Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2022, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 07.05.2022, Qupperneq 2
Þetta er ekki auðveld ákvörðun, en ég er orðinn áttræður og þarf að finna einhvern til að taka við þessu. Brynjólfur H. Björnsson, framkvæmda- stjóri Brynju Fólk er miklu opnara núna og spenntara að ferðast. Janina Selenskíj snerti við þingi og þjóð Þingmenn, forseti Íslands og ráðherrar stóðu á fætur og klöppuðu fyrir Volodímír Selenskíj, forseta Úkraínu, þegar hann ávarpaði Íslendinga með hjálp fjar- fundarbúnaðar í gær. Í ræðunni hvatti Selenskíj Íslendinga til að halda áfram aðstoð við Úkraínu og að beita Rússland þrýstingi. SJÁ SÍÐU 12 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Talning atkvæða í sveitarstjórnarkosningum þann 14. maí 2022 í Kópavogi fer fram í íþróttahúsinu Kórnum að Vallakór 12–14 og hefst að kjörfundi loknum kl. 22. Yfirkjörstjórn í Kópavogi, Snorri G. Tómasson Ingibjörg Ingvadóttir Jón Ögmundsson kopavogur.is Auglýsing frá yfirkjörstjórn í Kópavogi Dæmi eru um að íslensk gisti- hús hafi á skömmum tíma farið úr engu í 100 prósenta bókanir út sumarið 2023. Erlendir ferðamenn segjast njóta ferðalaga betur en nokkru sinni. bth@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Mjög vel horfir með bókanir í ferðaþjónustu í sumar. Dæmi eru um að gististaðir séu full- bókaðir út sumarið 2023. Að sögn starfsmanna á Fosshóteli Núpum í Skaftárhreppi er nýtingin á hótelinu að nálgaðist 100 prósent. Staðarhaldarar víða um Suðurland hafa svipaða sögu að segja af bók- unarstöðunni. Sum gistihús hafa farið úr núlli vegna Covid upp í fulla nýtingu á undraskömmum tíma. Dæmi eru um gististaði sem eru full- bókaðir út sumarið 2023. Fréttablaðið ræddi við ferðamenn við Skógafoss í vikunni. Janina frá Finnlandi sagði að henni liði eins og hoppandi kálfi að vori. „Það er stór- kostlega stórkostlegt að fá tækifæri til að ferðast á ný,“ sagði Janina og brosti. Hún sagði að íslensk náttúra væri aðdráttarafl, en nefndi einn- ig félagslegar og menningarlegar ástæður fyrir Íslandsheimsókninni. Ekki síst hefði hún heillast af sögum um álfa og tröll. „Ég bý úti á landi þannig að Covid hafði kannski ekki eins mikil áhrif á líf mitt og ef ég hefði búið í borg. En auðvitað var lífið einmanalegt í faraldrinum og þess vegna er svo frá- bært að finna orkuna sem hér er, fólk er miklu opnara núna og spenntara að ferðast,“ sagði Janina. Alba Sanchez frá Spáni sagðist, eins og Janina, vera í sinni fyrstu Íslandsheimsókn. Hún hefur nánast ekkert ferðast síðustu tvö ár. Þegar ferð tengd störfum hennar kom upp í hendurnar á henni hafi hún fyllst mikilli gleði og ákveðið að lengja ferðalagið og njóta landsins sem ferðamaður. Spurð hvort kuldi og rigning hefði engin neikvæð áhrif haft á upplifun- ina af Íslandi hló Alva dátt og sagði að eftir fimm ára búsetu í Bretlandi sætti hún sig við hvaða veður sem er. „Ég held að gildin hafi breyst eftir Covid, mér finnst ég kunna betur að meta virði ferðalaga. Ég er með mikið þakklæti í hjartanu yfir að fá að ferðast, það er kannski eitthvað sem maður fann ekki eins mikið fyrir áður en Covid skall á,“ sagði Alba. n Ferðaþjónustan á fullt og víða uppbókað út sumarið Skógafoss er einn af seglum íslenskrar náttúru. ANTON BRINK/FRÉTTABLAÐIÐ Alba Sanchez kristinnpall@frettabladid.is REYKJAVÍK Athygli vekur í Frétta- blaði dagsins að verslunin Brynja sem hefur verið rótgróinn hluti í bæj- arlífi Reykvíkinga er auglýst til sölu. Í auglýsingunni kemur fram að versl- unin hafi verið rekin í rúm hundrað ár og á núverandi stað, Laugavegi 29, frá árinu 1929 eða í tæpa öld. Brynjólfur H. Björnsson, fram- kvæmdastjóri og stærsti eigandi verslunarinnar, segist ganga stoltur frá borði. „Auðvitað geri ég það. Þetta er ekki auðveld ákvörðun, en ég er orðinn áttræður og þarf að finna einhvern til að taka við þessu. Ég er búinn að vera hérna í sextíu ár og hef séð ýmsar breytingar,“ segir Brynjólfur og heldur áfram: „Auðvitað er maður stoltur og núna fer maður að gera eitthvað annað í ellinni,“ segir Brynjólfur glettnislega. n Sáttur við ævistarfið og selur Brynju adalheidur@frettablad.is STJÓRNSÝSLA Umboð smaðu r Alþingis hefur lagt til við dóms- málaráðherra að hann veiti for- stöðumanni ríkisstofnunar gjafsókn í máli sem hann hyggst höfða gegn ríkinu. Forstöðumaðurinn leitaði til umboðsmanns eftir synjun fjár- málaráðuneytisins um rökstuðning og gögn í tengslum við launakjör hans. Umboðsmaður taldi synjun- ina ekki á rökum reista og mæltist til þess við ráðuneytið að það tæki málið til meðferðar að nýju yrði óskað eftir því. Ráðuneytið lýsti sig hins vegar ósammála umboðsmanni og fylgdi ekki tilmælum hans. Forstöðumaðurinn ákvað þá að höfða dómsmál gegn ráðuneytinu og hefur umboðsmaður ákveðið að virkja sérstaka heimild sína til að beina þeim tilmælum til dóms- málaráðherra að veita viðkomandi gjafsókn í málinu. n Ráðuneyti neitar að fara að áliti umboðsmanns Umboðsmaður Alþingis styður mál- sókn á hendur fjármálaráðuneyti. 2 Fréttir 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.