Sókn - 30.07.1935, Blaðsíða 4

Sókn - 30.07.1935, Blaðsíða 4
-18 S Ó K N 11. Stórstúkuþingið litur svo á, að mikil nauðsyn beri til, að framkvæmdanefndin, á- fengismálaráðunauturinn og stórgæzlumaður löggjafarstarfs haldi uppi ákveðinni baráttu fyrir sem mestum takmörkuu- um og töggæslu. Tillögur Regluhagnefndar verða birtar í næsta blaði. Framkvœmdanefnd Slórstúk- unnar. F ramkvæm danefn darkosning fór fram á þingfundi 1. júlí og voru eftirtaldir kosnir: Stórtemplar: Friðrik Á. Brekkan. Stórkanslari: Jón Bergsveinson. Stórvaratemplar: Guðrún Einarsdóttir. Stórritari: Jóhann Ögm. Oddsson. Stórgjaldkeri: Sigurður Jónsson. Stórkapilán: Gísli Sigurgeirsson. Stórgæslum. löggjafarstarfs: Felix Guðmundsson. Stórfræðslustjóri: Einar Björnsson. Stórfregnritari: Helgi Helgason. Fv. stórtemplar: Sigfús Sigurhjartarson. Aðrir embættismenn eru: Stórdróttseti: Sigríður Halldórsdóttir. Stóraðstoðarritari: Eiríkur Sigurðsson. Stóraðstoðardróttseti: Oddfríður Jóhannesdóttir. Stórvörður: Þórarinn Jóasson. Stórútvörður: Kristján Pálsson. Stórsöngstjóri: Jónas Tómasson, Stórsendiboði: Auðunn Níelsson. Mælt var með Brvnleifi Tobíassyni sem umboðsmanni bátemplar. Næsti þingstaður var ákveð- ínn Reykjavík. Úlbreiðslufundur. í sambandi við Stórstúku- þingið og samkvæmt eindreg- inni ósk Akureyrartemplara, var haldinn almennur bindis- útbreiðslufundur. Br. Bryn- leifur Tobíasson, umboðsmað- ur Hátemplars setti fundinn og stjórnaði honum. Ræðumenn voru: Felix Guð- mundsson S.G.L., br. Sigfús Sigurhjartars. F.S.T., br. Guðm. R. Ólafsson úr Grindavík og br. Pétur Sigurðsson regluboði Stórstúkunnar. Þótti þeim öllum segjast mæta vel og liöfðu óskifta at- hygli allra fundarmanna. Skógarför. Sunnudaginn 30. júní fóru flestir fulltrúar og ýmsir aðrir templarar, skennntiför í Vagla- skóg, glaðasólskin var og veð- ur hið fegursta. Fæstir aðkomu fulltrúanna höfðu séð Vaglaskóg áður, þótti þeim hann mikill og fag- ur og létu hið bezta af förinni. Þá fóru og nokkrir fulltrúar að Goðfossi. Samsœti og sögulok. Þess þarf auðvitað tæpast að geta, að Akureyrartemplar- arnir tóku mjög myndarlega og alúðlega á móti aðkomu- fulltrúunum. Var vel og af binni mestu fyrirhyggju fyrir öllu séð er þangað kom. í einu orði sagt, á öltum mót- tökunum var hið snildarleg- asta »skipulag«. Formaður móttökunefndar var br. Brynleifur Tobíasson, umboðsm. Hátemplars. Að kveldi hins seinasta þing- dags héldu svo stúkurnar á Akureyri, fulltrúunum kaffi- samsæti, sem fór nijög vel fram. Var þar margt manna samankomið, auk fulltrúanna. Voru fjölda ræður fluttar undir borðum og var samsætið hið fjörlegasta og skemtilegasta, og að því loknu var svo stiginn dans. Óhætt mun að fuliyrða, að allir aðkomufulltrúarnir hafa horfið af þinginu með þakk- læti og hlýjum huga til Reglu- félaganna á Akurevri. Þeim sé þökk. St. »Verðandi« nr. 9 50 ára. St. »Verðandi« nr. 9 er elzta I. 0. G. T. stúkan hér sunnan- lands. Húu er stofnuð 3. júlí 1885, af br. Birni sál. Pálssyni Ijósmyndara, er því nú hálfrar aldar gömul. í tilefni al' þess- um tímamótum stúkunnar var haldinn mjög hátíðlegur fund- ur 7. júlí sl., þar sem mætt var framkvæmdanefnd Stór- stúkunnar og sendinefndir og fulltrúar frá Umdæmisst. nr. 1 og flestum starfandi stúkum í Reykjavík, og ennfremur st. »Morgunstjarnan« nr. 11, í Hafnarfirði. Fluttu sendinefndir þessar allar, og Stórtemplar f. h. framkvæmdanefndar Stórstúk- unnar, st. »Verðandi« hug- heilar árnaðaróskir og þökk-

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.