Sókn - 10.09.1935, Blaðsíða 1

Sókn - 10.09.1935, Blaðsíða 1
SOKN ********** ÚTGEFANDI: STÓRSTÚKA ISLANDS *********** IV. árg. Reykjavík, 10. sept. 1935 14. blað Ritstjóri: Fr. Ásmundsson Brekkan Reykjavik. Simi 4833 — Pósth. 64. Afgreiðsla: Skrifst. Stórst. íslands. Hafnarstræti 10. Sími 4235. Pósth. 14. Fallinn foringi. Tr}rggvi Þórhallsson er látinn. Glaði og siðprúði æskumað- inn er horíinn, presturinn, kennarinn, ritstjórinn, alþingis- maðurinn og forsætisráðherr- ann, sem fram kom fyrir lands- ins hönd á þúsund ára alþing- ishátiðinni, þegar hingað sóttu miklir menn frá fleiri löndum en nokkru sinni, þegar mest reið á að vel mættu takast allar móttökur um skörungsskap og gestrisni og blettcilaust. Óhætt mun að fullyrða að frá hendi' Tr. Þórh. forsætisráðherrans þáverandi tókst alt þetta, og einmitt því fremur sem hann var algjör og einlægur bind- indismaður og veitti ekkert á- fengi í landsins eða eigin nafni. Og þess er hvergi getið að þjóð vor hafi fyrir þá sök nokkurt tjón beðið, enda ekki til þess ástæða. Með þessu sýndi þá- verandi islenski forsætisráð- herrann alheimi að aldrei þurfa menn stöðu sinnar vegna að veita eða neyta áfengis, og hann gaf fagurt fordæmi sem allir hefðu gott af að taka sér til fyrirmyndar. Það var gott að alast upp í Laufási. Eg sá Tr. Þórh. í fyrsta sinn við Þjórsártún; var hann þá i fylgd með föður sínum, sem var að halda þar búnaðarfé- lagsfund; þá var Tryggvi 13— 14 ára. Tvent er mér minnis- Tnjggvi Pórhallsson. stætt frá þeim fundi, áhugi Þórhallar Bjarnasonar fyrir búnaðarmálum og ástríki hans við soninn, sem hann var að kynna bændunum og málefn- um þeirra. Mér eru líka minn- isstæð þau áhrif er Tr. Þórh. hafði á mig við fyrstu sýn; mér er minnisstæður prúður, lag- legur og bjartur unglingur. Ég' vissi það ekki þá að síðar ætti ég eftir að starfa með þessum pilti að félagsmálum, og enn síður að sama málið ætti að verða okkur sameiginlegt á- hugamál. En svo varð. Við mættumst næst í Goodtemplar- reglunni og Ungm.fél. Rvíkur; þar voru og systkini Tryggva, og af viðkynningunni við hann og þau varð mér ljóst, að gotl hefði verið að alast upp í Laufási; heimilið sjálft þekkti ég ekki. Ahugasamur og' aðlaðandi félagi. Fáír munu í alvöru neita því, þeir er skyn bera á félagslega starfsemi, að Goodtemplarregl- an sé góður félagsskapur og þroskandi og til þess sérlega vel fallinn að kenna ungum möníium að starfa. Tr. Þórh. gekk í sl. Verðandi nr. 9 14 ára gamall og tók þar fljótt þátt í störfum og var um skeið Æ. T. hennar; þarf ekki að efn að »reglan« og málefni liennar unnu hug hans allan. Þegar Ungm.fél. Rvíkur var stofnað, gerðist Tr. Þórh. fljót- lega félagsmaður og starfaði þar alt til þess er hann flutt- ist úr bænum. Tr. Þórh. var einn atkvæða- mesti og starfsamasti félagi U. M. F. R., meðan liann var þar, enda var félagið athafnasamt og ánægjulegt það tímabil. í. U. M. F. R. kyntist ég Tryggva fyrst fyrir alvöru, og

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.