Sókn - 23.05.1935, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Fr. Ásmundsson Brekkan
Reykjavik.
Simi 4833 — Pósth. 64.
SÓKN
Afgreiðsla:
Skrifst. Stórst. fslands.
Hafnarstræti 10.
Sími 4235. Pósth. 14.
***** ***** ÚTGEFANDI: STÖRSTÚKA ÍSLANDS
* **********
IV. árg.
Vandræðin vaxa.
Það verður ekki nieð sanni
sagt, að sú reynsla sem fengin
er af ástandinu í áfengismálinu,
síðan innflutningur og sala
sterku drykkjanna hófst 1.
febr. s. 1., sé glæsileg. Ýmsum,
sem áður létu sér þau mál í
léttu rúmi liggja, mun nú
hrjósa hugur við, er þeir líta
yflr það sem unnist hefir með
breytingunum á áfengislöggjöf-
finni. Bindindis- og bannmenn
reyndust alltof sannspáir. Allar
spár og gyllingar andstæðing-
anna um aukna og vaxandi
hófsemi, þegar innflutningur'á
öllum tegundum áfengis væri
orðinn frjáls, hafa orðið sér
eftirminnilega til skammar —
þvi er miður. — Tölurnar tala
sínu óhrekjandi máli. Og það,
sem þær hafa að segja, er
þjóðinni hvorki til lofs né
dýrðar. Þær henda á eyðslu-
semi, þroskaleysi, vöntun á
siðferðilegu mótstöðuafli og
drykkjufýsn, sem allt saman-
lagt varpar dimmum skugga á
allar glæsilegar vonir um fjár-
hagslega og menningarlega
framtið þjóðarinnar. — Töl-
urnar sýna að flóðið lftur út
fyrir að verða ægilegra en
jafnvel bindindismenn óraði
fyrir.
Reykjavik, 23. april 1935
Frá 1. febr. til 31. marz.
Samkvæmt tölum, sem gefnar
eru upp í »Alþýðubl.« 15. apr.
s. 1., hefir Áfengisverzlun rík-
isins á þessum tveim fyrstu
mánuðum selt áfengi fyrir
531.460.14, og lætur nærri að
heildarupphæðin hafi þrefald-
ast horið saman við sama
timabil í fyrra. í útsölu Á-
fengisverzlunarinnar í Reykja-
vík einni hefir á þessu tíma-
bili verið selt fyrir 380.000.00
kr., aukningin þar nemur
249.500.00 kr. — salan nær
þrefaldast. — Á Akureyri hefir
selst fyrir 30.000.00 móti 5000.00
kr. á sama tíma i fyrra —
salan sexfaldast. — Á Siglufirði
hefir salan nær fimmfaldast —
30.900.00 kr. móti 6570.00 á
sama tíma í fyrra. — Á ísa-
firði, þar sem áfengisnautn
þó virðist vera einna minnst,
hefir salan gert talsvert meira
en tvöfaldast, eða rúmlega
16.000 kr. móti tæpum 7000
kr. á sama tíma í fyrra. — í
Hafnarfirði hefir salan tvöfald-
ast með 39.6000.00 kr., móti
rúml. 19.000.00 kr. á sama tíma
i fyrra. — í Vestmannaeyjum
og á Seyðisfirði heíir salan
numið um 36.000.00 kr. sam-
tals. — Aukningin i öllu land-
inu nemur samtals 328.700.00
10. blað
kr., (Vestmannaeyjar og Seyðis-
fjörður þó ekki með talin, svo
heildaraukningin hefir raun-
verulega verið nokkru hærri).
Þó skýrsla þessi sé stutt, þá
sýnir hún nokkurnvegin lieild-
armynd þá er hlasir við, að
minnsta kosti að því er snertir
fjáreyðsluhlið málsins.
Hin dýrkeypta reynsla.
En nú má ugglaust hæta
því við, að mörgum, er hugsa
það dýpra, muni finnast að
hún sé þó kannske ekki aðal-
atriði (mikilvægt atriði er hún
nú alltaf í mannlegu samfélagi).
En þeir munu frekar hugsa
um þá mannspillingu, sem
siglir í kjölfar vaxandi áfengis-
nautnar, og þegar er farin að
sýna sig i ýmsum myndum.
Allir vita t. d. að óvenju
mikið hefir borið á þjófnaði
og likum óknyttum síðari hluta
liins nýliðna vetrar. Það er
lieldur ekkert launungarmál,
að ílest þesskonar, sem upp
hefir komist, hefir staðið í svo
nánu sambandi við áfengis-
nautn, að þar hafa oftast verið
ölvaðir menn að verki i því
skyni að ná sér í eitthvað til
þess að kaupa áfengi fyrir.
Á götum þessa bæjar og lik-
lega víðar, þar sem áfengi hefir
verið selt, hafa menn einnig
séð ávöxtinn i annari mynd,
því kunnugir telja, að hér liafi
um mörg ár ekki sézt svo lil-
Hvar stöndum við nú?