Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 4
Ný rannsókn kann að skýra hvers vegna hinsegin fólk verður í meiri mæli fyrir meiðandi framkomu og róg- burði en fyrir Covid. Umfang persónulegs óhróðurs í sögu- legum hæðum. bth@frettabladid.is SAMFÉLAG Óbirtar niðurstöður úr viðamikilli rannsókn sýna fram á að 16 prósent þátttakenda eldri en 18 ára hafa undanfarið orðið þol- endur glæpa á internetinu. Mikil aukning hefur orðið á rógburði eða meiðyrðum á netinu. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Jónas Orri Jónasson, sérfræðingur hjá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu, gerðu snemmsumars mælingu á reynslu Íslendinga af netbrotum í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Rannsóknin sýnir að sigið hefur á ógæfuhliðina er kemur að rógburði og meiðyrðum. Alls eru glæpir sem varða meiðyrði eða rógburð á net- inu tæplega 40 prósent allra brota sem þolendur greindu frá. „Þarna er um talsverða aukn- ingu að ræða, því rétt um 30 pró- sent nefndu þessi brot árin 2018 og 2020,“ segir Helgi. „Hlutfall persónu- legs óhróðurs á netinu jókst umtals- vert á Covid-tímabilinu.“ Umfang þessara brota hefur aldrei mælst meira en í ár. Fylgi- kvillar farsóttarinnar leynast því víða að sögn Helga. Innilokun og samkomubönn virðast hafa brotist fram í meira persónubundnu níði á netinu en áður. Mikil umræða hefur orðið um bakslag undanfarið í málefnum samkynhneigðra. Spurður hvort vísbending sé um að jaðarhópar hafi farið verr út úr Covid-tíman- um en meginstraumshópar í ljósi niðurstaðna rannsóknarinnar, segir Helgi: „Já, jaðarhópar hafa væntanlega orðið meira fyrir þessum Covid- áhrifum en aðrir. Það verður berg- málshellir í einverunni á Covid- tímanum, netið kemur sterkar inn sem samskiptatæki. Menn verða dómharðari gagnvart því sem þeim finnst aðeins öðruvísi og þá virðist aukin hætta á neikvæðum áhrifum fyrir samkynhneigða eða hinsegin fólk,“ segir Helgi. Þeir sem helst telja að þeir hafi orðið þolendur internetsglæpa eru flestir undir þrítugu. Fleiri karlar en konur telja sig fórnarlömb. Margir þátttakenda nefndu að hafa orðið fyrir fleiri en einu broti. Auðvelt er að sögn Helga að slengja fram persónulegum óhróðri um nafngreindar persónur á netinu svo sem í athugasemda- eða kom- mentakerfum. Ljóst er að mörgum svíður undan reynslu af því tagi. Ekki virðist vanþörf á að brýna fyrir netverjum að sýna aðgát í nærveru sálar og viðhafa meiri háttvísi í sam- skiptum á netinu, að sögn Helga. Helgi segir áhugavert að hlutfall kynferðislegrar áreitni á netinu hafi aukist í kjölfar #MeToo-bylgjunnar sem reið yfir Vesturlönd árið 2017. Ekki sé ósennilegt að aukin með- vitund um brot af þessu tagi skýri aukninguna. Hótun um of beldi skipi stærri sess en nokkru sinni. Alls 26 prósent brotanna séu þess eðlis nú í stað 17 og 21 prósents áður. Kynferðisleg áreitni er nefnd álíka oft og 2018 og 2020, eða í 21 prósenti tilfella, einkum meðal kvenna. „Það sem er jákvætt við þróunina er að mun færri nefna að myndefni af þeim hafi verið dreift án leyfis en áður, eða 11 prósent brotanna í stað 16 og 17 prósenta 2018 og 2020. Einnig nefna færri að þeir hafi orðið fyrir misnotkun á greiðslukortum,“ segir Helgi. n Meiðyrði og rógburður eru vaxandi mein samkvæmt óbirtri rannsókn Samkvæmt nýrri rannsókn kann ein skýring hatursorðræðu og vaxandi neikvæðni í garð samkyn­ hneigðra að eiga sér upptök í félagslegri ein­ angrun á Cov­ id­tímabilinu. Gleðigangan fer fram í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ HANNA Helgi Gunn­ laugsson, pró­ fessor við HÍ adalheidur@frettabladid.is FORNMINJAR Svokölluð 100 ára regla í aldursfriðunarákvæði forn- leifa í lögum um menningarminjar er nú til endurskoðunar í umhverf- isráðuneytinu. Í kynningu um málið í sam- ráðsgátt stjórnvalda er lagt til að miðað verði við tiltekið ártal frek- ar en aldur húsa. Í kynningunni segir að af 100 ára reglunni leiði að stutt sé í aldursfriðun mikils fjölda steinsteyptra húsa og ann- arra mannvirkja í þéttbýli og sveit, sem og innviða úr f jöldafram- leiddum efnivið, en dæmi um slíkt eru gaddavírsgirðingar í sveitum landsins. n Stefnt að afnámi 100 ára reglunnar um friðun húsa Laugavegur 29 er meðal fjölmargra friðaðra húsa í landinu. adalheidur@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Héraðssaksóknari hefur ákært hálfsjötugan ítalskan  karlmann fyrir stórfellt fíkniefna- lagabrot, með því að hafa flutt inn til landsins 993,78 grömm af kóka- íni ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin f lutti ákærði falin í niðursuðudósum í ferðatösku sem hann hafði meðferðis sem farþegi með f lugi frá Brussel í Belgíu til Íslands í apríl síðastliðnum. Maðurinn sætir nú gæsluvarð- haldi á Hólmsheiði vegna málsins en það verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku. n Ítali ákærður fyrir kíló af kókaíni í niðursuðudósum FIAT.IS • ISBAND.IS FULLKOMINN Í BORGARFERÐIR „Ítölsk hönnun hefur alltaf veitt okkur í HAF studio mikinn innblástur og þess vegna varð rafknúinn Fiat 500e fyrir valinu.“ Haf steinn Júlí us son og Karítas Sveins dóttir NÝ SENDING Á LEIÐINNI – TRYGGÐU ÞÉR EINTAK ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA kristinnhaukur@frettabladid.is ELDGOS Reiknilíkön Veðurstof- unnar gera ekki ráð fyrir því að gasmengun frá eldgosinu í Mera- dölum truf li Gleðigönguna og hátíðarhöldin á Hinsegin dögum sem fram fara í dag. „Það er hætta á einhverri móðu en ekki að hún verði truf landi,“ segir Elín Björk Jónasdóttir veður- fræðingur. Vindáttin hefur smám saman verið að snúast í suðvest- anátt en reiknilíkön gera hins vegar ekki ráð fyrir gasmengun við yfir- borð. Með kvöldinu gæti hins vegar mælst gasmengun við suðurströnd landsins, til dæmis á þéttbýlis- stöðum eins og í Þorlákshöfn og við Eyrarbakka. Hægt er að fylgjast með mæling- um á netinu á vedur.is, appelsínu- gulum hnappi merktum Reykja- nesskaga. Einnig rauntímagildum á loftgaedi.is. n Á ekki von á að gasmengun trufli hátíðina Ekki er búist við gasmengun við yfirborð á höfuðborgar­ svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 4 Fréttir 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.