Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 5

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 5
bjarmi | október 2021 | 5 mínir sumir að velta trúnni fyrir sér. Ég vildi vera einn af hópnum en fannst Guð vera fjarlægur mér. Það urðu umskipti þegar ég varð 16 ára þar sem við sóttum fundi hjá KSS, sem eru Kristileg skólasamtök. Fundirnir voru haldnir við Amtmannsstíginn í Reykjavík. KSS er félag fyrir ungt fólk á aldrinum 15 ­20 ára. Félagið leggur áherslu á vináttu, góðan félagsskap og kristna trú. Á vorin er haldið vorskólamót um bænadagana í Vatnaskógi. Við vinirnir fórum auðvitað á mótið og var þessi tími alveg frábær. Á einni samverustundinni hlustaði ég á jafnaldra mína vitna um trúna á Guð. Á þeim tímapunkti fann ég hvernig Guð hreyfði við mínu hjarta og ákvað ég upp frá því að taka á móti Guði inn í líf mitt. Hvað tók svo við? Ég hélt áfram að sækja fundi hjá KSS næstu fjögur árin. Fljótlega eftir að ég tók trú fór ég að mæta á sunnudagssamkomur í KFUM og K og biblíulestra. Þegar KSS tímabilinu lauk átti ég góðan grunn í trúnni. Skúli Svavarsson kristniboði var og er í miklu uppáhaldi hjá mér, enda frábær kennari og guðsmaður. Árið 1988 kynnist ég Sigfúsi Ingvasyni vini mínum. Sjálfsálit mitt á þeim tíma var lítið en hann dró mig með sér í alls konar skemmtilega hluti og hjálpaði mér að öðlast trú á sjálfum mér og sterkari trú á Guði. Ég er nefnilega að eðli til opinn einstaklingur en hafði lokast vegna eineltis og talgalla. Ég er Sigfúsi (eða Fúsa eins og ég kalla hann) ævinlega þakklátur. Árið 1992 var mikil gerjun í kristna geiranum á höfuðborgarsvæðinu. Margir góðir gestir heimsóttu landið og héldu samkomur. Ég og Baldur vinur minn Ólafsson fórum á eina samkomu með Roger Larsson, sænskum trúboða sem var með samkomur í Fíladelfíu. Þar varð ég fyrir mjög áhrifaríkri upplifun sem átti eftir að breyta lífi mínu. Við vinirnir fórum þangað og vorum pínu feimnir. Í GUÐ HREYFÐI VIÐ MÍNU HJARTA OG ÁKVAÐ ÉG UPP FRÁ ÞVÍ AÐ TAKA Á MÓTI GUÐI INN Í LÍF MITT

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.