beinlínis velti því upp: Hvað gerist þegar Jón deyr, hvað verður um þessi handrit? Fara þau bara á uppboð og dreifast um Danmörku, munu Danir taka yfir Bókmenntafélagið og safnið, og svo framvegis?“ segir Bragi Þorgrímur og bætir við að þessar deilur séu helsta viðfangsefni ritgerðarinnar. „Jón Sigurðsson sagði að aðstæður til að rannsaka og gefa út íslensku handritin væru miklu betri í Kaup- mannahöfn heldur en á Íslandi. Það voru margir alveg sammála því, fræðasamfélagið á Íslandi var afskaplega lítið,“ útskýrir Bragi Þor- grímur. „En þá sögðu aðrir: Er ekki miklu betra að efla bara fræðasamfélagið sem er á Íslandi og reyna að hlúa að því frekar en að senda handritin út?“ Þannig hafi mörg ólík sjónar- mið verið á ferðinni. Bragi Þorgrím- ur segir niðurstöðu rannsóknanna helst felast í því að þetta hafi verið umdeilanlegt mál á sínum tíma og það hafi verið upphitun fyrir hand- ritamálið á 20. öld. Sterkar tilfinningar Bragi Þorgrímur er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MA-próf í opinberri stjórnsýslu og stefnumótun frá sama skóla. Hann starfar sem fag stjóri handritasafns við Landsbókasafnið í Þjóðarbók- hlöðunni. „Þar á meðal er hand- ritasafn Jóns varðveitt. Upphaflega ætlaði ég að skoða sögu fólksins sem átti handritin áður en Jón eignaðist þau. Kanna alþýðu- fólk ið, hand- ritin sem það átti og hvaða gildi þau höfðu fyrir það,“ svarar Bragi Þorgrímur, aðspurður um efnisvalið. Umdeild handrit Jóns Sigurðssonar Rannsóknir Braga Þorgríms Ólafssonar, doktorsefnis, benda til þess að Íslendingum hafi verið heitt í hamsi þegar kom að vörslu handrita í Danmörku á nítjándu öld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Jón Sigurðsson. Myndlist Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir. Kjarvalsstaðir Við hér á Fréttablaðinu eigum við vart orð yfir hrifningu okkar á sýningu á verkum Birgis Andrés- sonar á Kjarvalsstöðum. Árið er rétt að hefjast en við veðjum samt á að þetta sé myndlistarsýning ársins. Sýningin, sem ber titilinn Eins langt og augað eygir, nær yfir svo að segja allt húsið og er ein- staklega skemmtilega upp sett. Verk Birgis einkennast af húmor og hugmyndaríki og næmri tilfinn- ingu fyrir því óvenjulega. Sýningin stendur fram í maí og þið megið alls ekki missa af henni. ■ „En þegar ég fór að skoða bréfin nánar sá ég að þráðurinn í þessum bréfum frá þessu alþýðufólki var svolítið slitinn. Og svo sá ég að þetta brann svo heitt á fólki. Það er að segja, það hafði svo sterkar tilfinningar gagnvart því að senda handritin úr landi. Sumum fannst það bara í fínu lagi og fannst þau vera í góðum höndum hjá Jóni, en aðrir voru bara – það sauð á fólki,“ segir hann. Unnusti í gullgreftri í Kaliforníu „Bréfasafn Jóns er rosalega stórt og fólk úr öllum þjóðfélagshópum sem sendi Jóni Sigurðssyni bréf.“ Bragi Þorgrímur segir Íslendinga oft hafa beðið Jón og Ingibjörgu, konu hans, um aðstoð við stúss og útréttingar í Kaupmannahöfn og hafi oft látið handrit fylgja sendingunni til að liðka fyrir. Sum bréf stóðu þó meira upp úr en önnur. „En ég hef séð bréf frá konu þar sem hún er að biðja Jón um að hafa uppi á unnusta sínum sem hún kynntist á Íslandi, en hún hafði frétt að hann hefði siglt og stungið hana af og væri að grafa eftir gulli í Kaliforníu,“ segir Bragi Þorgrímur. „Pabbi hennar sendi Jóni Sigurðs- syni líka bréf og óttaðist að hún myndi stökkva um borð í næsta skip og sagði bara: Geturðu plís komið fyrir hana vitinu, og svo fram- vegis.“ Bragi Þorgrímur segir fjölda örlagasagna af þessum toga felast í bréfunum, þar sem alþýðufólk sé að biðja Jón um greiða af ýmsu tagi. Jarðbundinn fræðasinni Aðspurður hvort sýn hans á Jón hafi breyst í gegnum rannsóknirn- ar svarar Bragi Þorgrímur: „Maður sér bara hvað hann var ofboðslega jarðbundinn og fræðilega sinn- aður. Hann notaði handritin ekki í þjóðernislegum áróðursstíl eins og hefði verið svo auðvelt,“ segir hann. „Hann leit bara á handritin sem vísindaleg gögn sem þyrfti að rann- saka og gefa út. Á meðan aðrir sem voru svona rómantískari vildu hafa handritin á Íslandi og þess háttar.“ Bragi Þorgrímur minnir þó á að hér sé ekki um að ræða frægu miðaldahandritin sem eru í Árna- safni, heldur handrit sem send hafi verið úr landi á nítjándu öld. Hann segir þekktasta handritið í safni Jóns Sigurðssonar, sem jafnframt er talið einn merkasti dýrgripur Landsbókasafnsins, vera eigin- handrit Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum. „Það er bara til eitt annað handrit sem Hallgrímur skrifaði sjálfur og það er varðveitt í Bretlandi,“ segir hann. „Sumir gangast upp í því að fella Jón af stalli við alls konar tilefni. En það sést að hann var kannski umdeildari en margir halda,“ segir Bragi Þorgrímur, sem frá og með deg- inum í dag er doktor í sagnfræði. ■ FERMINGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Veglegt sérblað Fréttablaðsins um ferminguna kemur út föstudaginn 11. mars. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Áhugasamir auglýsendur hafi samband við: Jón Ívar Vilhelmsson Sími 550 5654 jonivar@fr ttabladid.is Arnar Magnússon Sími 550 5652 arnarm@frettabladid.is Jóhann Waage Sími: 550-5656 johannwaage@ frettabladid.is Ruth Bergsdóttir Sími 694 4103 ruth@frettabladid.is ■ Allra best Bækur Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda í Laugardal Hinn árlegi Bókamarkaður er hafinn. Þar eru bækur fyrir alla þannig að enginn sem gengur inn á að fara erindisleysu. Við mælum með að fjölskyldan fari saman og gert verði sérlega vel við börnin og þeim leyft að fara heim með fangið fullt af bókum. Þau munu minnast þessar heimsóknar með mikilli gleði. Gleymum því ekki að það er göfugt verk að leggja sitt af mörkum til að gera börn að bókasöfnurum og áhugasömum lesendum. Bókamarkaðurinn stendur til 13. mars og opið er frá klukkan 10 til 21 alla daga. ■ 22 Lífið 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.