Sókn - 30.03.1935, Blaðsíða 1

Sókn - 30.03.1935, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Fr. Ásmundsson Brekkan Reykjavík. Sími 4833 — Póstli. 64. ********** Afgreiðsla: Skrifst. Stórst. íslands. Hafnarstrœti 10. Sími 4235. Pósth. 14. ÚTGEFANDI: STÖRSTÚKA ÍSLANDS * ********** IV. árg. X I Séra Björn Þorláksson Björn prestur Þorláksson frá Dvergasteini lézt 3. marz s. 1., náði liann nálega 84 ára aldfi. Var fæddur 15. dag aprílmánaðar 1851. Sama ár- ið sem alheimsfélagsskapur Góðtemplara var stofnaður í Bandaríkjum Norður-Ame- ríku. Sá félagsskapur sem nú breiðir laufkrónu sína um gjörvallan lieim, til menning- arlegrar farsældar mannkyn- inu. Björn prestur Þorláksson var fyrir áratugum síðan þjóð- kunnur maður. Með fráfalli hans er liorfinn af sjónarsviði jarðlífsins, merkilegur, mikil- hæfur og margþættur þjóð- skörungur. Djarfur, hreinskilinn og gáf- aður maður. Hefði Björn prestur fæðst, uppalizt og starfað meðal þróttmikillar, víðsýnnar og fjölmennrar menningarþjóðar, hefði liann orðið heimsfrægur afreksmað- ur. En nú er liann horfinn. Dauðinn er eitt af brögðum náttúrunnar, sem mátar jafnt alla, afreksmanninn og væskil- inn. Þá skuld skulu allir gjalda. Búhöldur var séra Björn með afbrigðum. Sístarfandi og Reykjavilc, 30. marz 1935 Séra Björn Porláksson afkastamikill fyrir sveit sína og sýslu, sem naut fulla hálfa öld fjölliæfni hans og orku. Enda bar og ber sveitarfélag lians þess gleggstu merkin. Bezt statt af öllum lireppsfé- lögum landsins. í stjórn lians allri fór saman, skarpur skiln- ingur, starfsþróttur og ströng reglusemi. Ef allir embættismenn þess- arar þjóðar hefðu verið og væru slíkir starfsmenn sem Björn prestur Þorláksson var, myndi íslenzka þjóðin vera mesta fyrirmyndarþjóð í heimi að allri starfsemi og reglusemi. Sókn vill með þess- um örfáu línum þakka þess- um mæta manni fyrir hið mikla og óeigingjarna starf, er hann vann um tugi ára fyrir Góðtemplararegluna og bind- 7. blað indismálið í þessu landi. Minn- ast hans með virðingu og þakk- læti, sem eins hins heilsteypt- asta og ótrauðasta baráttu- manns, þeirrar hugsjónastefnu er bindindishreyfingin berst fyrir, og tengt hefir saman menn og konur í öllum lönd- um og álfum heims af hinum ólikustu tungum, siðum og menningu, en með það sam- eiginlegt stefnumið, að reka af höndum þjóðanna ölæðið og ofdrykkjuna, svo ekki gíni við mönnunum um ókomnar alda- raðir af bökkum áfengiself- unnar: „glæpabælin og gálg- arnir, fangelsin, vitfirringshæl- in“. Það var slíkt stefnumark veruleikans og hugsjónanna, sem Björn prestur Þorláksson á unga aldri1) gerðist ötull og ótrauður brautryðjandi fyrir með þessari þjóð, og þori nokk- ur ,maður með heilbrigða skynsemi að neita því að stefna og starf Góðtemplar- reglunnar sé ekki göfugra, á- hrifaríkara og verðmætara en stefna brennivínssvolans, þá brennimerkir hanu sig meiri þorpara að eðli og innræti en meðal bófi. — Margir voru þeir liinir treg- gáfuðu og drykkfelldu undir- málsmenn er torvelduðu séra 1) Hann gekk i Góðtemplarregluna 8. júni 1887.

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.