Sókn - 15.11.1935, Blaðsíða 4

Sókn - 15.11.1935, Blaðsíða 4
64 S Ó K N „SÖKN" kemur út einu sinni i viku. Árg. kostar 4 krónur. Gjalddagi er 1. april. Afgreiðsla: Hafnarstræti 10, Rvik. Utanáskrift: „Sókn“, Box 14, Rvík. Sölulaun 20% af minnst 5 eint. mannsgróða og tolla. Mikið er búið til af tóbakslíki úr öðr- um illgresistegundum, sem bleyttar eru í tóbakslegi og síðan þurkaðar, og nefndar reyktóbak. Allir heilsufræðislega lærðir 7 menn og aðrir, sem ekki eru háðir hagnaðarvon af verzlun með tóbaksvörur eða sjálfir sýktir af nautn þeirra, vita og viðurkenna, að aðal-áhrifaefni tóbaks er megnt eitur, og að nautn þess getur aldrei leitt annað en illt af sér fyrir neyt- endur; það spillir efnahag þeirra og heilsu (og oft jafn- framt annara). Þetta er öðru- hvoru verið að brýna fyrir fólkinu; einkum er varað við því, að börn neyti tóbaks. T. d. í fyrravetur flutti einn af álit- legustu læknum vorum út- varpserindi um þetta efni; brýndi sérstaklega fyrir mönn- um skaðsemi tóbaks fyrir börn og mæður þeirra. En svo er varla gefin út barnabók með myndum, að ekki sé hún kennslubók í tóbaksreykingum! Nokkrar slíkar bækur liggja hér á borðinu hjá mér, allar með tóbaksreykingamyndum (nema »Viðlegan á Felli«); heíir ein þeirra, sú er nefnist »Gaman og alvara«, hlotið sérstök með- mæli barnakennarastéttarinn- ar! Og þar er sýnd tóbaks- reyking! Hvenær skyldu forgöngu- menn uppeldismálanna kom- ast á lag með að verða sam- taka í baráttunni gegn mein- um þjóðfélagsins? Meðal þeirra tel ég nautn áfengis og tóbaks. B. B. Stórstúkuþingið. Frá Regluhagsnefnd: 1. Stórstúkuþingið felur fram- kvæmdanefndinni að vinna að þvi: a) Að fræðslumálastjórn rík- isins gefi út handbók um bindindisfræðslu (áfengi og tóbak) fyrir kennara í æðri og lægri skólum. b) Að sjá um að birtar verði greinar (í »Æskunni« og víðar) við barna og unglinga hæfi, um skað- semi tóbaks og áfengis. 2. Stórstúkan felur fram- kvæmdanefndinni að leggja kapp á stofnun og viðhald ungmennastúkna, og að koma skipulagi þeirra og starfshátt- um á fastan grundvöll. 3. Stórstúkuþingið felur fram- kvæmdanefndinni að athuga hvort ekki muni gerlegt að stofna til allsherjar bindindis- mannadags og verði þá leitast við að hafa fundarhöld um bindindismálið samtímis sem víðast á landinu. 4. Stórstúkuþingið felur fram- kvæmdanefndinni að reyna að stofna til samvinnu milli allra þeirra félaga í landinu, sem á einhvern hátt vilja vinna að eflingu bindindismálsins. St. Eygló nr. 78. Nýlega fóru br. Stórritari Jóhann Ögmundur Oddsson, slr. Sigríður Halldórsd. kona hans, br. Stórkapilán Gísli Sig- urgeirsson og umdæmiskanzl- ari br. Jón Einarsson, austur í Vík og hófu st. Eygló nr. 78 til starfs, en hún hefir farið sér hægt undanfarið. För þessi varð hin giftudýrgsta, stúkan hóf starfið af hinum mesta krafti, 32 nýir félagar bættust í hópinn á fundinum, og verð- ur þar á vonandi framhald á næstu fundum. Margir hinna mestu áhrifa- manna staðarins eru í stúk- unni og hún yfirleitt skipuð hinu ágætasta fólki, má þvi vænta hins besta af starfsemi hennar fyrir málefni vor. St. Eygló er stofnuð 16. júní 1901 af þáverandi sýslumanni Vestur-Skaftafellssýslu br. Guð- laugi heitnum Guðmundssyni F. St. Sem umboðsm. St.t. mælti stúkan með br. Einari Erlends- syni bókhaldara. St. Framsókn nr. 186 á Siglufirði, sem legið hefir niðri nú um hríð, tók 8. þ. m. til starfa að nýju fyrir for- göngu ýmsra eldri templara og bindindismanna á Siglufirði. Hafa henni þegar bæzt margir nýir og góðir starfskraftar, þar á meðal presturinn og skóla- stjórinn. Einnig mun barna- stúkan þar taka til starfa inn- an skamms af miklum krafti. Haustþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 var haldið í Hafnarfirði 10. þ. m. Þingið sóttu 66 fulltrúar, þar á meðal fulltrúar stúkn- anna á Rangárvöllum og Vik í Mýrdal. Samkvæmt skýrslu U. T. eru nú starfandi 23 undir- stúkur í umdæminu með tæp- um 1500 félögum. Rikisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.