Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 4
4 | bjarmi | október 2021 Áhugi á tækni og tölvumálum leiddi hann á Lindina VIÐTAL VIÐ STEFÁN INGA GUÐJÓNSSON DAGSKRÁRSTJÓRA HELENA LEIFSDÓTTIR Glaður og þakklátur maður situr við hljóðnemann á þessum frábæra degi á útvarpsstöðinni sem boðar kærleika Guðs í tali og tónum 24 tíma sólarhrings, 7 daga vikunnar. „Ég verð í beinni útsendingu í dag.“ Þannig hljómar kveðjan til hlustenda Lindarinnar þegar Stefán Ingi sest við hljóðnemann. Við setjumst niður með Stefáni Inga og tökum spjallið á fallegum sumardegi. Hver er þessi Stefán Ingi á Lindinni? Ég heiti Stefán Ingi Guðjónsson og er fæddur í Reykjavík 25. janúar 1968. Systir mín heitir Steinunn og er 11 árum eldri en ég. Foreldrar okkar voru Sigrún Stefánsdóttir og Guðjón Ingimundarson og eru þau bæði látin. Ég er kvæntur frábærri og yndislegri konu, Önnu Höllu Birgisdóttur og ég á þrjár stórkostlegar stjúpdætur og frábæra tengdamömmu. Ég ólst upp í Reykjavík á Njálsgötunni, bjó um tíma í Kleppsholtinu en svo fluttum við í Seljahverfið þegar ég var tíu ára. Það tók á að skipta um hverfi og skóla. Flest eigum við góðar minningar um skólagöngu okkar. Mér leið vel í Langholtsskóla en ég glímdi við talgalla eða stam sem háði mér svolítið í samskiptum. Sérstaklega þegar ég var á unglingsárum. Ég lenti í leiðinlegu einelti þegar ég var 13 til 15 ára í Ölduselsskóla. Hvernig gekk í skólanum? Frá sjö ára aldri hafði ég stamað, það háði mér auðvitað í daglegum samskiptum og ég stamaði meira þegar ég var stressaður. Mér var strítt í gagnfræðaskóla með niðurlægjandi athugasemdum sem tók oft á. Móðir mín var yndisleg og ákveðin kona með sterkar skoðanir, en hún vissi hvað drengnum hennar var fyrir bestu. Þegar horft er til baka var ég lánsamur að móðir mín ákvað að senda mig í danskennslu til Heiðars Ástvaldssonar og í yngri deild KFUM á Holtavegi 28. Í KFUM og síðar unglingadeild KFUM og K eignaðist ég góða vini og félaga, starfið var lifandi og skemmtilegt. Ég fann enga þörf lengur fyrir að reyna að vingast við bekkjarfélaga mína í Ölduselsskóla. Voru foreldrar þínir trúaðir? Ekki get ég sagt það, ég var mjög náinn foreldrum mínum og ólst upp við mikið ástríki, þess vegna var auðvelt að fara eftir ráðleggingum þeirra. Móðir mín hafði kynnt sér starfsemi KFUM sem er kristileg æskulýðshreyfing og sagði að það væri góður félagsskapur fyrir unga drengi. Það reyndist vera heillaspor fyrir mig að sækja fundi á Holtaveginum. Þegar horft er til baka var það algjörlega leitt af Guði. Hvers vegna gafstu Guði? Ég hafði sótt fundi hjá KFUM frá tíu ára aldri, á unglingsárum voru KFUM og K vinir

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.