Sókn - 10.01.1935, Blaðsíða 2
S Ó K X
Guðm. Guðmundsson,
prestur t'r;í Gufudal.
Hann andaðist 2. þ. m. á
Landsspítalanum eftir langa
legu.
Rr. Guðmundur var einn af
fremstu bindindisfrömuðum
landsins, áhugasaiiíur, örugg-
ur og sigurviss í baráttunni allt
til liins síðasta, enda var liann
einn mesti mannvinur og hug-
sjónamaður i hvívetna.
Hann var fæddur þ. 7. júli
1859 á Litlu-Giljá í Húnavatns-
sýslu. Gekk i lærða skólann í
endanlegi árangur verður.
Hinir miklu sigrar vinnast ekki
nema með hrevfingum, sem
fjöldinn er samstilltur í til
framsóknar. „Með fólkinu
fyrir f<)lkið“.
„Enginn er einna hvatastur"
sögðu forfeður okkar og lík-
lega með talsvert miklum
rétti - en þeir höfðu lika ann-
að orðstef um samstillinguna
og samhjálpina: „eins og
hönd hendi og fótur fæti“.
Að öðruin kosti — það vitum
við líka — geta jafnvel „litlu
puttarnir" fjötrað liinn stóra
og sterka „Gulliver“, svo að
liann má sig hvergi liæra,
nema með því að eins að þeim
þóknist að leysa fjötra lians.
En „Gulliver" getur líka sann-
fært þá, sameinað þá og leitt
þá fram til sigurs og til að
Jeysa þrautir, sem liann ein-
samall getur ekki ráðið við,
liversu stór og sterkur sem
hann er. Frh-
Reykjavík, og að loknu stú-
dentsprófi gekk hann í Presta-
skólann og varð síðar prestur
að Gufudal i Rarðastranda-
sýslu, og var jafnan kenndur
við þann stað síðan.
A efri árum flutti liann til
ísafjarðar og gerðist þar rit-
stjóri. Var hlað hans, þó litið
væri, talið frábærlega vel rit-
að, enda hafði br. Guðmundur
vald á máli fremur flestum
öðrum, sérstaklega var þvi við-
brugðið að liann liafi getað
sagt meiningu sina frábærlega
snjalt i fáum orðum.
Hann gekk í Regluna 7. jan.
1906 og var allt af félagi st.
„ísfirðingur“ 116, starfaði
hann jafnan fyrir hana og fvr-
ir Regluna og bindindismálið í
lieild bæði í ræðu og riti. Ferð-
aðist hann oft fvrir Stórstúk-
una og vann að bindindisboð-
un, m. a. ferðaðist hann mikið
og vann að undirbúningi at-
kvæðagreiðslunnar 1908.
Hann liafði öll stig Reglunnar
og var fleirum sinnum fulltrúi
á Stórstúkuþingum.
Rr. Guðmundur var kvænt-
ur Rebekku Jórisdóttir frá
Gautlöndum i Þingevjarsýslu
og var heimili þeirra þjóðfnegt
fvrir risnu og myndarskap.
Þeim varð 10 barna auðið, og
bafa sum þeirra þegar orðið
landsþekkt. Meðal sona þeirra
er br. Haraldur Guðmundsson
atvinnu- og kennslumálaráð-
herra, Steingrímur prent-
smiðjustjóri Ríkisprentsmðj-
unnar og Þórir, búfræðiskandi-
dat, kennari við bændaskólann
á Hvanneyri.
Það er mikil hamingja
liverju góðu málefni að liafa
átt og eiga menn eins og br.
Guðmund frá Gufudal í þjón-
ustu sinni. Við minnumst lians
því ekki einungis með sökn-
uði lieldur einnig með þakklæti
og gleði — og við blessum starf
lians og minningu.
F. Á. B.
Br. Tom Honyman,
Há-ritari Alþj.reglu Góðtemplara.
Rr. Tom Honyman lézt þ. 30.
nóv. s. 1. í full 25 ár liafði hann
verið einn af fremstu mönn-
uni Alþjóða-Hástúkunnar eða
siðan að hann var kosinn Al-
þjóða-ritari á Hástúkuþingi i
Washington 1908.
Hann var Skoti, fæddur 28.
júlí 1858 í Dunfermline i Skot-
landi. Gerðisl á ungum aldri
járnhrautarstarfsmaður og var
í mörg ár eimreiðarstjóri í
þjónustu Norð-brezku .járn-
brautanna.
Sex áruin eftir að Alþjóða-
reglan reisti merki sitt í Skot-
landi, gekk br. Honyman, þá
17 ára gamall, í hana (15. ág.
1875). Og upp frá því liefir
hann alltaf stöðugt staðið i
þjónustu Reglunnar í ýmsum
embættum. Tveim árum síðar
þá 19 ára — er hann orðinn
Umb.m. Stórtemplars í Um-
dæmisstúku sinni og 1879
eða fyrir 55 árum síðan var
hann á þingi skozku Stórstúk-
unnar skipaður Stór-aðstoðar-
ritari. - Þrem árum síðar var
hann kosinn i framkv.nefnd
Stórstúkunnar. Arið 1883 tók
liann að sér uniboð sem reglu-
boði Stórstúku sinnar, svo nú
gat sá áhugi, er hingað til hafði
sýnt sig mest í starfinu fvrir
East-Fife-umdæmið, notið sin
til gagns fvrir allt Skotland.
Nafn lians nefnist nú lika í
sambandi við stúkustofnanir