Fréttablaðið - 25.06.2022, Page 33
Umsóknarfrestur um öll störfin er til 18. júlí. Allar nánari upplýsingar
um störfin, menntunar- og hæfniskröfur er að finna á starfatorg.is.
Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að
sækja um. Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð staðsetningu. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Okkar hlutverk
er að leysa krafta
úr læðingi
Snillingur
í nýsköpun
Spekingur á sviði
háskóla og vísinda
Talnaspekingur sem elskar
árangursmælikvarða
Nýsköpun er ekki aðeins grundvöllur efnahagslegrar velgengni heldur lykillinn
að úrlausnum á stærstu viðfangsefnum framtíðarinnar. Við leitum að skapandi
einstaklingi sem býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu af stuðningsumhverfi
nýsköpunar og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp traustan grundvöll fyrir
hugvitsdrifna nýsköpun á öllum sviðum.
» Mótun stuðningsumhverfis og alþjóðasamstarf á sviði nýsköpunar
og sjálfbærrar atvinnuþróunar
Hlutverk háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins er að leiða saman það afl sem
býr í háskólastarfi, vísindum, nýsköpun, iðnaði, fjarskiptum og upplýsingatækni og stuðla
þannig að því að hugvitið verði stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar.
Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild og við viljum bjóða öll þau velkomin
í okkar hóp sem eru tilbúin að flytja fjöll.
Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta framtíðina í ráðuneyti sem ætlar sér að vera
leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun.
Háskólar landsins gegna lykilhlutverki í uppbyggingu þekkingarsamfélags enda er
öflugt háskólastarf forsenda þess að íslenskt samfélag geti tekist á við áskoranir
nýrra tíma. Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem býr yfir yfirgripsmikilli
reynslu og þekkingu og vill leggja sitt af mörkum til uppbyggingar framúrskarandi
háskóla.
» Stefnumótun og alþjóðasamstarf um stuðning við öflugt háskóla-
og vísindastarf
Árangur er lykilhugtakið í öllu starfi ráðuneytisins og því er mikil áhersla lögð á að
til staðar séu traust gögn og skýrir mælikvarðar. Við erum að leita að talnaspekingi
sem kann þá list að lesa skýrar niðurstöður úr flóknum gögnum og miðla þeim
áfram á einfaldan og skýran hátt. Ráðuneytið verður jú að vita hvort þær aðgerðir
sem það stendur fyrir séu að virka eða ekki!
» Framsetning, skilgreining og mat á mælikvörðum
» Árangursmat á þeim verkefnum sem ráðuneytið stýrir