Sókn - 18.10.1935, Blaðsíða 1
SOKN
********** ÚTGEFANDI: STÓRSTÚKA ÍSLANDS
IV. árg. Reykjavík, 18. okt. 1935 15. blað
Ritstjóri:
Fr. Ásmundsson Brekkan
Reykjavik.
Sími 4833 — Pósth. 64.
Afgreiðsla:
Skrifst. Stórst. fslands.
Hafnarstræti 10.
Sími 4235. Pósth. 14.
***********
Ásgeir Sigurðsson,
ræðismaðitr.
Fyrir nærri því 52 árum
beittist 19 ára unglingur norð-
ur á Akureyri, ásamt með um-
komulitlum útlendingi, fyrir
stofnun félagsskapar í litlu loft-
herbergi inn i fjörunni. Margt
félagið hefir verið stofnað hér
á landi og erlendis, og að öll-
um jafnaði hafa slíkar félaga-
stofnanir verið lítið þrekvirki,
en um félagið á Akureyri, sem
hér er getið, er öðru máli að
gegna en flest önnur. Það þurfti
kjark og bjartsýni til þess að
konia því á fót. Með því hefst
nýr kapítuli í sögu íslands.
Tólf voru stofnendurnir, og
liinn ungi íslenzki forvigismað-
ur var fullur áhuga og trausti
á því málefni, sem félagið var
stofnað um. Allflestir ráðandi
menn í landinu voru ýmist
gersamlega andvígir félagsskap
af þessu tæi eða skilningslaus-
ir um þessi efni, sljóir og þver-
lyndir. Hið sama mátti segja
um þorra almennings. Ungi
maðurinn sem bauð stormin-
um byrginn, var Ásgeir Sig-
urðsson, síðar kaupmaður og
konsúll i Rvik, og félagsskap-
urinn, sem hann kom fótum
undir, var Góðtemplarareglan.
Samherji Ásgeirs, Norðmaður-
Ásgcir Sigurðsson.
inn Ole Lied, hrökklaðist brátt
úr Reglunni vegna veikrar skap-
gerðar og var það mjög rauna-
legt, en hinn ungi og glæsilegi
íslendingur barðist fullhugans
aðdáanlegu baráttu. Hann
stofnaði stúkur nyrðra og
vestra, ritaði uin málið og var
lífið og sálin í sinni eigin stúku.
Tvitugur að aldri stofnaði
hann blað til eflingar Reglunni,
er hann nefndi Binclindistíð-
incli, og eru þau fijrsta bind-
indisblað á íslandi. Ritaði hann
það að mestu leyti einn, og
eru greinar hans prýðilega
skrifaðar. Ritið er fjölbreytt:
vekjandi greinar, vel rökstudd-
ar og öfgalausar, þýddar grein-
ar og fréttir af starfinu heima
og erlendis. En þvi miður
komu að eins 5 blöð út, hið
fyrsta þeirra 6. desbr. 1884 og
hið síðasta 27. okt. 1885.
Fyrsta árið stóðu íslenzku
stúkurnar undir Stórstúku
Noregs, en frá þeim tíma und-
ir Hástúkunni, og varð Ásgeir
þá fulltrúi hennar hér á landi.
Er hann því fyrsti umboðs-
maður Hástúkunnar meðal ís-
lenzkra templara, en Stórstúka
íslands var ekki stofnuð fyr
en vorið 1886. Var Ásgeir því
foringi Reglunnar hér á landi
bernskuárin fyrstu, þó að ung-
ur væri, og óx hún jafnt og
þétt undir forustu lians. Hann
hafði gengið í stúku í Skot-
landi kornungur, er hann
dvaldi með föðurbróður sin-
um, Jóni A. Hjaltalín, í Edin-
borg, sem þar var bókavörð-
ur, en síðar skólastjóri á
Möðruvöllum.
Utan fór Ásgeir bráðlega, eft- .
ir það að hann hafði komið
fótum undir Regluna hér, og
hverfur hann þá all-langan
tima af sviði Reglunnar. En
um aldamótin síðustu gekk
hann í stúkuna »Verðandi«
nr. 9 og var hann félagi henn-
ar um tíu ára skeið, en upp
frá því er hann utan vébanda
Reglunnar, þó að bfndindis-
maður væri hann að kalla
einnig þann tima æfi sinnar.
Það var mikið fé sem Ásgeir
lét af hendi rakna til Regl-
unnar meðan hann var i henni
og alveg eins síðar. Var hann