Sókn - 24.12.1935, Blaðsíða 1

Sókn - 24.12.1935, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Fr. Ásmundsson Brekkan Reykjavík. Simi 4833 — Pósth. 64. SOKN Afgreiðsla: Skrifst. Stórst. íslands. Hafnarstræti 10. Simi 4235. Pósth. 14. ********** ÚTGEFANDI: STÓRSTÚKA ÍSLANDS *********** IV. árg. Uppgjöf eða viðnám. Eftir Brynleif Tobíasson, Umboðsmann Hátemplars. Það eru nú liðnir 9 mán- uðir frá því er afnám aðflutn- ingsbanns sterkra drykkja kom til framkvæmda hér á landi. Á sjö mánuðum (1. febr.—1. sept.) hefir Áfengisverzlun rík- isins selt áfenga drykki fyrir sem allra næst tvœr milj. króna. í fyrra á sama tíma nam sala verzlunarinnar 765 þús. króna. Aukning: ein miljón tvö hundrað og þrjátíu þúsundir króna. Þetta nær aðeins til misseris og eins mánaðar í við- bót. Má búast við, að Áfengis- verzlunin fái að minnsta kosti hálfa fjórðu miljón króna í handraðann á árinu, cf salan heldur svona áfram. En það er áreiðanlegt, að íslendingar drekka meira en það, sem kemur úr búðum Áfengisverzl- unarinnar. — Bruggiðja þrífst enn hér og þar og smygl er enn ekki nærri því upprætt til fulls. Það þarf [ekki að deila um afleiðingarnar af afnámi bann- laganna. Ef þjóðin hefir ekki séð þær fyrir, þá sér hún þær nú. En þrátt fyrir stóraukinn drykkjuskap, bólar ekki á nokkurri sterkri hreyfmgu í bindindisátt hér á landi nú. Reykjavík, 24. des. 1935 Brynleifur Tobiasson. Mér vitanlega hefir engra nýrra krafta til stuðnings bindindi orðið vart liér á síðustu miss- irum. Haustið 1933 liétu margir andhanningar fylgi sínu við bindindishreyfinguna, ef bann- ið yrði afnumið. Bannið var numið lir gildi, en efnda er vant enn í dag á heitorð andbanninga. Hvenær á að efna þessi lof- orð? Við bindindismenn ósk- um eindregið nýliða í hóp okkar, og þjóðinni er fyllsta þörf þeirra. Við eigum nú um tvennt að velja: að gefast upp eða veita viðnám og sækja á. Það sæmir ekki Góðtemplurum að gefast upp. Þeir munu veita viðnám og sækja á. 17. blað Hér í bænum er fjöldi fólks mjög bindindissinnaður. Allt þetta fólk á að sameinast okk- ur hinum. Það á að ganga i Góðtemplararegluna. Því fjöl- mennari, sem vér erum, því voldugri. Ef þið viljið styðja bindindismálið, þá gangið í Regluna. Með því eflið þér til sóknar gegn áfenginu, sóknar, sem kemur að einhverju haldi. En ef þér, sem bindindissinn- uð eruð, standið dreift og án sameiginlegrar forustu, verður lítið úr ykkar góða hug til bindindismálanna og vilji yðar fær eigi að jafnaði notið sín þann veg. Ef allt bindindissinnað fólk á íslandi væri félagsbundið í Góðtemplarareglunni, mundi kröfum bindindishreyfmgar- innar vera betur tekið en nú tíðkast, bæði á Alþingi, í bæj- ar- og sveitastjórnum og ann- arsstaðar. Það er meira tillit tekið til félags, sem telur 25 þúsundir félaga, heldur en til þess, sem telur aðeins 5 þús- undir. Við Templarar fáum iðulega sama svar, þegar við erum að reyna að fá nýtt fólk í Regluna, og það er þetta: Ég þarf ekki að fara í Regl- una. Ég er í hindindi við sjálf- an mig. Þetta er hættulegur misskilningur. Einmitt af því, að þér eruð í bindindi og hafið þá væntanlega hug á þvi, að aðstandendur yðar og

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.