Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 48
GÆÐA- OG UPPLÝSINGAÖRYGGISSTJÓRI VERITAS leitar að öflugum starfsmanni til að sinna starfi gæða- og upplýsingaöryggisstjóra fyrirtækisins. Næsti yfirmaður gæða- og upplýsingaöryggisstjóra er fjármálastjóri Veritas. Gæða- og upplýsingaöryggisstjóri starfar í mikilli samvinnu við upplýsingatæknideild Veritas. Hæfni • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð • Lausnamiðuð hugsun, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum • Yfirsýn og geta til að vinna undir álagi • Áhugi á gæða- og upplýsingaöryggismálum Þekking og reynsla • Þekking og reynsla af rekstri gæðakerfa og vottana æskileg • Þekking á ISO 27001 er æskileg • Reynsla á sviði verkefnastýringar er kostur • Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný kerfi og umhverfi • Þekking á SharePoint er kostur Starfssvið • Ábyrgð og umsjón með rekstri og viðhaldi á gæðamálum og upplýsingaöryggi Veritas sem er vottað með ISO 27001 • Aðkoma að innri og ytri úttektum • Breytingastjórnun • Umsjón með gæðahandbók í SharePoint • Þjálfun starfsmanna í upplýsingaöryggi • Vinna að áhættumati innan Veritas • Gildingar á tölvukerfum • Önnur tilfallandi verkefni á sviði gæðamála og upplýsingaöryggis Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Veritas, www.veritas.is. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Nánari upplýsingar veitir Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is. Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu. Veritas er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor. Fyrirtækið er kjölfesta samstæðunnar og veitir þjónustu til dótturfyrirtækjanna svo þau geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Nánar á www.veritas.is UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 14. ÁGÚST VILT ÞÚ GANGA TIL LIÐS VIÐ ÖFLUGAN HÓP LÖGFRÆÐINGA PERSÓNUVERNDAR? Persónuvernd leitar að drífandi og kraftmiklum lögfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í samhentu teymi stofnunarinnar. Fjölbreytni þeirra mála sem eru til meðferðar hjá Persónuvernd er mikil – allt frá rafrænni vöktun á vinnustöðum til álitamála sem tengjast vísindarannsóknum á heilbrigðissviði – og varða þau oft grundvallaratriði í íslensku samfélagi. Mikið er lagt upp úr frumkvæði, ábyrgð og getu starfsmanna til að sinna krefjandi verkefnum í öflugu teymi lögfræðinga stofnunarinnar. Persónuvernd er fjölskylduvænn vinnustaður. Um 100% starf er að ræða. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald sem annast eftirlit með framkvæmd laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, laga nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi og reglna settra samkvæmt þeim. FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 2022. Umsóknir skulu sendar á postur@personuvernd.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar um störfin veitir Vigdís Eva Líndal, sviðsstjóri hjá Persónuvernd, í síma 510-9600. Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá móttöku þeirra, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. HELSTU VERKEFNI: • Hefðbundin afgreiðsla og meðferð mála sem heyra undir Persónuvernd, m.a. vinna að úrskurðum í ágreiningsmálum, ákvörðunum í tengslum við úttektir og frumkvæðismál, umsögnum og álitum • Verkefni tengd erlendu samstarfi, einkum í tengslum við þátttöku Persónuverndar í Evrópska persónuverndarráðinu (EDPB) og málum er varða vinnslu persónuupplýsinga yfir landamæri • Önnur lögfræðistörf samkvæmt ákvörðun sviðsstjóra eða forstjóra MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Þekking á persónuverndarlöggjöfinni er kostur • Reynsla og/eða þekking á sviði stjórnsýsluréttar er kostur • Mikil áhersla er lögð á gott vald á íslensku og ensku, auk færni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekking á einu norðurlandamáli er kostur • Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnubrögðum • Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er skilyrði Við leiðum fólk saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.