Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 22
Í dragi fær fólk nefni- lega tæki- færi til að tjá sig á annan hátt en það er vant. Skapa sinn eigin karakter og haga sér eins og það vill. Kvikmyndagerðarkonan Monika Konarzewska fæddist í litlu þorpi í Póllandi og ólst upp í trúuðu samfélagi þar sem ríktu miklir fordómar í garð hinsegin fólks. Kvik- mynd hennar, No Makeup, verður sýnd á Gauknum annað kvöld en um er að ræða heimildarmynd þar sem skyggnst er inn í dragsenuna á Íslandi. Öll þau sem fjallað er um í myndinni byrjuðu í dragi af ólíkum ástæð- um,“ segir kvikmynda- gerðarkonan Monika Konarzewska. Heimildarmynd hennar, No Makeup, sem fjallar um dragsenuna á Íslandi, verður sýnd á Gauknum annað kvöld. „Fyrir þau öll er drag leið til að tjá sig en fyrir sum er drag vinna, fyrir önnur er það þerapía og fyrir enn önnur er það hrein og bein skemmtun,“ segir Monika. Drag er það kallað þegar fólk klæðist fötum og sýnir látbragð sem talið er tengjast gagnstæðu kyni þess á einhvers konar sýningu eða gjörningi. Monika hefur sjálf einu sinni farið í drag og segir það hafa verið virkilega skemmtilegt. „Ég varð að prófa,“ segir hún. „Einn listamaðurinn í myndinni hvatti mig til þess og það var geggj- að. Ég varð svo ólík sjálfri mér og það varð til þess að ég leyfði mér einhvern veginn að gera allt aðra hluti en ég er vön,“ bætir Monika við. „Í dragi fær fólk nefnilega tæki- færi til að tjá sig á annan hátt en það er vant. Skapa sinn eigin karakter og haga sér eins og það vill. Fara á móti normum og gildum samfélagsins,“ segir Monika. „Fólk sem fer í drag er auðvitað bara að lifa sínu lífi eins og öll önnur en í draginu fær það tækifæri til að vera hver sem það vill, skapa sér þennan karakter sem er það sjálft en samt ekki. Lifa fantasíulífinu sem listamaðurinn skapar.“ Monika segir að í gegnum tíðina hafi fordómar beinst að dragi og fólki sem stundar það. Skýringuna telur hún vera fáfræði og ástæðuna fyrir því að hún kaus að fjalla um drag í myndinni segir hún vera þá að koma upplýsingum til sem flestra. „Ég er fædd og uppalin í Póllandi sem er kaþólskt land og þar er trú stór hluti af samfélaginu,“ segir Monika. „Í trúnni er fólk sannfært um það hvernig fólk á að vera og hvernig það á ekki að vera, fjöl- breytileikinn er ekki mikill. Öll eiga að trúa á sama guðinn og hafa sömu kynhneigð. Annaðhvort ertu góð/ur eða vond/ur og það er að mínu mati af því að fólk veit ekki betur og leitar sér ekki upplýsinga,“ bætir hún við. „Auðvitað þekki ég fullt af fólki sem er trúað og fagnar fjölbreyti- leikanum en hitt er algengara, að ef þú ert öðruvísi þá sé reynt að breyta því eða bjarga. Við vitum hvernig þetta hefur verið í gegnum tíðina, samkynhneigð hefur verið litin hornauga og það sama má segja um hinseginleikann almennt, Drag er leið til að tjá sig Monika Konar- zewska ólst upp í Póllandi en bjó á Íslandi í tvö ár. Hún segir að hér á landi sé greini- legur munur milli landanna þegar kemur að réttindum hin- segin fólks. MYND/KRYSTIAN TRZPIL Myndin verður sýnd á Gauknum annað kvöld en hér má sjá eina drottning- una labba yfir Tryggvagötuna á leið sinni á Gaukinn. MYND/AÐSEND Dragdrottningin Faye Knús er ein þeirra sem fjallað er um í heimildarmynd- inni No Makeup. Hún hefur slegið í gegn í hér á landi. MYND/AÐSEND það þarf að fræða fólk um það hvernig raunveruleikinn er,“ segir Monika. Öll þau sem koma fram í mynd- inni eru innflytjendur sem búa á Íslandi og eru hluti af dragsenunni hér. „Mig langaði að sýna það að til Íslands kemur fólk frá öllum heims- hornum til þess að fá að vera það sjálft í friði,“ útskýrir Monika. Hún segir að fyrir mörg þau sem koma frá löndum þar sem réttindi hinsegin fólks séu ekki í hávegum höfð sé léttir að vera á Íslandi. „Auð- vitað er það hér eins og alls staðar annars staðar, hér er fordómafullt fólk en munurinn hér og til dæmis í Póllandi er að hér hefur hinsegin fólk réttindi og stjórnvöld beita sér fyrir réttindum þeirra.“ Monika bjó á Íslandi í tvö ár og segist vel geta hugsað sér að f lytja hingað aftur. „Mér var tekið ótrú- lega vel hérna og upplifði sjálf það sem ég sagði hér að framan, ég gat verið frjáls,“ segir hún. „Á Íslandi virðist vera pláss fyrir nánast öll þó að alltaf sé hægt að gera betur og ég gleymi því aldrei þegar ég sá Pride á Íslandi í fyrsta sinn. Ég grét þegar ég sá allt fólkið sem var komið til að sýna hinsegin- leikanum samstöðu. Það eru ótrú- leg forréttindi að fá að búa á svona stað,“ segir Monika. Hún segist vona að þrátt fyrir það bakslag sem hefur orðið víða þegar kemur að réttindum hinsegin fólks þá sé hatrið að dvína. „Ég held og vona að með komandi kynslóðum breytist sá hugsunarháttur að kyn eða kynhneigð skipti einhverju máli, hatrið þarf að deyja út af því að það er ekki lausnin, fjölbreyti- leiki er lausnin,“ segir Monika. „Hlýnun jarðar er til að mynda raunverulegt vandamál sem við þurfum að laga öll saman, það getum við ekki gert ef þar fá ekki öll pláss. Heimurinn er að minnka og við erum að færast nær og nær hvert öðru og á endanum þurfum við jafnvel að sameinast á minni landsvæðum. Við getum ekki gert það full af hatri og fordómum,“ segir Monika. No Makeup er sýnd á Gauknum í Tryggvagötu klukkan 20 annað kvöld. n Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is 22 Helgin 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.