Sókn - 30.03.1935, Blaðsíða 4

Sókn - 30.03.1935, Blaðsíða 4
28 S Ó K N fangnir yfir þessari eða líkri samsuðu, hversu fjarri sem hún er öllum sanni og samfé- lagsveruleika. — Sama er að segja um gamanmyndirnar og leynilögreglumyndirnar — en þar sem þessi ræða átti ekki að vera kritik á kvikmyndum, þá vil ég snúa aftur að efninu, og það verður þá fyrir það fyrsta þetta: Getur maður af þessu dæmi dregið nokkra ályktun um það, hver sé afstaða nútím- ans gagnvart bindindismálinu og áfengisnautn? 3. Menningarmismunur. í fyrsta lagi virðist það nú benda á allmikinn mismun á Svíum og Islendingum í þessu efni — menningarmismun, sem er svo áberandi, að hann verður ekki skýrður til fulls með því einu að benda á að aðstaðan er betri þar en liér, þar sem ræða er um efni úr þeirra eigin þjóðlífi og með texta á þeirra eigin máli. Um efnið er nú það að segja, að það á allstaðar við — er all- staðar að gerast — vandamál- in, sem um er að ræða, eru sameiginleg menningarþjóðfé- lögunum, og við liöfum, að til- tölu við fólksfjölda okkar, ekki hvað minnst af þeim að segja — og hvað textanum viðvíkur, þá er þar ekki um meiri erfið- leika að ræða en í öllum öðr- um myndum, sem hér eru sýndar, nema síður sé. Mis- munurinn liggur því í öðru — að þar hafa önnur öfl verið að verki, og mun ég í lok þessa erindis leitast við að skýra það nánar. Frli. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg. I. O. G. T. Stórstúka Islands GERIR KUNNUGT: að þrítugasta og flmmta þing Stórstúku íslands, verður sett á Akureyri, fimmtudaginn 27. júní 1935, og hefst með guðsþjónustu ld. 5 síðdegis. Hver Umdæmisstúka hefir rétt til að kjósa 1 fulltrúa fyrir hverja 500 félaga eða brot úr 500 og jafn-marga til vara. Hver þingstúka 1 fulltrúa fyrir hverja 300 félaga eða brot úr 300 og' jafn-marga til vara. Hver undirstúka 1 fulltrúa fyrir hverja 100 félaga eða brot úr 100 og' jafn-marga til vara. Hver ung'mennastúka 1 fulltrúa fyrir hverja 100 félaga eða brot úr 100 og jafn-marga til vara. Hver barnastúka 1 fulltrúa og einn til vara. Skal hann kosinn af fulltíða félögum stúkunnar. Kjörgengir eru þeir einir, sem eru félagar í undirstúku og haiá rétt til stórstúkustigs. Hafi stúkan verndarstúku skal full- trúinn vera félagi hennar. Tala fulltrúa skal miða við félagatal (aðalfélaga) 1. febr. nema um nýstofnaðar stúkur sé að ræða. Hver stúka ákveður sjálf hvenær kjósa skuli, en boða skal kosningu með viku fyrirvara. Til þess að fulltrúi eða varafulltrúi sé löglega kosinn, þarf hann að hafa fengið meiri hluta greiddra atkvæða, eða sé kosinn i einu hljóði. Röð fulltrúa fer eftir atkvæðafjölda þeirra. Séu atkvæði jöfn fer röðin eftir því, í hvaða röð þeir hafa verið tilnefndir. Til þess að vera kjörgengur til Stórstúkuþings, litheimtist, að sá sem kosinn er, sé aðalfélagi stúku þeirrar, er hann sendir, og' sé ekki yngri en 18 ára. Þingseturétti getur stúka tapað, ef hún skuldar Stórstúk- unni skatt cða annað, eða hefir vanrækt skýrslugerð. Stórstúkustig verður veitt þingsetningardaginn þeim, sem hafa skirteini frá stúku sinni og hafa rétt til stigsins (sbr. 13. kafla, 1. gr. í Lögb. Templara). Hástúkustig verður einnig veitt í sambandi við þingið, þeim, sem hafa rétt til þess (sbr. Lögb. Templara 13. kalla, 1. gr.). Meðmæli með umboðsmönnum Stórtemplars skulu send til skrifstofu Stórstúkunnar, ekki síðar en viku fyrir þing. — Einnig kjörbréf þeirra fulltrúa, er þingíð ætla að sitja. Skrifstofu Stórslúku íslands, 26. marz 1935. Jóhann Ögm. Oddsson. (stórritari).

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.