Sókn - 15.11.1935, Blaðsíða 1
SÓKN
ÚTGEFANDI: STÖRSTÚKA ISLANDS
IV. árg. Reykjavík, 15. nóv. 1935 16. blað
Afgreiðsla:
Skrifst. Stórst. íslands.
Hafnarstræti 10.
Sími 4235. Pósth. 14.
***********
Ritstjóri:
Fr. Ásmundsson Brekkan
Reykjavík.
Simi 4833 — Pósth. 64.
**********
Br. Gísli Lárusson.
Einn af framherjum og for-
ystumönnum Goodtemplarregl-
unnar og bindindismálsins í
Vestmannaeyjum er látinn, br.
Gísli Lárusson, gullsmiður.
Með honum er fallinn í val-
inn góður maður, sem hafði
bsetandi og göfgandi áhrif á
hvern þann, er hann náði til,
með honum er hniginn til fold-
ar happasæll foringi göfugs
málefnis, víðsýnn og réttlátur
maður.
Br. Gísli var fæddur 16. fe-
brúar 1865 í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Foreldrar
hans voru heiðurshjónin, Lárus
Jónsson hreppstjóri og hafn-
sögumaður og Kristin Gísla-
dóttir, voru þau bæði ættuð
úr Mýrdal.
Fljótlega varð br. Gísla, sem
gáfuðum og hugsandi unglingi,
ljóst, hver vágestur áfengið er.
þjóðinni og snérist hann þvi
brátt í lið með bindindismönn-
um. Gerðist hann templar 3. júlí
1885, og er hann einn af stofn-
endum st. Verðandi nr. 9 i Rvik.
Árið 1888 gerist hann félagi
st. »Bára« nr 2 í Vestmanna-
eyjum og var óhvikull félagi
hennar til dauðadags, og einn
hennar fremsti foringi.
Br. Gísli tók öll stig Regl-
unnar og sat á mörgum Stór-
stúkuþingum.
Gísli Lárusson.
Templarar í Vestmannaevj um
hafa með br. Gísla misst einn
sinn merkasta og elsta forvigis-
mann og Goodtemlarreglan á
íslandi einn af sínum trygg-
ustu og einlægustu félögum.
En markið skal standa þó
maðurinn falli.
Frumherjanna, þeiri'a er
fyrstir hófu upp merki bind-
indismálsins og börðust af
einlægum og eldlegum áhuga
fyrir framgangi þess meðan líf
og heilsa entist, er bezt minnst
á þann hátt, að við sem eftir
lifum bcrjumst afsláttarlausri
baráttu fyrir fullum sigri bind-
indishugsjónarinnar.
Bölvun drykkjusiðann a.
Maður er nefndur Johan
Scharffenberg; er hann norsk-
ur og víðfrægur geðveikralækn-
ir og heilsufræðingur. Hann
er eldheitur og ákveðinn and-
stæðingur Baccusar, eins og
sönnum lækni sæmir að vera.
Hann er einnig mjög áhuga-
samur bindindismaður, stend-
ur og framarla í fylkingum
bindindismanna i föðurlandi
sinu. Ekki alls fyrir löngu lagði
hann þá spurningu fyrir 223
fanga í Bots-fangelsinu i Nor-
egi, hvers vegna þeir hefðu
leiðst út i áfengisnautn og
drykkj uskaparóreglu.
Svör fanganna voru á þessa
leið:
F'ordæmi föðurins .... 2
Fengu áfengi sem börn i
heimahúsum............ 4
Læknir ráðlagði áfengi. . 1
Sóttu áfengi fyrir aðra. . 10
Störfuðu við áfengisverzl-
un.................... 6
Drykkjuvani, drykkju-
þvingun »votra« verk-
stjóra á vinnustöðvum 30
Áeggjan félaganna .... 153
Vondur félagsskapur ... 6
Ástaraunir, misheppnað
hjónaband, léttúðgi o.fl. 11
Samtals 223
Höfuðorsökin: Drykkjusiðirnir.