Sókn - 15.04.1935, Blaðsíða 1

Sókn - 15.04.1935, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Fr. Ásmundsson Brekkan Reykjavík. Simi 4833 — Pósth. 64. ********** SÓKN Af greiSsla: Skrifst. Stórst. íslands. Hafnarstræti 10. Simi 4235. Pósth. 14. ÚTGEFANDI: STÓRSTÚKA ÍSLANDS *********** IV. árg. Þingsályktunartillaga br. Péturs Ottesen. Skömmu áður en Alþingi var frestað flutti br. Pétur Ottesen svo hljóðandi tillögu til þings- ályktunar: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að gera það, sem í hennar valdi stendur og unnt er til þess að draga úr þeirri miklu vínnautn, sem fvlgt hef- ir í kjölfar þess, að sterku drykkjunum- var aftur hleypt inn í landið. Þetta ber stjórn- inni að gera með þvi meðal ann- ars: 1. Að sjá svo um, að í áfengis- útsölum ríkisins séu ekki seld vin nema 3 daga vik- unnar og aldrei lengur en 4 tíma á dag. 2. Að kveða svo á í reglug'erð, að veitingahús það í Reykjavík, sem dómsmála- ráðherra veitir vínsöluleyfi, megi ekki selja vín nema með mat, og ekki neina 3 tíma á dag og aldrei eftir kl. 9 að kvöldi. 3. Að veita engin vínveitinga- leyfi í veizlum, dans- skemmtunum og' öðrum samkvæmum, livort sem þær fara fram í veitinga- húsum eða í félagsher- bergjum. Reykjavík, 15. april 1935 4. Að leggja íyrir gjaldeyris- og innflutningsnefnd að veita ekki gjaldeyri til kaupa á sterkum drykkj- um fjær en fullnægt er gjaldeyrisþörfum lands- manna um kaup á nauð- synjavörum. 5. Að leggja ríkt á við lög- gæzlumenn ríkisins, að þeir gangi röggsamlega fram í því að bafa eftirlit með, að áfengislögunum sé hlýtt“. í greinargerðinni segir m. a.: Vínsalan í Reykjavík þrefaldast. „Það er nú þegar komið á dag- inn, að þeir menn höfðu rétt fyrir sér, sem héldu því fram, að það mundi leiða til ófarnað- ar og stórtjóns fyrir þjóðina að fara að hleypa aftur nýju vín- flóði iiin í landið. En að afleið- ingarnar af því að þetta óheilla- spor var stigið, yrðu jafn geig- vænlegar eins og' raun ber þeg- ar vilni um, mun þó fæsta liafa grunað. Skal nú vikið nokkru nánar að þessu. Ég befi í höndum skýrslu frá forsljóra víneinkasölu ríkisins, sem sýnir, hvað komið hefir inn á liverjum degi fvrir seld vín í áfengisútsölu ríkisins í Reykja- vík frá 1. febr. til 15. marz í vetur, og sömuleiðis aðra skýrslu, sem sýnir, bvað inn 8. blað -kom fjTÍr seld vín lijá þessari sömu útsölu á sama tíma 1934. Skýrslan um söluna í vetur sýnir, að komið hefir inn fyrir seld vín i áfengisútsölunni á þessu tímabili kr. 311570.55. Samsvarar það því, að selt hafi verið vín fyrir 7246.00 á dag að meðaltali. Skýrslan um söluna á þess- um sama thna 1934 sýnir, að þá hefir verið selt fyrir kr. 104657.53, eða að meðaltali á dag kr. 2434.00. Af þessum samanburði verð- ur það ljóst, að eftir að sterku vínin komu á markaðinn liefir umsetning þessarar einu áfeng- isútsölu þrefaldast á þessu tíma- bili, samanborið við það, sem hún var á sama tíma 1934. Og það er síður en svo, að það dragi nokkuð úr vínkaupunum; síð- asta daginn sem skýrslan tekur yfir var selt vín fyrir kr. 7308.00. Þessar skýrslur og sá saman- burður, sem hér liefir verið gerður, sýnir svart á hvítu og ótvírætt, hve þeir menn, sem náð bafa til áfengisútsölunnar í Reykjavik, hafa aukið áfengis- kaup sin gífurlega. Um það, hver munur hefir orðið á vín- kaupum í áfengisúlsölum ríkis- ins í hinum kaupstöðunum, liggja engar skýrslur fyrir, en sjálfsagt hafa vínkaupin þar einnig örvazt stórum. Þó að það sé nú ekkert smá- Fyrsta reynsla af áfengislögunum.

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.