Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 6

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 6
6 | bjarmi | október 2021 Miðbæjartrúboði niðri í bæ. Síðar var ég líka í nokkur ár með í Miðbæjartrúboðinu sem er enn þá til staðar í Austurstræti og ófáar sögur af einstaklingum sem Guð hefur blessað ríkulega en þeir koma að borðinu til þiggja kaffi eða kakó og fá að draga biblíuvers úr öskjunni Orð Guðs til þín. Oft skapast góðar umræður sem stundum leiða til þess að viðkomandi gefur Guði líf sitt. Síðan fórstu á biblíuskóla í Svíþjóð? Já, mikið var talað um starfsemi Livets Ord í Svíþjóð, biblíuskólann og trúboð í Evrópu. Margir vinir mínir í Veginum höfðu farið út og sumir í nám við biblíuskólann. Ég varð forvitinn og ákvað að fara út til Uppsala og kynna mér Livets Ord kirkjuna. Ég keypti flugmiða og fór á stórt kristilegt mót sem er haldið í Uppsölum. Það var mikil upplifun fyrir mig og fannst mér Guð snerta mig á undursamlegan hátt. Hrifning mín var svo mikil á starfinu að ég ákvað að skrá mig í eins árs nám við biblíuskólann. Ég fór heim aftur og kláraði námið við Tölvu­ og viðskiptaskólann og hélt síðan aftur út um haustið. Í skólanum kynntist ég fyrri eiginkonu minni Debbý, hún er bresk og samkomulok kallar Roger fólk fram til fyrirbæna. Við sátum sem fastast en fólk streymdi fram að altarinu. Roger kallar á okkur og við stöndum upp og förum fram. Ég var ákveðinn í að verða ekki fyrir áhrifum líkt og hinir sem ýmist féllu í gólfið eða voru mjög blessaðir. Nema hvað, Roger kom til okkar og fór að biðja án þess að snerta okkur á nokkurn hátt. Samstundis fell ég í gólfið án þess að geta nokkuð að gert. Þetta fannst mér mjög merkileg lífsreynsla. Þú hefur víða komið við? Já, þar á meðal má nefna Miðbæjartrúboðið sem heillaði mig. Ég kynntist ungu fólki í Veginum og fór að sækja samkomur og hóp sem stóð að OFT SKAPAST GÓÐAR UMRÆÐUR SEM STUNDUM LEIÐA TIL ÞESS AÐ VIÐKOMANDI GEFUR GUÐI LÍF SITT

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.