Sókn - 10.01.1935, Blaðsíða 4

Sókn - 10.01.1935, Blaðsíða 4
1 S Ó I\ X „SÓKN“ kemur út einu sinni i viku. Árg. kostar 4 krónur. Gjalddagi er 1. apríi. Afgreiðsla: Hafnarstræti 10, Rvík. Utanáskrift: „Sókn“, Böx 14, Rvík. Sölulaun 20% af minnst 5 eint. Stúkurnar og’ starfið. Bréf frá sl. >AftureIdinR« nr. 199. Fáskrúðsfirði 2. des. 1934. Það liefir verið misbrestur á því hér hjá okkur i st. „Aftur- elding“ nr. 199 eins og víðar i stúkunum, að senda „Sókn“ stutt vfirlit yfir starfsemi vora. Fátt er eins uppörfandi fj'rir stúkurnar eins og að frétta hver af annari við og við, kynn- ast, þótt ekki sé nema ofurlít- ið gegnum stutta fréttagrein, fá að vita, að alstaðar er barist liinni sömu baráttu i þágu bindindismálsins. Mönnum vaxa erfileikarnir siður i aug- um, þegar þeir vita, að þeir eru víðast hvar hinir sömu, og það vekur löngun til þess, að verða ekki eftirbátar annara. Ég byrja æfinlega á því að lesa í „Sókn“ fréttir af félags- starfseminni og finnst þær æf- inlega of fáar; býst ég við að vanræksla stúknanna valdi. Ég vil nú, þar sem ég hef verið kosinn ritari st. „Afturelding", revna að bæta ofurlítið úr okk- ar vanrækslu og hefir það þó dregizt nokkuð fvrir mér, enda fáu að segja frá. Starfsemi stúkunnar lá alveg niðri siðastliðið sumar og fund- ir voru strjálir siðari hlutann í vetur sem leið. Fyrsti fundur stúkunnar í haust var haldinn 30. sept. og reyndust þá góðir og gildir félagar vera 44. Síð- an Jiafa verið teknir inn í stúk- una 20 félagar. Hafa nýir fé- lagar bæzt í stúkuna á hverj- um fundi, sem lialdinn hefir verið enn þá og höfum við liugsað okkur að halda þvi á- fram fyrst um sinn. Fundar- sókn er ágæt. A fvrsta fundin- um í haust var hún 50%, en á síðasta fundi 81.3%. A fjórum fundum í nóvember er liún til jafnaðar 78.8% og eru þó 9.4% félaganna að heiman við nám og atvinnu. „Afturelding ætti i raun og veru nú orðið að teljast frekar unglingastúka en undirstúka, því af 64 félögum hennar eru aðeins 10 (15.8%) eldri en 22 ára. Hinn 30. nóvember átti stúk- an 10 ára afmæli og um leið áttu margir af félögum hennar, sem höfðu verið stofnendur barnast. „Perlan“ nr. 74,10 ára templar-afmæli, en af stofn- endum „Aftureldingar“ sem voru um 60, eru nú aðeins 5 eftir í stúkunni. Undirbúningur hafði verið hafinn til þess, að minnast af- mælisins sem föng voru til. Var fundur settur í fundar- lnisi stúkunnar kl. 9 e. h. og gengið þaðan fylktu liði undir fána til Samkomuhúss Hall- dórs Sveinssonar. Er þar sam- komusalur stærri og betri. Báru embættismenn einkenni sín. Þegar út eftir kom var sezt að kaffidrykkju. Las æ. t. fyrst upp heillaóskaskeyti, sem stúk- unni liöfðu borizt, en síðar voru flutt minni Reglunnar á íslandi, minni st. „Aftureld- ing“, minni barnast. „Perlan“ og' minni systranna í stúkunni. Gestir töluðu einnig' nokkur hlýleg orð til stúkunnar. Auk þess skemmtu menn sér við söng og leiki og einnig voru nokkrar myndir teknar af stúkunni. Risið var upp frá borðum og' fundi slitið kl. 12. Var síðan dans stiginn til kl. 2 um nóttina. Skildust menn þá auðugri en áður að verm- andi minningum og bræðra- hug. Næsta kvöld, 1. desember, hélt stúkan opinbera skemmt- un til ágóða fyrir sjóð sinn. Voru tekjur af henni ca. 400 kr. brúttó, en um áfallinn kostnað er mér ekki fullkunn- ugt enn. Þetta er það helzta, sem er að segja um starfsemi. „Aftur- eldinga“, sem komið er, enda var ekki komið gott lag á hana fyr en við byrjun þessa árs- fjórðungs. Það er að vísu lítið, sem stúkan hefir afrekað enn þá, enda er hún ekki nema barn að aldri, 10 ára. Á þeim aldri bvrja börnin að læra fyrir líf- ið og sú er ósk min og von, að st. „Afturelding“ megi verða næm og viljug að læra að starfa með sem beztum árangri að útrýmingu áfengisbölsins liér úr þessu litla þorpi. Br. Larsen-Ledet útnefndur Há-ritari. Það gekk miklu fljótara en búist hafði verið við að útnefna nýjan ritara fyrir Alþjóðahá- stúkuna í staðinn fyrir br. Tom Honyman. — Br. Larsen-Ledet, Aarhus, í Danmörku varð fvr- ir valinu. Hefir hann því á liendi bæði störfin, sem Há-rit- ari og sem Há-gæzlumaður lög- gjafarstarfs, til næsta Hástúku- þings. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.